Vikan - 07.11.1940, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 45, 1940
Það var
á sunnudegi . . .
Margir afdrifaríkustu atburðir síð-
ustu ára hafa átt sér stað á sunnu-
dögum, eins og eftirfarandi dæmi
sýna:
Sunnudaginn 18. apríl 1906 hófst
hinn mikli jarðskjálfti og bruni í San
Francisco í Bandaríkjunum.
Sunnudaginn 15. júlí 1909 flaug
flugmaðurinn Bleriot fyrstur manna
yfir Ermarsund.
Sunnudaginn 14. apríl 1912 fórst
,,Titanic“, sem þá var stærsta skip
heimsins, eftir að hafa rekizt á haf-
ísjaka á Atlantshafi.
Sunnudaginn 28. júní 1914 var tek-
inn höndum morðinginn, sem myrti
Ferdinand erkihertoga í Serajevo, en
það tilræði kom af stað heimsstyrj-
öldinni 1914—18.
Á páskasunnudag 1916 hófst írska
uppreisnin, en brezkar hersveitir voru
sendar til þess að bæla hana niður.
Sunnudaginn 9. nóvember 1918
lagði Vilhjálmur Þýzkalandskeisari
niður völd og flýði til Hollands.
Sunnudaginn 16. júní 1919 lentu
Brown og Alcock í Irlandi eftir að
hafa flogið í fyrsta skipti yfir At-
lantshaf.
Vitið pér pað?
1. Hvað þýðir nafnið Súsanna?
2. Hvenær synti danska stúlkan
Jenny Kammersgaard frá Gedser
til Warnemiinde?
3. Hvað heitir höfuðborg Aibaníu
og hve marga íbúa hefir hún?
4. Við hvaða á í Þýzkalandi er
Lorelei-kletturinn ?
5. Hverjir eru þingmenn Árnes-
inga?
6. Hvað heitir furstadæmið, sem er
milli Sviss og Austurríkis?
7. Hvað kalla Rússar hundraðasta
hluta úr rúblu, mynt þeirra?
8. Hvar nam land Þorsteinn Söl-
mundarson ?
9. Hvaða land átti Feneyjar 1865?
10. Hverjir reistu Karthago?
Sjá svör á bls. 15.
Sunnudaginn 5. október 1930 fórst
brezka risaloftskipið, R. 101, í Frakk-
landi. Fjörutiu og átta menn létu
lífið í slysinu.
Sunnudaginn 17. febrúar 1934 hrap-
aði Albert Belgiukonungur í fjall-
göngu og lét lífið.
Sunnudaginn 18. júlí 1936 braust
út spænska borgarastyrjöldin, sem
stóð eins og menn vita, í þrjú ár.
Sunnudaginn 3. september 1939 var
Bretland lýst í stríði við Þýzkaland.
Sunnudaginn 3. nóvember 1940 var
í fyrsta skipti skotið úr loftvarna-
byssum á flugvél yfir Reykjavík.
Köttur og hindarkálfur.
Hindin er í hópi hinna styggustu
dýra. Hér er mynd af þriggja vikna
gömlum hindarkálfi, sem er sérlega
vel uppalinn heimalningur. Köttur-
inn er bezti félagi hans og eru þeir
að lepja mjólk í mesta bróðerni.
Skrítlur.
Grænlandsfarinn var að segja frá:
„Hvað átti ég til bragðs að taka?
Báðir ísbirnirnir komu æðandi að
mér og ég var byssulaus. Án þess
að hika, greip ég fyrir kverkarnar
á þeim báðum, og —“
„En hvernig gátuð þér það? Þér
sem eruð einhentur?"
„Veit ég það,“ sagði Grænlands-
farinn, „en við slík tækifæri gleymir
maður svoleiðis smámunum".
Efrss blaðsins m. a.:
Lómar og skúmar, skráð af
Helga Jónssyni frá Bráðræði.
Liithauen, tvær myndasíður.
Hann vildi ekki kvænast, smá-
saga eftir Sheila Burns.
Óþekktur vísindamaður, sem
skóp líf úr bræddum steini,
eftir John Beevers.
Framhaldssagan.
Prinsinn af Arkadíu,
barnasaga.
Heimilið. — Gissur og Rasm-
ína. — Skrítlur. — iVIaggi og
Raggi. — Erla og unnustinn.
— Krossgáta og m. m. fl.
Dómarinn: „Það hefir sannast á
yður, að þér hafið myrt með köldu
blóði foreldra yðar. Hafið þér nokk-
uð það fram að bera, sem gæti mild-
að hegninguna?“
Ákærði: „Ekki annað en það, að
ég er föður- og móðurlaus einstæð-
ingur.“
HEISVIILISBLAíj
Ritstjórn ogafgreiðsla: Kirkju-
stræti4. Sími 5004. Pósthólf 365.
