Vikan - 15.05.1941, Síða 8
8
VIKAN, nr. 20, 1941
Gissur og Rasmína fá heimsókn.
Gissur: Þetta var skemmtilegt ferðalag, en það er
nú samt gott að vera kominn heim og geta hvílt sig.
Að þurfa ekki að hugsa um áætlunarbíla, hótel, lestir
eða neitt, það er dásamlegt!
Rasmína: Þú ættir nú að skreppa niður í kjallara á
meðan þú ert í svoná góðu skapi og ná í ryksuguna.
Gissur: Nei, hvað er þetta? Kjallarinn er
fullur af vatni og rafmagnið er bilað ?
Rasmína: Æ, já. Ég gleymdi að hringja til
rafmagnsmannsins og pípulagningamajinsins.
Gissur: Síminn er bilaður, Rasmína.
Rasmína: Æ, já. Ég lét loka honum. Skrepptu í
næsta hús og hringdu á stöðina til að láta opna
hann.
Gissur: Ég verð víst að opna kommóðuna mína
með þessu sporjámi, ég finn hvergi lyklana mína.
Rasmína, hvar settirðu inniskóna mína?
Erla: Viltu fara með mína tösku upp líka,
pabbi ?
Gissur: Þá var skárra að bera sementspokana
hérna i gamla daga heldur en þennan skolla.
Rasmína: Viltu ekki koma hérna fram í eld-
húsið, þegar þú ert búin að þessu og setja upp
fyrir mig gardínurnar?
Rasmína: Guð minn góður! Hvað hávaði er þetta?
Þjónninn: Það kom maður, sem sagðist vera
frændi frúarinnar og á eftir honum kom heil hers<
ing af alls konar fólki.
Gissur: Frændfólk Rasminu!
Brandur: Það er ekki til neins að fara fram
í eldhús, það er ekki deigur dropi i kæiiskápn-
um. — Láki: Skyldu þau ekki ætla að bjóða
okkur til miðdegisverðar ? — Gunna: Skyldu þau
ekki hafa komið með neinar gjafir handa okkur?
— Labbi: Eigum við ekki að fá neinar kökur?
— Dódó: Mamma, Gógó braut kertastjakann. —
Stina: Didda, ég sá þig brjóta fatið. — Anna við
Rasmínu): Já, aumingja Dísa. Hún fékk liðagigt-
arkast á meðan þú varst burtu, og maðurinn
hennar hefir ekki unnið handtak, síðan hann
kom úr fangelsinu. — Siggi sífulli: Rasmína,
geturðu lánað mér bjórkollu? — Nonni: Lánaðu
mér baunabyssu, ég ætlá að vekja Stjána frænda.
— Gilli: Við skulum koma í slökkviliðsleik, ég
veit um slöngu og exi niðri í kjallara. —- Beggi
bót: Stundum finnst mér eins og þau kæri sig
ekkert um, að við séum að heimsækja þau. —
Sveina: Vertu nú ekki svona hörundssár, þó að
þér hafi verið fleygt út tvisvar sinnum. ;— Denni:
Fleygðu til mín hamri, Gosi, ég sé vasa, sem er
upplagt að brjóta. ----Keli: Veiztu hvar hann
geymir vindlana sina, Lási? -— Friggi: Heyrðu,
Gissur. Þú verður að hjálpa mér um tuttugu
kall núna, ég er alveg staurblankur.