Vikan


Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 7

Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 7
VIKAN, nr. 20, 1941 7' Poirot er nafnið á frægri persónu í skáldsögum Agatha Christie. Hann er belgískur leynilögreglumaður — hliðstæður Sherlock Holmes í sögum Conan Doyle’s, — sem sezt hefir að í London og getið sér mikinn orðstír fyrir uppljóstrun glæpa, sem aðrir hafa orðið frá að ganga án nokkurs árangurs. 2 Ný framhaldssaga: Dularfullur atburður Poirot-sakamálasaga eítir AGATHA CHRISTIE. „Verið þér sælir og framvegis skal ég gæta betur tungu minnar.” ,,Já, en má ég ekki fylgja yður um borð í skipið ?“ „Þakka yður fyrir, en það er ekki víst að ég fari með skipinu. Ég verð að minnsta kosti að reyna að finna systur mína fyrst." „Já, en við hittumst þó vonandi aftur? Mig . .. . ‘, ég hikaði, „mig hefði langað til að kynnast systur yðar líka.“ Við hlógum bæði. „Það er fallega hugsað af yður .... Það skal ég segja henni. En ég býst ekki við, að við hitt- umst aftur. Þér hafið verið skemmtilegur ferða- félagi, einkum þegar tekið er tillit til þess, hvemig kynni okkar hófust. En það, sem lesa mátti í svip yðar þá, var alveg rétt. Ég er ekki af sama sauðahúsi og þér — svo að við eigum alls ekki saman. Það er mér fullkomlega ljóst . .. . “ Nú skipti hún allt i einu um svip. Gázkinn og léttlyndið var horfið. Það var eins og hún væri reið og vildi hefna sín . .. „Jæja, verið þér sælir!“ sagði hún og varð ögn léttari á brúnina. „Ætlið þér ekki að segja mér, hvað þér heitið?“ sagði ég, þegar hún sneri sér frá mér. Hún leit við og brosti yndislegu brosi: „Öskubuska," sagði hún og hló. Á þessu augnabliki gat mig ekki rennt grun í, hvar og hvemig ég mundi hitta „Öskubuska" aftur. 2. KAPÍTULI. Hjálparbeiðni, Morguninn eftir, klukkan fimm mínútur yfir níu, gekk ég inn í sameiginlegu dagstofuna okkar til þess að borða morgunverð. Poirot, vinur minn, var alltaf stundvís og var nú að borða annað eggið. Hann brosti vingjarnlega til mín, þegar ég kom. „Þér hafið sofið vel, er það ekki? Og búnir að jafna yður eftir sjóferðina. Það er dásam- legt, hvað þér mætið réttstundis núna. Fyrir- gefið.bindið fer ekki vel á yður. Má ég laga það?“ Ég hefi oft lýst Hercule Poirot. Hann er lítill vexti og óaðfinnanlegur í ’klæðaburði, loðbrýndur og með mikið yfirskegg. Þegar hann reiddist fengu augun á sig grænleitan blæ. Hann vildi hafa röð og reglu á öllum hlutum og var næstum óþægilega nákvæmur og krafðist samsvörunar í öllu. Sem leynilögreglumaður lagði hann litla áherzlu á að rekja spor og athuga vindlingaösku og hélt því fram að slíkir hlutir út af fyrir sig, stuðluðu sjaldan að því að leysa viðfangsefni leynilögreglumannsins. Þegar um þetta var að ræða setti hann upp sjálfbirgingssvip, benti fingr- inum á enníð og sagði með hinu mesta sjálfs- trausti: „Hinn raunverulega vinna fer hér fram, kemur innan frá. Það eru litlu, gráu heilasell- umar — minnist þess ávallt, vinur minn, að það eru litlu, gráu heilasellumar.“ Ég settist og lét orð falla um það, að klukku- Forsaea t Hercule Poirot, leynilög- ** * reglumaður, hefir hvatt félaga sinn til að skrifa niður frásögu af dularfullum atburði, sem gerðist í námunda við „Villa Geneviéve" í Frakklandi, en þeir bjuggu saman í London, er þetta átti sér stað. Frásögumaður byrjar á því, að hann hittir í járnbrautarlest, einkennilega stúlku, sem segist vera leikkona. Þau eru að skilja á jámbrautarstöðinni og stúlkan réttir honum hendina til kveðju. tíma sjóferð frá Calais til Dover væri ekki um- talsverð." Poirot mótmælti þessu kröftuglega. „Jú, jú! Einn einasti timi getur borið í skaut svo mikla reynslu, að manni finnst hann hafa staðið yfir í marga klukkutíma! Segir ekki eitt af skáldunum ykkar Englendinga, að tíminn sé ekki mældur í klukkustundum heldur hjarta- slögum?" „Jú, en Browning mun hafa átt við eitthvað rómantískara heldur en sjóveikina.