Vikan - 29.04.1976, Síða 27
koma í safnið. Sigurður sagðist
ekki vera orðinn læs, kvaðst þó
þekkja alla stafina, en það nægði
sér ekki til að lesa um Tinna. —
Það gerir ekki svo mikið til, ég
bara skoöa myndirnar, bætti hann
við. Magnús sagðist hins vegar
svolítið vera farinn að lesa.
Næstum daglega.
Vilborg Linda Indriðadóttir 8 ára
sagðist koma næstum daglega í
safnið, bæði til að lesa þar og eins
til að fá lánaðar bækur með sér
heim. Hún sagöist helst velja sér
svolítið þungar bækur, því að hún
væri að keppast við að verða sem
best læs. Hún var að lesa Litlu
börnin leika sér eftir Davíð Ásk'els-
son, þegar þessi mynd var tekin af
henni, og í þeirri bók er meðal
annars sagt frá veiðiferð tveggja
drengja.
Ekki alveg alla stafina.
Helena Þráinsdóttir 6 ára var að
lesa og skoða Mola litla eftir
Ragnar Lár, þegar við tókum hana
tali. Hún sagðist ekki þekkja alveg
alla stafina ennþá, en það stæði til
bóta, því að hún hefðií vetur verið
við nám í Vogaskólanum, þar sem
mikið er teiknaö, litað og lesiö.
Sigurður Sigurðsson er tiður gest-
ur i Só/heimasafni.
nu/aa uisiaaomr var að /esa
Ævintýradaiinn, þegar við tókum
hana ta/i.
Stundum svolítill hávaði.
Anna Þórisdóttir 8 ára leit á
okkur með svolítilli varúð, þegar
við spurðum hana, hvort hún væri
ekki orðin læs, rétt eins og henni
litist ekki meira en svo á þessa
kumpána, sem svo bjánalega
spurðu. Hún var að lesa Pipp
strýkur að -heiman, en Pipp er
músastrákur, sem margar
skemmtilegar sögur eru af. Viö
spuröum Önnu, hvort krakkarnir
hefðu ekki stundum svo hátt á
lesstofunni, að ekkert næði væri
til lestrar. — Jú, stundum eru læti
[ krökkunum, sagði Anna, en þá
segja konurnar okkur að vera stillt
og þá verður aftur friður.
Meistari í að fletta.
Dröfn Erlingsdóttir 2ja ára var í
fylgd með Lindu Friðriksdóttur 8
ára frænku sinni, þegar við tókum
þærtali í lesstofunni. Linda sagð-
ist oft taka Dröfn með sér á safnið
og það gengi ágætlega, enda væri
sú stutta mesti meistari í að fletta.
Sjálf var Linda að lesa Pipp fer á
sjó, svo allt bendir til þess að
músastrákurinn Pipp njóti tölu-
verðra vinsælda í barnalesstofunni
( Sólheimasafni.
Anna Þórisdóttir: Auðvitað er ég
læs!
Viiborg Linda /ndriðadóttir kemur
næstum daglega i Só/heimasafn.
GISSUR
SULLRA55
B/lL KAVANAGU e.
FRANK FLETCUER
18. TBL. VIKAN 27