Vikan - 15.05.1941, Qupperneq 9
VIKAN, nr. 20, 1941
9
Fréttamyndir.
Clarence K. Streit formaður í félagi alrikissinna í Bandaríkj-
unum sést hér á myndinni á fundi, sem haldinn var í New
York til þess að bera fram kröfu um að Bandaríkin gangi
í ríkjasamband við Kanada, Bngland, Irland, Suður-Afriku-
sambandið, Ástralíu og Nýja Sjáland. 2000 manns sátu fundinn.
Þessi mynd er af Daniel van
Voorhis, yfirmanni yfir landvörn-
um á þeim svæðum, sem liggja
að Carrabía-hafinu. — Á meðal
þeirra eru Panamaskurðurinn og
Puerto Rico.
Samanburður við mennina (í hvíta hringnum til
hægri) gefur góða hugmynd um hina gífurlegu
stærð Douglas B-19 flugvélarinnar, sem sést hér
á myndinni. Flugvélin hefir verið fjögur ár í
smíðum í Santa Monica í Californíu og hefir
220 feta vænghaf, gengur fyrir fjórum 2000
hestafla mótorum, getur flogið 7500 mílur án
þess að lenda og getur borið 18 smálestir af
sprengjum eða 120 manna hersveit með öllum
herbúnaði.
Þegar Roosevelt
forseti lagði af
stað til Executive
Mansion í Wash-
ington til þess að
sverja forseta-
eiðinn í þriðja
sinn, stökk Falla,
litla tikin hans
upp í bílinn til
hans og heimtaði
að fá að fara
með, en eftir
myndinni að
dæma virðistfor-
setinn ekki hafa
verið á sama
máli. Atburður-
inn er heldur
ekkert hvers-
dagslegur, því að
þetta er í fyrsta
skipti í sögu
Bandaríkjanna
að forseti er kos-
inn sá sami
þrisvar í röð.
I