Vikan


Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 1

Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 1
Frú Anne Morrow Lindbergh, sem flestir munu kannast við, meðal annars frá því að hún kom hingað til lands í flugvél ásamt manni sínum, Charles Lindbergh, árið 1934, skrifaði þessa grein í ameríska tímaritið „Reader’s Digest“ í janúar 1940. Stríðið var þá fyrir skömmu byrjað, og þó að al- menningsálitið í Bandaríkjunum hafi þá, eins og nú, vafalaust verið á bandi Breta, þá var þó andstaðan gegn hvers konar þátttöku í stríðinu mjög sterk. Þessi afstaða hefir, eins og kunnugt er, breytzt mjög Bretum í vil, en Lindberghs-hjónin eru bæði mjög eindregnir einangrunarsinnar, og hafa þau í því sam- bandi fengið að kenna á fallvaltleik lýðhyllinnar, því að þær feikna vinsældir, sem þau nutu, hafa mjög þorrið í seinni tíð, og það jafnvel svo, að Lindbergh sagði af sér starfi sínu í þágu flugflota Bandaríkj- anna nú fyrir skömmu, í mótmælaskyni gegn árásum, sem hann sætti í blöðum og af hendi Roosevelts forseta. Af því að þessi grein er sýnilega skrifuð af einlægni og sannfæringu og túlkar skoðanir, sem íslenzkir lesendur hafa nú fá tækifæri til að kynnast, er VIKUNNI ljúft að birta hana, án þess þó, að hún á neinn hátt geri skoðanir frúarinnar að sínum skoðunum. Sjá grein á bls. 3. « Myndir þessar af eyðileggingu stríðsins eru eins og hrópandi ákall um frið. Þær eru sýnilegt tákn þeirra hörmunga, sem frú Lind- bergh biður í grein sinni, að mannkyninu megi verða forðað frá. — Efri myndin er frá London, tekin ofan af tumi St. Pauls-kirkj- unnar, og sýnir eyðilegginguna allt í kringum kirkjuna. Sjálf hefir hún enn ekki orðið fyrir neinu tjóni. Hin myndin er frá borginni Tours í Frakklandi. Sú borg var fyrsti aðsetursstaður frönsku stjómarinnar eftir að hún flúði frá París, og eftir þessari mynd að dæma er þetta sú borgin, sem orðið hefir fyrir mestri eyðileggingu í stríðinu, jafnvel meiri en iðnaðarborgin Coventry í Englandi.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.