Vikan


Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 4

Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 4
4 VIKAN, nr. 20, 1941 og fyrirgefa beitingu þess. Ég hata ofbeldi eins mikið og þér, eins mikið og Englend- ingar og Frakkar. Ég hata það jafnt í smáu sem stóru, jafnt í skiptum þjóða sem einstaklinga. Ég þoli ekki að sjá nokkurn mann beita annan mann ofbeldi, hvorki líkamlegu, andlegu né vitsmunalegu. Það er ein ástæðan til þess að ég skrifa þetta, en tala það ekki. Ef þér eruð með mér í herbergi, verðið þér að hlusta á mig fyrir kurteisissakir. En enginn er neyddur til að lesa þessa grein. Þau verk hafá verið framin undir nú- verandi stjórn Þýzkalands, sem jafn fjar- lægum áhorfendum og okkur hér í Ame- ríku hefir fundizt eins og högg í andlitið. „Þetta get ég aldrei fyrirgefið þeim,“ höf- um við hugsað. Það er ýmislegt í stjórnar- fari þeirra, sem við hér vestra getum aldrei aðhyllzt. Þessar aðferðir eru ekki nýjar. Bæði ofbeldi gagnvart einstaklingum og frelsiskúgun hefir blómgvazt á öllum tím- um byltinga og umróts. Þjóðerniskúgun er heldur ekki nýtt fyrirbrigði. Allar stór- þjóðir og öll heimsveldi hafa rutt sér braut með þessum aðferðum, svo fyrirlitlegar sem okkur finnast þær vera nú. Brezka heimsveldið, stærsta, réttlátasta og frið- samasta heimsveldið, sem sagan getur um, var byggt upp með ofbeldi. Það þarf ekki annað en lesa sögu Indlands, Afríku og Kanada til að sannfærast um það. Jafnvel okkar eigið ríki var byggt á ofbeldi og kúgun, sem hófst með síendurteknum svik- um á loforðum til handa Indíánum. Og hvernig fengum við hin víðáttumiklu Suð- vesturríki frá Mexico, ef ekki með ofbeldi ? Spurningin er ekki, hvort líða eigi þess- ar aðferðir, heldur hvort þær verði upp- rættar með þeim aðferðum, sem nú er beitt. Hvort styrjöld muni útrýma þeim eða magna þær, hvort stjórn nazista sé orsökin að öllum vandræðum heimsins og hvort skapast muni friðelskandi og ánægð Evrópa, ef henni verði útrýmt. Það er mikið talað um það, að þessi styrjöld sé ekki háð gegn þýzku þjóðinni, heldur gegn „Hitlerisma". Er Hitler þá slíkur æfintýra- og glæfamaður, sem flestir virðast halda? Er hann og stjórn hans ekki miklu fremur persónugerð sál þjóðar, sem fyllzt hefir gremju vegna þeirrar auðmýktar, sem hún hefir orðið að þola? Er friðurinn fenginn, ef þjóðin verður sigruð enn einu sinni og leiðtogar hennar teknir frá henni ? Eða verður það aðeins til þess að aðrir Hitlerar rísa upp af sæði hatursins eftir önnur tuttugu ár? Það skiptir í þessu sambandi engu máli, hvort okkur finnst þessi andi réttlætan- legur eða hvort við dáumst að honum. Hann er staðreynd, sem ekki er hægt að loka augunum fyrir. Það er ekki hægt að drepa anda. Það er ekki hægt að loka hann inni. Hann gengur aftur eins og andi Hamlets. Andi Hitlers mun ásækja Evrópu kynslóð eftir kynslóð, ef gangur þessarar styrjaldar og friðarskilmálar verða svip- aðir og í síðustu styrjöld. Óskin um skjótan endi á þessum ófriði er ekki sprottin af löngun til að lítilsvirða þær hugsjónir, sem Bretar og Frakkar segjast vera að berjast fyrir. Ég trúi líka á þær hugsjónir. Ég hefi fulla ástæðu til þess. Ég hefi lifað við það réttlæti, frelsi og frið, sem ríkir í Englandi og Frakk- landi. Það er aðdáun mín á þessum verð- mætum, sem vekur hjá mér þá uggvæn- legu spurningu, hvort þessar tvær þjóðir muni bera gæfu til að lifa af langa og skæða styrjöld. Naumast nokkur maður virðist gera ráð fyrir, að þessi styrjöld verði skammvinn, ef hún verður háð þar til yfir lýkur. Og hvernig getur maður varist þeirri hugsun, að ólíklegt sé, að brezka heimsveldið, „hin brezka lífslöngun“, brezka stjórnin, sem við