Dagur


Dagur - 03.06.1909, Síða 1

Dagur - 03.06.1909, Síða 1
Ritstjóri: Guðm. GuðmundSSOn, cand. philos. ÍSAFJÖRÐUR, 3. JÚNÍ 1909. 15. tbl. I. ár, 2. ársfj. Yerum á verði. Síbasla Alþingi setur lög, sem varða heill og velferð þjóðarinnar,.miða að eflingu menningar, siðgæðis og þroska, — lög, sem eru í fullu sarnræmi við óskir mikils meiri hluta hennar í höfuðatriðunum, aðal- kjarna laganna. Lögin eru betur undirbúin, en flest lög önnur, álits þjóðarinnar leitað áður og vilji hennar og samþykki lagt fyrir þingið með atkvæðagreiðslu. Þetta eru lögin um aðflutningsbann á áfengi. Þau eru til orðin í fullu samræmi við þjóðræðið, En, hvað verður þá? í höfuðstað landsins, Reykjavík, rís upp flokkur manna, sem gerir sitt, ítrasta til þess að koma iögunum fyrir kattarnef, kæfa þau í fæðingunni, — varna því að þau verði samþykkt á Alþingi. Og, þegar þess er engin von, þá taka fulltrúar þess flokks á þingi það ráð að sineygja inn i þau ísjárverðum ákvæðum, — til þess að erfiðara verði að fylgja lögunum fram, — til þess að sem flest skyggi á gagnið af þeim, er að því rekur að beita þeim, — til þess að hægra verði að fá þau aptur að velli )ögð. Forvígismaður og fulltrúi Bakkusar, fyrverandi ráðherra ogfyrverandi meirihluta- maðurinn H. Hafstein berstmóti iögunum á þingi með hnúum og hnefum, — hann og berserkir hans hinir traustustu, berjast þar gegn skýlausum þjóðarvilja. Lögin eru sarnt afgreidd frá þinginu, — og Bakkus og kappar hans ofurliði bornir., En þá verður það, er sizt, mátti við búast að myndi takast á þessum tímum. Fjelag er myndað í höfuðborginni, — til þess áð mótmæla þessum lögum, — mótmæla þessum sýnilega vott um þjóðræði, — mótmæla þjóðarviljanum. Og þetta er gert undir því yfirskini, að verið sje að vernda almenn manmjettindi! Og þetta er ekkert götustrákaíjeiag, — nei, síður en svo. — Þarna eru íremstir í flokki fyrverandi ráðherrann, dómarar, læknar, kennarar, candidatar og stúdentar. Og þeir þykjast ætla að efla bindindi og hófsemi, um leið og þeir ætla að varna biodindismönnum þessa lands að ná takmarki sínu, hámarki sínu: að útrýma áfengi úr landinu! Það eru skrítnir bindindispostular. feir þykjast vilja „stuðla að því að efla andlega og líkamlega heilbrigði þjóðar- innar með sjálfsstjórn og sjálfsaga.'1 Fyr má nú vera blekkingin. Er það nokkur heiibrigð bindindis- starfsemi að berjast gegn markmiði allra beztu bindindismannanna, — því að gera áfengi landrækt sem fyrst? Og að berjast gegn heitasta áhugamáli hins voldugasta og heillarikasta bindindisfjelags í heimi, Good-Templarreglunnar? Erunokkur líkindi til þess að sjálfsstjórn og sjálfsagi þróist og þroskist betur hjá þjóðinni, eða að þjóðiu verði andlega og líkamlega heilbrigðari ef áfenginu er leyfð landvist áfram? Fengin reynsla mótmælir þeim líkum. Þjóð vor er ekki „alfrjáls þjóð í al- frjálsu landi’1 fyrri en hún hefur varpað af herðum sjer ánauðaroki Bakkusar, — jafnvel þótt hún væri stjórnfrjálsasta lýðveldið í heiminum. Og bannlögin varpa einmitt því oki af henni fyrri en nokkur önnur lög. Blöðin „ísafold" .og „Templar“ hafa svo rækilega sýnt fram á blekkingar þessara manna og hrakið fjarstæður þeirra, að hjer er engin þörf að fara langt út í það mál, enda ekki rúm til þess í litlu blaði, en vjer viijum skora á alla að kynna sjer rækilega það sem þar er vitað um þetta. Og vjer viljum alvarlega biðja alla góða menn að gjalda varhuga við þessum fjelags- skap, sem eflaust verða allar klær hafðar úti til að útbreiða um lancl alit. Betta er fyrsta sinni, sem bindindis- menn — Good-Templarar — mæta mót- spyrnu, sem hafm er með 3amtökum og fjelagsstofnun. Og auðvitað munu vínsalarnir og eínuðustu elskhugar brennivínsámunnar ekki spara skildinginn til þess að boða fólkinu þessa „nýju trú“. Hjer ríður því á, að bindindismenn breiðfylki sjer á móti og sæki mál sitt af kappi og forsjá. Og vjer trúum svo á siöferðisþrótt þjóðarinnar, að einnig þeir, er voru á báðum áttum við atkvæðagreiðsluna um aðflutn- ingsbannið, jafnvel þeir, sem voru á móti því þá, þyki sjer nóg boðið, er þeir sjá, að haflst er handa til þess að vernda áfengið í landinu, undir yfirvarpi frelSisástarinnar, — þegar þeir sjá nafn manuijettindanna notað til þess að halda við í landinu þeirri bölvunaruppsprettu, sem þeir hijóta að sjá, að er lands og lýða tjón, ef þeir eru ekki steinsofandi eða „staurblindir". Yjer vonum að forsprakkar þessa nýja, skaðvæna fjelagsskapar, viti ekki hvað þeir gjöri, — að þeim sje ekki sjálfrátt þetta atferli, — þessi misbrúkun á orðunum: frelsi og mannrjettindi. Vjer vonum að þeir verði ekki þeir ógæfumenn, að ná fylgi þjóðarinnar til þess að búa heillavænlegustu lögum hennar fjörráð, — verði ekki þeir óhappagoggar, að veifa henni hjeðni um höfuð svo hún þekki ekki sinn vitjunartíma. „Heill þjóðar hæstu lög“ er gamalt orðtæki. Því má þjóðin aldrei missa sjónar á, og það á hjer við. Bannlaganna hefur þjóðarheill krafist. Og þegar um heill heillar þjóðar er að ræða, verður opt að setja lög, er takmarka að einhverju leyti rjett einstaklingsins. Og hvaða lög eru það, sem ekki gera það? Þeir fjelagar segjast vera úr öllum stjórnmálaflokkum landsins og ekki láta flokksmál þeirra til sín taka. Getur satt verið. En full ástæða er samt til að efast um að það sje satt, að fjelagið sje ekki gvimuklætt pólitískt fjelag, meðfram að minnsta kosti. Slik fjelög hafa þotið upp hjer á landi, að minnsta kosti dettur oss ósjálfrátt í hug fjelagið „Jón forseti" hjerna á ísafirði, sem engin lífsmörk hafa sjest með síðan Laxdal fjell við síðustu kosningar. Og vjer getum vel trúað því, að Haf-

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/371

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.