Vikan - 17.10.1940, Page 15
VIKAN, nr. 42, 1940
15
Bréfskólinn.
Vikan hitti að máli þá jón Gauta og
Jón Á. Bjarnason og spurði tíðinda um
bréfskólann, er þeir hafa stofnað hér í bæ.
Vér spurðum: „Hve langt er síðan þið
fenguð hugmyndina um að stofna til slíks
skóla?“
„Síðan eru nú bráðum tvö ár, enda þótt
lítið hafi verið um framkvæmdir fyrst
Jón Á. Bjamason.
framan af, sökum þess að við höfðum þá
báðir miklum önnum að gegna við önnur
störf. Fyrir tæpu ári síðan byrjuðum við
hins vegar á nauðsynlegum undirbúningi,
samningu kennslubréfa ásamt nokkurri
auglýsingastarfsemi, til þess að leita hóf-
ana með, hvernig slíkum skóla kynni að
verða tekið.“
,,Er nokkuð samband eða samvinna á
milh skóla ykkar og bréfskóla Sambands
ísl. samvinnufélaga, sem nú er að hefja
starfsemi hér í bæ?“
„Ónei, ekki er það nú. Okkur var með
öllu ókunnugt um að slík starfsemi væri
í uppsiglingu hjá S.I.S., þar til seinni hluta
s. l. vetrar, að forstöðumaður skólans
hringdi til okkar og tilkynnti okkur að
S.Í.S. hefði nú ákveðið að byrja sams kon-
ar skóla og við hefðum verið að auglýsa
að undanförnu.“
„Hvernig er bréfskólakennslu hagað og
hverjir eru helztu kostir hennar?“
„Bréfskólar hafa verið starfræktir mörg
undanfarin ár víða um lönd og átt hvar-
vetna miklum vinsældum að fagna. Enda
er svo komið að varla er sú námsgrein til,
sem ekki má nema í bréfskóla.
Kennslunni er þannig hagað, að hverju
námskeiði er skipt niður í fleiri eða færri
bréf og fylgja hverju bréfi verkefni, sem
nemandanum er ætlað að leysa úr og senda
síðan skólanum til leiðréttingar. Þannig er
t. d. bókfærslunámskeið okkar, sem veitir
fullkomna tilsögn í tvöfaldri bókfærslu, í
20 kennslubréfum, eða samtals nokkuð á
annað hundrað prentaðar síður. Nemand-
anum eru send 2 fyrstu kennslubréfin
ásamt verkefnum. Þegar nemandi hefir
kynnt sér og lært efni fyrsta kennslubréfs-
ins til hlítar, leysir hann úr verkefnum
bréfsins, og sendir þau til skólans. Skól-
inn athugar úrlausnirnar, leiðréttir þær,
gefur skýringar á því sem óljóst hefir ver-
ið og endursendir þær ásamt þriðja
kennslubréfi. Meðan þessu fer fram, hefir
nemandinn annað kennslubréfið. Þannig er
haldið áfram, koll af kolli, að nemandinn
hefir alltaf eitt bréf handa á milli og þarf
því aldrei að vera iðjulaus. Hversu ört
námið gengur er algjörlega undir nemand-
anum sjálfum komið. Aðalkostir slíkrar
kennslu eru, að nemandinn yenst á að
vinna að nokkru leyti sjálfstætt og setja
fram hugsanir sínar á skýran og skilmerki-
legan hátt. Kennslan
er ennfremur ótíma-
bundin og óstaðbund-
in, þ. e. skóhnn nær
til allra heimila og
nemendur geta iðkað
námið á heimilum
sínum og í frístund-
um. Nemandinn þarf
því ekki að yfirgefa
heimili sitt og það
sem mestu varðar er,
að hann getur gegnt
daglegum störfum
sínum og aflað sér
lífsviðurværis meðan
á náminu stendur. T. d. má nefna, að í
bókfærslunámskeiði _______________________
okkar taka nú þátt
menn suður í Kefla-
vík, aðrir austur á
Seyðisfirði o. s. frv.