höfum dáðst svo mikið að, muni lifa áfram í sínu núverandi formi, eftir lang- vinna og skæða styrjöld? Að franska lýð- veldið og sú frelsisást, sem skóp það muni halda velli? Að nokkur verði sigurvegari í þessum hildarleik, nema ef vera skyldi sá andi, sem nú ræður ríkjum í Rússlandi, og hver óskar þess? Þetta þarf þó ekki að tákna endalok sið- menningarinnar. Jafnvel þó að þessi styrj- öld verði háð þar til báðir aðilar verða orðnir örmagna, jafnvel þó að menning okkar líði undir lok, mun önnur rísa upp af henni. Upp af þeirri ringulreið, sem nú ríkir í Evrópu, mun rísa ný Evrópa. En það mun taka langan tíma, og það mun kosta óumræðilegar þjáningar og líkam- legar og andlegar fórnir óteljandi manna og kvenna. ' Er nokkur leið út úr þessu ? Það er enn- þá blaktandi von um skjótan frið. Við horfum á þessa flöktandi skímu út við sjóndeildarhringinn, eins og flugmaður, sem villst hefir í náttmyrkri, mænir á vitaljós, sem ef til vill táknar öruggan lendingarstað. Maður horfir á þetta eins og ég horfði einu sinni úr flugvélinni okkar, þegar við höfðum lent í þoku í Alpafjöllunum, á örlítinn heiðríkjublett langt frg.mundan. 0, hve hann var dásam- legur þessi blái blettur í margra mílna fjarska! Við hann var lífsvon okkar tengd, ef okkur aðeins tækist að komast þangað áður en nóttin skylli á. Þannig blikar hin þverrandi friðarvon nú. Gerið yður í hugarlund, hverja þýðingu það hefði, að friður yrði saminn í byrjun stríðsins, en ekki í lok þess. Ef honum væri komið í kring áður en milljónum manns- lífa hefir verið fórnað, orku eytt og béiskju sáð í hjörtu milljóna manna. Friður í byrj- un stríðsins mundi gefa vonir um lausn á vandamálum Evrópu. Vonin, sem tengd er við framtíðina, er eins og von móður, sem situr við sjúkra- beð barns síns. ,,Ó, guð, ef barninu mínu batnar, skal ég gera allt, sem í mínu valdi stendur til að gera líf þess fallegt og göf- ugt, ef það aðeins fær að lifa! “ Horfið á þessa framtíð og íhugið hana ... Látið hugann fljúga andartak á móti heiðríkjublettinum, sem ég hefi málað upp fyrir yður, blettinn, sem ef til vill er tákn friðarins. Það yrði ekki óumbreytanlegur friður. Það gæti jafnvel orðið eins konar stríð — en stríð, sem vert væri að heyja, þung og erfið barátta fyrir endurreisn og umbótum. Heimurinn stendur í dag andspænis vandamálum, sem eru eins alvarleg og styrjöld og miklu verðugri fórna. Ekkert af þessum vandamálum verður leyst í þessu stríði. Við skilum þeim óleystum í hendur barna okkar, þó að skilyrði þeirra til að leysa þau verði enn verri en okkar. Og þó er framtíð mannkynsins ef til vill undir lausn þeirra komin. ,,í fyrsta skipti í sögu mannkynsins,“ segir dr. Carrel í bók sinni „Man, the Unknown“, „er hrörnandi menning fær um að kryfja til mergjar or- sakir hnignunar sinnar. I fyrsta skipti hef- ir hún til umráða ótæmandi möguleika vís- indanna. Notfærir hún sér þessa þekkingu og þetta vald ? Það er eina von okkar til að '"sleppa, að komast hjá sömu örlögum og Thin ýmsu menningarskeið fyrri alda 'hlutu." En, eins og dr. Carrel bendir á í bók sinni, er máttur vísindanna ekki hið eina nauðsynlega fyrir menningu vora. Móðir- in, sem biður við sjúkrabeð barnsins síns, veit þetta. Það er ekki af hvöt til að múta Framhald á bls. 13. Allir þeghar Þýzkalands, jafnt ungir sem gamlir, konur sem karlar, verða að leggja sinn skerf til þess að stríðið verði rekið með sem mestum árangri. Þessar ungu meyjar hé'r á mynd- inni eru að læra að mjólka, svo að þær geti leyst af hólmi bænd- urna, sem kallaðir hafa verið í herinn. Júgrið er úr gúmmí og vökvinn í því er vatn en ekki mjólk.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.