Vikan - 04.05.1939, Blaðsíða 18
18
VIKAN
Nr. 18, 1939
áfram, og lagði enn meiri alúð í röddina:
— Það er einungis líkaminn, sem getur
dáið, sagði hún. — Þjáningarnar yfirgefa
okkur ekki, þó að við losnum við hann.
Evu fannst það undarlegt, að nokkur
maður gæti um þetta talað af fullri sann-
færingu. Sjálf hafði hún raunar aldrei um
málið hugsað, og gat því ekkert um það
sagt. Ef til vill vissi Hulda eitthvað meira
um þetta en annað fólk. En hvernig hafði
hún fengið þá vitneskju?
Hulda yfirgaf nú Evu og fór fram í eld-
hús, — lofaði henni að fást við hin nýju
viðfangsefni. — Og Eva hélt hugleiðingum
sínum áfram. Hún hafði heyrt þær kenn-
ingar frá bernsku, að það væri stór synd,
að svifta sjálfa sig lífi. — En hún hafði
líka heyrt talað um endurlausn og náð.
Aldrei hafði hún þó gefið sér tíma til að
yfirveg þau mál. Henni skildist, að þetta
hlyti að vera til, og gerði ráð fyrir, að það
kæmi einhvemveginn af sjálfu sér, þegar
þess væri þörf. En það var henni glögglega
ljóst, að hún hafði verið í mikilli hættu.
Hún varð því að biðja guð að varðveita
sig frá öllu slíku. En hvað átti hún þá að
gera? Hún leitaði í huga sínum að lausn í
máhnu. En þar var enga ráðningu að
finna.------En svo skaut nýrri hugsun upp
í huga hennar. — Það var þó máske ein
leið fær. Margar ungar stúlkur höfðu farið
þá leið. Það valt auðvitað á því, að ein-
hver læknir vildi hjálpa henni. Það var þó
líklega ekki eins alvarlegt eins og það, sem
hún hafði áður áformað að gera. Ifulda
kom nú inn og færði henni nýja hressingu.
Eva var róleg en þungt hugsandi, og hún
gat lítils notið af því, sem fram var reitt.
Hulda sat hljóð og virti Evu fyrir sér.
— Mig langar til að segja þér dálitla
sögu, — sagði hún svo. — Eva leit undr-
andi framan í Huldu. — Til hvers ætlaði
Hulda að segja henni sögu? — Og hvers-
konar saga var það? — Hulda sat hljóð
nokkra stund. — Það er nú raunar ekki
saga, sagði hún svo. — En ég ætla að
segja þér frá atburði, sem gerðist fyrir
mörgum ámm. Eva hlustaði með athygli.
— Mér var þá kunnugt um unga stúlku,
hélt Hulda áfram. — Hún hafði lent í
raunum, — orðið fyrir samskonar von-
brigðum og þú. Hún vildi leyna því, sem
gerzt hafði og óttaðist afleiðingarnar.
Móðurástin var ekki vöknuð í sál hennar.
Hið nýja mannslíf, sem hún átti að fæða
inn í þennan heim, var óvelkominn gestur.
Hún leitaði aðstoðar læknis. Hjálpin átti
að veitast, og stundin var ákveðin. En
nóttina áður en læknisaðstoðin átti að
framkvæmast, gerðist undarlegur atburð-
ur. Hún var lögst til hvíldar, — vissi í
raun og vem ekki, hvort hún var sofandi
hraktar til baka, bomar út. Þær áttu ekki
móðurást að mæta og ekki neinni föður-
legri umhyggju. Myrkur skilningsleysisins
lykur nú um verustað þeirra og næðingar
andúðarinnar hrjá þær og hrekja.
Stúlkan fann, að þjáningar þeirra, sem
þarna þjáðust, lögðust á sál hennar eins
og farg, og hún bað förunaut sinn aðstoð-
ar. En nú voru kraftar hennar þrotnir.
Hún hné örmagna niður. Meðvitund henn-
ar var óljós. Hún fann, að hún var borin
á kærleiksríkum örmum, án þess að vita.
hvert stefndi. Og ekki vissi hún verulega.
af sér fyrr en hún vaknaði af einhvers-
konar dvala í líkama sínum. Henni varð
nú augljóst, að hún hafði verið vöruð við
þeirri hættu, sem yfir henni vofði.
