Vikan - 05.10.1939, Síða 14
14
V IK A N
Nr. 40, 1939
ifegurct og I3ízka
FíEÍlíTlllT ^ Aldrei er eins mikil þörf á að hugsa um
* fótleggina og þegar stuttu pilsin eru í tízku.
Fótleggimir verða bláir og bólgnir, ef þið gangið í þunnum sokk-
um í kuldum. Hvernig haldið þið, að handleggirnir litu út, ef þeir
sættu sömu meðferð og vesalings fæturnir? Nei, þið sem hafið
fallega fætur og viljið, að þeir verði fallegir, verðið að klæða
ykkur eftir veðrinu.
Og þið, sem hafið haft granna og fallega fætur, en eigið ekki
því láni að fagna lengur, meg-
ið ekki draga það að fá bót á
þessu hjá fótasérfræðingum.
Þeir geta hjálpað ykkur. Drag-
ið þetta ekki, þar til í óefni er
komið. Því erfiðara er að
lækna það. Fótunum verður að
forða frá kulda eins og öðrum
líkamshlutum.
II. Líkþorn fáið þið af of
litlum skóm, sem þrengja að
tánum. Gangið því aldrei í of
litlum skóm og takið ykkur oft
fótaböð. Varið yður að láta
grafa í líkþornum, það getur
verið óskaplega kvalarfullt.
Leitið aðgerðar í tíma, því að
líkþornum er hægt að eyða.
in. Niðurgrónar neglur er
mjög algengur kvilli og stafar
oftast af því, að fólk kann ekki
að klippa neglurnar. Neglurn-
ar á að klippa þvert fyrir. Ef
þið hafið of þykkar og harðar
neglur, skuluð þið fara til fóta-
sérfræðings strax, því að hann
hefir verkfæri til þess að lag-
færa þær. Það er þýðingar-
laust að láta taka slíkar negl-
Haustdragt. Hún er úr brúnu efni ur a^ ’ Þv* Þær koma hér um
með breiðum röndum og með skinn- bil undantekningarlaust jafn
kiaga' slæmar eða verri aftur.
IV. Hörð húð
(sigg) stafar af
því, aðfæturnireru
ekki baðaðir nógu
oft, og húðin er of
hörð. Takið ykkur
helzt fotabað a Herra Guðmundur Finnbogason, verkstjóri, og
hveriu kvöldi með brúður hans, ungfrú Valborg Sigurðardóttir. —
, _ . , (Sigurður Guðmundsson tók myndina).
goðn sapu — græn-
sápa er ágæt —, þurrkið þá og nuddið með grófu handklæði.
Ágætt er að bera á fæturna feit smyrsli eða lanolíu.
V. Ef fætur yðar eru alveg heilbrigðir, ættuð þér ekki að
finna til þreytu eða óþæginda í þeim frekar en annars staðar.
Ef þið þreytist af að ganga eða standa, er eitthvað að fótum
yðar. Þreytan gæti t. d. stafað vaf ilsigi, sem er slæmur fóta-
kvilli og ákaflega algengur að verða. Fólk getur fengið ilsig
á öllum aldri. Bezta ráðið við ilsigi er að nota ilstoðir, sem eru
eingöngu úr leðri. Þær eru léttar og liprar fyrir hina sjúku
fætur og fara vel í skónum.
Góð morgunæfing.
Standið beinar, teygið
handleggina upp, beygið
ykkur hægt áfram —
hnén bein — og réttið
handleggina út.
Stofa handa ungum hjónum. Hún er ekkert íburðarmikil, en ljómandi lagleg.
Takið eftir stóru blómunum á borðinu.
Nú þegar eru fyrstu tízkuhattar haustsins að koma. Stórar fjaðrir
verða mikið notaðar til skrauts.