Verð: kr. 2,00 á mánuði,
0,50 í lausasölu.
Auglýsingum í Vikuna veitt
móttaka í skrifstofu Steindórs-
prents h.f., Kirkjustræti 4.
Prentsm.: Steindórsprent h-.f.
Varnings og starfsskrá
Kaupskapur.
Nýja fornsalan, Aðalstræti 4,
kaupir allskonar húsgögn og
karlmannafatnað gegn stað-
greiðslu.
Saumastofur.
TAU OG TÖLUR
Lækjargötu 4. Sími 4557.
Saumum allskonar kjóla og
kápur. Aðalbjörg Sigurbjörns-
dóttir, Hverfisg. 35. Simi 5336.
Frímerki.
Itaupi notuð íslenzk frímerki.
Sigurður Kjartansson, Lauga-
vegi 41. Sími 3830.
Notuð ísienzk frímerki kaupi
ég ávallt hæsta verði. Duglegir
umboðsmenn óskast um land
allt. Há ómakslaun. Sig. Helga-
son, frím.kaupm. Pósthólf 121,
Reykjavík.
Stimplar og signet.
Gúmmístimplar eru búnir til
með litlum fyrirvara. Sömu-
leiðis signet og dagsetningar-
stimpiar. Steindórsprent h.f.
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Signeta-gröft og ýmiskonar
annan leturgröft annast Björn
Halldórsson, Laufásveg 47,
Reykjavík,
Skó- og gúmmíviðgerðir.
Allar skóviðgerðir vandaðar og
vel unnar. Júlíus Jónsson, Aðal-
stræti 9.
Bækur - Blöð - Tímarit
V i k a n er heimilisblaðið yðar.
Gerist áskrifandi og mun blað-
ið þá verða sent yður heim á
hverjum fimmtudegi. Afgreiðsl-
an er i Kirkjustræti 4, Reykja-
vík. Sími 5004. Pósthólf 365.
Viðskiftaskráin 1940 fæst í öll-
um bókaverzlunum. Nauðsyn-
leg bók öllum þeim, er við
kaupsýslu fást.
Bon-bækur fyrir hótel og veit-
ingastofur fást í Steindórs-
prenti h.f., Kirkjustræti 4. Sími
1174.
Vasa-orðabækur: Islenzk-ensk
og ensk-íslenzk fást í öllum
bókaverzlunum. Hver sá, sem
þessar bækur hefir um liönd,
getur gert sig skiljanlegan við
Englendinga, þótt hann kunni !
ekki ensku. Verð kr, 3,00 og 4,00.
|
Verndið heilsu barnanna!
BARNSÐ
bók handa móðurinni.
Eftir Davíð Scheving Thor-
steinsson lækni.
Ýmislegt.
Borðkort
ýmis konar, svo I
sem: Tvöföld,
skáskorin og
ýmsar aðrar
tegundir fást í Steindórsprenti, j
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Ef þér gerist áskrifandi að
Vikunni, fáið þér á hverjum
fimmtudegi fjölbreytt og
skemmtilegt heimilisblað. 1 því
er eitthvað handa öllum: Fróð-1
Félagið INGÓLFUR
MXOMC
3>rcrác&
Tilgangur félagsins er að
gefa út, eftir því sem
efni leyfa, rit, er heitir:
Landnám Ingólfs,
safn til sögu þess.
Félagið hefir þegar gef-
ið út III bindi í 10 heft-
um. Þessi rit fá meðlimir
ókeypis. Ennfremur hefir
félagið gefið út Þætti úr
sögu Reykjavíkur. Bók
þessi fæst hjá bóksölum.
Þeir, sem gerast vilja
meðlimir, snúi sér til af-
greiðslunnar: Steindórs-
prent h.f., Kirkjustræti4.
Reykjavík.
Kaupi og sel allskonar
verðbréf og fasteignir.
Garðar Þorsteinsson
Símar 4400 og 3442. Vonarstræti 10.
legar greinar, skemmtilegar
sögur, fréttamyndir, barnasög-
ur, framhaldssaga, heimilissíða
o. m. fl. — Hringið í síma 5004
og gerist áskrifandi, eða skrif-
ið: Vikan, Pósthólf 365, Rvík.
Hótel Borg,
Pósthússtr. 11.
Sími 1440.
Gistihús. Kaffi- og matsöluhús.
Hliðstætt beztu erlendum
hótelum.
Sendið auglýsingar
í Vikuna í
Steindórsprent h.f.,
Kirkjustræti 4.
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.