Kennsluaðferð þessi
er því bæði hentug
og ódýr, þegar allra
kosta er gætt og
hentar jafnt ungum
sem gömlum.
Jón Gauti.
Lögreg'luþjónninn, sem stjómaði umferðinni á
hominu á Austurstræti og Pósthússtræti hefir
keypt sér jörð í sveit.
Svör við spurningum á bls. 2:
1. Vizka.
2. Howard Hughe, á þrem sólarhringum og
nítján klukkustundum.
3. Ljóðið Davíð frá Fagraskógi, lagið Karl Ó.
Runólfsson.
4. XJnnsteinn Ólafsson.
5. Gyðja ástar- og frjósemis (hjá Grikkjum).
6. 19. jan. 1915, með Zeppelin-loftfari.
7. Bismarck. Hann sagði í ræðu 30. sept. 1862:
Stærstu viðfangsefni verða ekki útkljáð með
orðum eða atkvæðagreiðslum, heldur með
blóði og jámi.
8. Bergur Jónsson.
9. Fjóra. Einn í vesturbænum, tvo í austur-
bænum og einn í Laugarneshverfi.
10. Norskt strokhljóðfæri í laginu eins og fiðla,
með 4 málmstrengjum, sem liggja undir
fiðlustrengjunum. Hún var fyrst búin til í
Harðangri um 1670.
Byltingar-
söngur.
Fá söngljóð hafa
haft eins mikil áhrif
á áheyrendurna og
„Amour sacré de la
patrie“, þegar það
var sungið í Brussel
við sýnigu á „Mál-
leysingjanum frá
Portici". Áhorfend-
ur fylltust svo mikl-
um eldmóði við að
heyra kvæðið sung-
ið, að þeir rifu stól-
fætur og bök úr
stólaröðunum og
þustu út á götu.
Syngjandi og æp-
andi æddi mann-
f jöldinn eftir götun-
um og hófu í raun
og veru þá nótt upp-
reisnina, sem leiddi
til aðskilnaðar Belg-
íu og Hollands.
Tilkynning
Sakadómarinn í Reykjavík vill vekja athygli al-
mennings á því, að nauðsynlegt er að þeir, sem
hafa fram að bera kvartanir á hendur einstakra
hermanna úr brezka setuliðinu, gefi eftir föngum
það greinilegar upplýsingar, að rakið verði, hver
viðkomandi hermaður er. 1 því sambandi er fólki
bent á að taka eftir og lýsa einkennismerkjum á
axlaborðum og húfum hermanna.
Sérstaklega er fólk áminnt um að taka eftir og
setja á sig einkennisnúmer herbifreiða, er í um-
ferðaslysum lenda, með því að ógjörningur getur
orðið að finna bifreiðina ella. Einkennisnúmer her-
bifreiða eru máluð beggja vegna á vélarkassa bif-
reiðanna og eru auk þess aftan á þeim flestum.
Jafnframt einkennisnúmerinu er nauðsynlegt að
tilgreina númer, sem málað er á plötu framan á bif-
reiðinni, svo og lit plötunnar.
Er fólki ráðlagt að skrifa sem fyrst niður sér til
minnis athuganir sínar á framangreindum ein-
kennum og öðru því, er þýðingu hefir.
Ennfremur er það nauðsynlegt, að allar slíkar
kærur og kröfur séu bornar fram strax og þau
atvik, sem kvartað er undan, verða kunnug, svo
að hægt sé að hefja rannsókn tafarlaust, því að
allur dráttur á því að hafist sé handa, torveldar
alla rannsókn mjög og getur orðið þess valdandi,
að mál upplýsist ekki.
Leiðbeiningar þessar eru birtar í samráði við
brezku herstjórnina.
Reykjavík, 14. okt. 1940.
Jónatan Hallvarðsson,
sakadómari.