Vikan - 03.09.1976, Qupperneq 39
hlær best.
Sakamá/asaga eftir A/den Kimsey.
ákvað að koma Harry fyrir kattar-
ncf. Fyrst datt mér eitur í hug — en
svo hvarf ég frá því. Heiðarlega
kúlu átti hann Harry minn skilið að
fá í hausinn. Ég ákvað að koma
fingraförum Mavisar Davis á
skammbyssuna, en gerði mér ekki
alveg ljóst, hvernig ég kæmi því við.
Hyggilegra var að skjóta Harry blátt
áfram sjálf og hverfa svo á braut til
einhvers ríkis, sem ekkert samband
hefði við Bandariki Norður-
Ameríku. Auðvitað tæki ég með
mér nokkur hundruð þúsund dali
úr bankanum.
Ég kveið því ekki, að skotfimin
brygðist mér. Ég átti einu sinni vin,
sem var í lögreglunni — ég hef
alltaf verið veik fyrir einkennisbún-
ingum.
En ég hafði ekkert vopn hand-
bært. Ég fór því beina leið í
vopnasölu Wallys. Wally var vinur
Harrys og ég sagði honum, að ég
ætlaði að gefa Harry skammbyssu í
afmælisgjöf. Gjöfina sagðist ég hafa
valið með tilliti til allra þeirra
villimanna, sem Harry gæti hvenær
sem var hitt á ferðum sínum um
heiminn...
Wally var ákaflega skilningsríkur
og valdi byssuna af sérstakri kost-
gæfni, svo og skotfærin.
Næstu vikurnar — Harry var
farinn aftur á sjóinn — dró ég mér
þrjú hundruð þúsund dali af
ýmsum bankareikningum í bank-
anum, skipti þeim í þúsund dala
seðla og faldi þá í krókódílaskinns-
töskunni minni ásamt sammbyss-
unni.
Þegar Harry kom aftur til hafnar,
fór ég með töskuna í ástarhreiður
þeirra Mavisar Davis. Það var
föstudagur. Ég var með flugmiðana
I töskunni og næsta mánudag yrði
ég stödd á eyju í Suður-Kyrrahafi,
svo ekki gæti ég orðið viðstödd
útför Harrys.
Ég opnað dyrnar á íbúð Mavisar
Davis með lyklinum og greip þau
mjög önnum kafin í rúminu. Ég
þurfti þvx ekki að efast um, að
grunur minn var réttur. En ég vildi
samt njóta dauðauggs Harrys út í
æsar. Ég miðaði byssunni á hann.
Mavis æpti og stökk upp úr
rúminu. Harry fór hins vegar að
skellihlæja. Ég ákvað þá að drífa
þetta af. Búmm kvað við í byssunni
og Harry hló enn hærra. Ég hleypti
af aftur og enn hló Harry. Ég
hleypti af í þriðja sinn og Harry grét
af hlátri.
Ég greip aðra hleðslu úr töskunni
og flýtti mér svo mjög, að þúsund
dala seðlar fuku út um allt. Mavis
æpti aftur og svo heyrði ég hana
skella dyrunum á eftir sér.
Harry hætti að hlæja og reif af
mér byssuna. Hann tók mig í fangið
og sagði: ,,Þú litla, heimska gæs —
þú vissir, að Wally er vinur minn.
Hélstu virkilega, að hann grunaði
ekki neitt, þegar þú komst að kaupa
byssuna? Kúlurnar, sem hann lét
þig hafa, eru meinlausar plastkúlur
úr útstillingarglugganum...”
Og svo fór hann að hneppa frá
mér blússunni. „Heyrðu,” sagði
hann, „Ijóskur eins og Mavis hafa
eiginlega aldrei verið mínar týpur.
Allra síst, þegar þær hafa kastað
umgerðinni. Hvað ertu eiginlega
með mikla peninga I töskunni...?”
Tveimur stundum síðar sátum
við Harry um borð í flugvélinni á
leið til Boga-Boga. Þegar okkur fór
að leiðast aðgerðarleysið eftir
nokkurra viknadvölþar, settum við á
stofn dýfingaskóla fyrir ferðamenn.
Við lifðum eins og greifar af
peningunum mínum og skólagjald-
inu. Strönd, sjór, sól og dýrir
næturklúbbar.
Þangað til Myra Mower skaut upp
kollinum. Hún var nemandi okkar,
og ég fékk það á tilfinninguna, að
Harry byggist við einhverju sérstöku
af henni, ekki bara í sjónum. Myra
Mower var rauðhærð milljónera-
dóttir.
Þegarég spurði Harry um Myru,
kyssti hann mig, hló og sagði, að
rauðhært kvenfólk hefði engin áhrif
á sig. Um kvöldið fann ég lykil af
Grandhóteli í vasa hans og ég þurfti
ekki lengi að geta mér þess til að
herbergi hverrar lykilhnn sá gekk.
Snemma í fyrramálið ætlar Harry
að aka eftirlætisnemanda sínum á
flugvöllinn, en fyrir klukkustundu
fékk ég karlmann I neimsókn.
Hann heitir Felix Fellini — og er
einkaleynilögreglumaður. Banka-
ráðið sendi hann á minn fund til að
reyna að fá mig til að snúa aftur
heim. Auðvelt yrði að bjarga við
þessu lítilræði, sem ég dró mér af
reikningum kúnnanna.
En Fclix varð ástfanginn af mér,
og ég kann líka vel að meta hann.
Og hann er reglulegur karlmaður.
Svo karlmannlegur, að í kvöld ætlar
hann að koma fyrir smákassa í
bílnum hans Harrys. í kassanum
eru tvö kíló af dýnamíti og fleira
smávegis. Þegar Harry setur bílinn í
gang í fyrramálið, fer klukkan
einnig af stað, og að tuttugu
mínútum liðnum springur allt
saman í loft upp. Þá verður hann á
að giska hálfnaður með elskuna sína
á flugvöllinn.
Við Felix ætlum að hlæja lengi
saman annað kvöld.
36. TBL. VIKAN 39