“ „Já, af því að hann var Englendingur, eylend- ingur, sem óttaðist ekki sundið. Ó, þið Englend- ingar! Við hinir emm ólikir ykkur. Kona, sem ég þekki flúði í byrjun heisstyrjaldarinnar til Ostende. Þar biluðu taugar hennar. Nú gat hún ekki flúið lengra nema fara yfir Norðursjóinn! Hún óttaðist hafið! Hvað átti hún að gera? Óvinurinn færðist nær með hverjum deginum sem leið. Reynið að setja yður í spor hennar!“ „Hvað gerði hún?“ spurði ég forvitinn. „Maðurinn hennar var, sem betur fór, hygg- inn náungi. Það hafði engin áhrif á hann, að taugar hennar voru ekki í lagi. Hann nam hana bara á brott! Auðvitað var hún nær dauða en lífi, þegar hún kom til Englands, en hjarnaði þó von bráðar við.“ „Poirót hristi höfuðið grafalvarlegur. Ég gat varla stillt mig um að hlæja. „Kom ekkert sérstakt með póstinum?" spurði eg. ,,Nei!“ sagði Poirot óánægður á svipinn. Ég hefi að vísu ekki athugað öll bréfin enn þá. En það er alveg hætt að ske nokkuð sérstakt. Stór- brotnir glæpamenn, sem kunna sitt handverk, virðast vera úr sögunni. Þau mál, sem ég hefi fengið í hendur að undanförnu, hafa verið ótta- lega leiðinleg. Aðalvinnan hefir verið að leita uppi tinda kjölturakka fyrir fínar frúr! Það síð- asta, sem var nokkurs virði, var málið út af Jardly-gimsteininum — og hvað er langt síðan það var, kæri vinur?“ Ég gat ekki annað en hlegið að því, hve hon- um leiddist þetta aðgerðarleýsi. „Verið þér nú ekki svona niðurdreginn, Poirot. Þetta lagast. Rífið upp öll bréfin. Hver veit nema eitthvert stórmálið sé í uppsiglingu! “ Poirot brosti og tók að opna bréfin hvert af öðru. „Reikningur," sagði Poirot, „og annar til! Ég virðist vera farinn að halda mér nokkuð mikið til í ellinni! Og hér er bréf frá Japp.“ „Svo!" Ég varð forvitinn. Japp var yfirlög- regluþjónn hjá Scotland Yard og hafði oftar en einu sinni fengið oltkur í hendur spennandi við- fangsefni. „Hann er að þakka mér fyrir hjálpina í • Aberystwyth-málinu. Mér þykir vænt um að hafa gert honum þennan greiða." „Hvemig þakkar hann yður?" spurði ég, ,,Á sinn sérstaka hátt auðvitað. Hann segir, að ég sé seigur eftir aldri og honum þyki vænt um að hafa getað látið mig fá svolitla vinnu." „Þetta var líkt Japp. Poirot hélt áfram að lesa bréfin. „Hér er beiðni um, að ég haldi fyrirlestur hjá skátum og annað frá greifafrú, sem eflaust ætlar að biðja mig um að finna kjölturakkann sinn. Og ..." Ég sá, að Poirot hafði séð eitthvað sérstakt í næsta bréfi, því að hann las það með mikilli athygli og rétti mér það ekki strax. „Þetta er öðm vísi en hitt allt, vinur minn. Lesið það sjálfur." Bréfið var ekki skrifað á enskan pappír og skriftin falleg og sérkennileg: „Villa Geneviéve," Merlinville-sur-Mer, Frakklandi. „M. Hercule Poirot! Ég þarf á duglegum leynilögreglumanni að halda og óska ekki eftir því að leita til hinnar opinberu lögreglu, af ástæðum, sem ég skal síðar skýra yður frá. Ég hefi heyrt að þér séuð mjög duglegur og hægt að treysta yður út í yztu æsar. Ég vil ekki skýra málið fyrir yður í bréfi í einstökum atriðum, en vegna leyndarmáls, sem ég geymi, óttast ég um líf mitt á hverjum degi! Ég er sannfærður um, að líf mitt hangir á þræði og bið yður þess vegna um að spilla ekki tímanum og koma strax til Frakklands. Ég skal láta bíl sækja yður til Calais, ef þér símið og látið mig vita, hvenær þér komið. Mér þætti ákaflega vænt um að þér legðuð öll önnur mál á hilluna og gengjuð um tíma alveg í mína þjón- ustu. Ég borga það, sem þér setjið upp. Þetta getur orðið löng vinna fyrir yður, því að ef til vill þurfið þér að ferðast til Santiago, en þar hefi ég lengi átt heima. Þér ákveðið sjálfur laun yðar. Um leið og ég endurtek, að málið þolir enga bið, kveð ég yður með virðingu P. T. Renauld.“ Fyrir neðan undirskriftina vár skrifað næstum ólæsilega: „1 guðsbænum, komið þér!“ Ég rétti Poirot bréfið aftur — og hafði fengið mikinn hjartslátt. „Loksins!" sagði ég. „Hér er eitthvað sérstakt á seiði." „Já, það held ég líka,“ sagði Poirot hugsandi. Framh. á bls. 15.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.