Dagur - 06.05.1909, Blaðsíða 2
42. bls.
DAGUR.
li. tbí.
„Dagur“
kemur út hvern miðvikudag. —
Ársfjóröungurinn kostar
6 0 au., er borgist fyrirfram.
Afgreiðsla blaðsins er í
Aðalstræti 11, Talsími 34, og sje
auglýsingum komið þangað.
Ritstjóri „Dagsins" heima
til viðtals í Templaragötu 9 (húsi
Sk. Einarssonar) kl. 12—1 og 5—6
alla virka daga.
Frá útlöndum.
Fyrir nokkuru kom sá flokkur til valda í Tyrk-
landi, er Ungtyrkir nefndust, og vildu þeir semja siði
og háttu Tyrkja, sem mjög eru úreltir orðnir, sem mest
að hætti menningarþjóðanna. Tókst þeim í vetur að
útvega landinn frjálslega stjórnarskrá er, mjög heíur hafið
það til álits með stórveldunum, en áður var hið forna ríki
Ósmanna nær að því komið að liðast í sundur algerlega.
— Tetta ástand stóð þó ekki lengi, því um miðjan fyrri
mánuð umkringdu hermenn þinghúsið og tyðurinn heimtaði
hreina Muhamedstrú, en áður var þar trúfrelsi. Bjuggust
menn þá við, að Ungtyrkir væru af baki dottnir, en svo
var þó ekki og tókst þeim með hjáip herliðsins, sem að
mestu leyti var þeim trútt, að vinna bug á upphlaupunum,
er voru orðin all-ægileg. Hóíu þeir stórskotahríð á
Miklagarð og fjellu þar 400 af upphlaupsmönnum. Soldán
varð uppvís að því að hafa verið foringi byltingarinnar og
var set.tur af 28: f. m., en bróðir hans Muhamed Eeschad
Efjendi kvaddur til ríkisstjórnar og öllum upphlaupsmönnum
harðlega refsað. Ungtyrkir eru því enn fastari í sessi en
nokkuru sinni áður, þó að ekki þurfi að efa að fylgismenn
Abduls Hamids geri alit, sem í þehra valdi stendur til þess
að koma honum aptur á veldisstólinn.
Aldul Hamid, sem nú er settur frá völdum er 67
ára gamall og heíur setið 33 ár að völdum. Hann er
mjög slægvitur, grimmur og hinn mesti apiurhaldsseggur.
Hinn nýi soldan er tveimur árum yngri og mun
nefnast Muhammed 5., og hyggja menn gott til hans.
Víósvega*.
Bruní. Prestssetrið að Barði í Fljótum brann til
kaldra kola aðfaranótc 28. f. m. Fóik bjargaðist naumlega,
en nær ekkert af innanstokksmunum. Presturinn, sira
Jónmundur Halldórsson, var staddur á Akureyri. Allt óvátryggt
og ókunnugt um upptök eidsins.
Uollenzkt botnvbrpuskip ,Bernard‘ hleypti á land
í Vestmannaeyjum 2. apríl. Hafði komið svo mikili leki
að skipinu á hafi úti, að skipverjar sáu sjer eigi annað
fært, en að hleypa til lands..
Pjetur J. Tliorsteinsson kaupmaður hefur keypt
Sandgerði af „island-Færnkompagniet" í Esbjærg, sem nú
hættix öhum útvegi hjer. Fjefagið haiðiskaðast bLóriegaríyrra.
Símfregnir.
f ingið.
27. apríl,
Frumvarp um fræðslu barna, frumvarp um verzlunarbækur og
frumvarp um hagfræðiskýrslur afgreidd sem lög frá alþingi.
Frumvarp um eftirlaun ráðherra felt.
28. s. m.
Frumvarp um bókasafn á ísafirði, frumvarp um stoínun háskóla
og laun háskólakennara og frumvarp uin eignarnám á lóðum á ísaflrði
afgreidd sem lög frá alþingi.
Sambandsmáfið tekið íyrir i n. d. Tillögur mehihlutans sam-
þyktar.
Frumvarp um aðflutningsbann á áfengi afgreitt aftur til n. d.
Frumvarpi um vátiygging sjómanna (saraa frumvarp og umlífsábyrgð
sjómannna) vísað til n. d.
29. b. m.
Fjárlögin samþykt í n. d með nokkrum breytingum og send aftur
til e. d.
Frumvarp um Nauteyrarhérað samþykt í e. d.
E. d. leyíði að bera upp fyrirspurn til raðherra um nefndaiskipun
hans til þess að ransaka gerðir Landsbankastjórnarinnar.
30. s. m.
Frumvarp um nýtt læknishérað í Önundarfirði, er nefnist Flateyr-
arhérað, og breytingar á Hólmavikurhéraði og Miðíjarðarhórað afgreitt
frá n. d.
Sambandsraálið afgieitt frá n. d. TUlögur meirihluta nefndarinnar
samþyktar.
Koain nefnd í e. d. í frumvörpin um aukning bankanna: Jens
Pálsson, Jósef Björnsson, Kristinn Dauielsson, Lárus Bjarnason og Eiríkur
Briem.
Kosin nefnd í e. d. i frumvarpið um bygging, ábúð og úttekt
jarða: Sig. Stefansson, Jósef Björnsson, Gunnar Ólaísson, Steingr.
Jónsson og Stefán Stefánsson.
1. mai.
Kosin sambandslaganefnd í e. d.: Lárus Bjarnason, Stefán Stefáns-
son, Sig. Stefánsson, Jens Pálsson og Ari Jónsson.
Frumvarpið um aðflutningsbann á áfengi samþykt í n. d. með 18
atkvæðum gegn 6 og afgreitt sem lög frá alþingi.
Frumvarp um sölu á jörðinni Kjarna afgreitt sem Jög frá alþingi.
Frumvarp um farmgjald afgreitt frá n. d.
Frumvarp um vátrygging sjómanna afgreitt frá n. d. og vísað til
e. d. aftur.
Tingmenn Eyfirðinga flytja frumvarp um löggilding hafnar 1 Dalvik.
Fiskiveiðanefndin ílytur þingsályktunartillögu um sjómensku á ís-
lenzkum fiskiskipum.
Jón Torkelsson flytur þingsályktunartillögu um, að eftir að háskólinn
sé kominn á fót hafi ekki aðrir aðgang að embættum en þeir, sem
hafa tekið próf við hann, að uudanteknum kennaraembættum við
lýðskóla. — Sami flytur þingsáiyktunartiilögu um að skora á stjórnina,
að styrkur sá, sem íslendingar nú njóta við háskolann í Kaupmannahöfn,
verði veittur til háskólans hér.
Nefnd i þingsályktunartillögu um skilnað ríkis og kirkju kemur
með nýja þingsályktunartillögu, nokkuð öðruvísi orðaða en hina.
Tingið framiengt th 8. maí.
3. i. m.
Frumvarp um námur og frumvarp um undanþágu frá botnvörpu-
veiðalögunum fyrir íslenzk skip afgreidd sem lög frá alþingi.
Fjáraukalög fyrir 1906—07 afgreidd írá alþingi.