Frásögn Huldu var lokið. Hún hafði
haft djúp áhrif á Evu. Báðar sátu þær
hljóðar og hugsandi langa stund.
Það líktist helzt því, að þær væm
ekki í þessum heimi. Þær hafa má-
ske verið langt inni í ríki þagnar-
innar. — Og tíminn leið,
án þess að þær vissu af.
En í þögninni rann nýr
skilningur upp fyrir
Evu. Henni varð ljóst,
að einungis ein fær leið
væri framundan. Hún
varð að taka viðfangs-
efnin eins og þau lágu
fyrir og reyna af
fremsta megni að sigr-
ast á erfiðleikunum.
Ásetningur hennar var
ákveðinn. En hvernig
gátu leiðirnar opnast?
Mundi hún sjálf verða.
þess megnug að opna.
þær, eða mundi einhver
annar verða til þess. —
Hún leitaði í huga sín-
um að ráðningunni,
lagði alla sál sína í leit-
ina. — Langur tími leið.
— Það var eins og
Hulda væri orðin. að
myndastyttu, táknmynd
af sjálfri þolinmæðinni.
— En áður en Eva vissi sjálf af,
var hún tekin að biðja, biðja um þrek, til
þess að geta annast og varðveitt það líf,
sem henni hafði verið trúað fyrir. Og áður
en hún vissi af, hafði hinn heilagi eldur
móðurástarinnar vaknað í sál hennar. —
Nýr kraftur streymdi um hana alla, og
sál hennar varð eins og opinn faður sem
breiddist út móti hinum nýja fögnuði.
Atburðurinn varð henni eins og sólampp-
koma, eftir niðdimma frostnótt. Eva undr-
aðist þessa dásamlegu breytingu, og hún
lofaði guð hátt og innilega. Þannig var
þögnin rofin. En svo varð aftur þögn. Það
var eins og friður himinsins hefði tekið
sér aðsetur í stofunni. En nú minntist Eva
sögunnar, sem Hulda hafði sagt henni.
— Mig langar til að vita meira um stúlk-
una, mælti hún svo. — Er hún enn á lífi?
— Já, svaraði Hulda. — Það er ég.
eða vakandi, — en hún sá einhverja undar-
lega vem koma inn til sín. Andlit verunn-
ar var dásamlega fagurt, og sorgblandin
samúð í augunum vakti undrun hennar.
— Fylg þú mér, — sagði veran, — og
málrómur hennar var þmnginn af ástúð.
— Og nú fann stúlkan að hún yfirgaf
líkamann. Hún sá hann liggja' í rúminu
sofandi, eða liðið lík. Ekki gat hún gert
sér grein fyrir hvort heldur var. — Hún
sveif nú með verunni eitthvað út í fjar-
lægðina, — ekki vissi hún hvert. — Hún
skynjaði hvorki tíma né rúm. En svo stað-
-— Mig- langar til að vita meira
um stúlkuna ....
næmdust þær á ömurlegum eyðistað.
Dimmir skuggar hvíldu þar yfir öllu og
naprir næðingar léku þar lausum hala.
Stúlkan fylltist af skelfingu. Skuggarnir
lögðust að sál hennar og næðingarnir gripu
hana heljartökum.
— Hlustaðu, sagði veran. Og stúlkan
heyrði barnsgrát úr öllum áttum. Næðing-
arnir báru hljóðin að eyrum hennar. Hún
fann þau nísta sál sína — ömurleg og
full af þjáningum. Stúlkan var að því kom-
in að hníga í ómegin af skelfingu, en föru-
nautur hennar hélt henni uppi. Hún gat
ekkert sagt, en í hjarta sínu spurði hún,
hvað um væri að vera, og hverjir ættu við
svona ömurleg kjör að búa. Og veran svar-
aði henni: — Hér er einn af skuggum
kynslóðanna, mælti hún. — hér dvelja sál-
ir, sem áttu að fæðast meðal mannanna,
en þeim var ekki viðtaka veitt. Þær voru