Vikan - 15.05.1941, Page 10
10
VIKAN, nr. 20, 194L
Heimilið
Bakið
heima!
Hafrakex.
100 gr. smjörlíki, 500 gr. hafra-
mjöl, 2 matsk. sykur, 1 tesk.
hjartarsalt, 1 peli mjóik og hveiti.
Smjörlíkinu er blandað út í hafra-
mjölið, sykrinum, mjólkinni og
hjartasaltinu, jafnað saman við og
svo mikið hveiti hnoðað upp í það,
að hægt sé að fletja deigið þunnt
út. Skorið niður í hringa með glasi
og stungið með gaffli eða rifjámi.
Sett á smurða plötu og bakað við
hægan eld, þangað til það verður
ljósbrúnt.
Horn.
60 gr. smjörlíki, 500 gr. hveiti,
3 tesk. sykur, 3 tesk. gerduft,
1 peli mjólk.
Smjörlikið. er mulið út í hveitið.
Sykurinn og gerduftið bleytt upp í
mjólkinni og öllu þessu hnoðað sam-
an í deig og flatt út í kringlóttar
kökur á stærð við disk. Hringurinn
skorinn i 4 til 8 þríhyrninga, og
hverjum þríhyrning vafið saman svo
að mjói endinn komi utan á. Sett á
smurða plötu, smúrða með mjólk eða
vatni og bakað við mikinn hita. Ljúf-
fengt brauð bæði með kaffi og tei.
Ef vill má skera homið í sundur og
setja sultutau á milli.
Litlar tvíbökur
með rabarbarasúpu.
250 gr. smjörlíki, 600 gr. hveiti,
2 tesk. gerduft, 200 gr. sykur,
1 egg, 1 dl. súr rjómi (eða mjólk),
og ögn af kardemommum.
Hveitinu og gerduftinu er blandað
saman og smjörlikinu, sykrinum,
egginu og rjómanum bætt út í og úr
þessu hnoðað deig, sem elt er í litlar
bollur. Sett á smurða plötu og bakað
þangað til það verður ljósbrúnt. Boll-
umar skornar í sundur með beittum
hníf og þurrkaðar við hægan hita í
ofninum.
Byrjuð að leika aftur.
MILO
HEILDSÖLUaiROCIR:
ÁRNI JÖNSSON,
HAFNARSTft.5 REYKJAVÍK
Shirley Temple, sem öll böm þekkja,
er nú orðin ellefu ára og hefir lokið
bamaskólagöngu sinni. Hefir hún
tekið tilboöi um að leika í nokkmm
kvikmyndum með Mickey Rooney og
á að fá 20,000 krónur á viku í kaup.
Þegar hún var spurð að því, hvort
henni þætti gaman að eiga að fara
að leika aftur, svaraði hún: ,,Já, það
veit guð! Það var svo leiðinlegt i
skólanum.“
Þvoið sópvöndinn yðar einu sinni í
viku upp úr volgu sápuvatni. Hristið.
hann svo vel og hengið hann út til
þerris.
Meðferð ungbarna.
Flugurnar eru svarnir
óvinir allra ungbarna.
Það er kunnugt, að rykast getur
ofan í ílát bamsins, eins og önnur,
og getur enginn sagt það fyrir, hví-
líkt skaðræði bömum getur orðið að
slíku. En annað er nærri enn verra,
og það era flugurnar. Þau kvikindi
era mestu skaðræðisgripir og era
taldar svarnir óvinir allra ungbarna,
enda má telja áreiðanlegt, að þær
verða mörgu ungbarninu að aldur-
tila. Mörgum er hálfilla við, að flug-
ur setjist á matinn, sem þeir eru að
borða, en fæstir gera sér grein fyrir
hver háski getur af þeim staðið, og
hve viðbjóðsleg kvikindi þetta eru i
raun og veru; að ekki er amast við
flugum frekar en gert er, kemur
sennilega af því, að menn hafa al-
mennt ekki gert sér grein fyrir lifn-
aðarháttum þeirra og líkamsgerð.
Era hér settar fáeinar myndir til
skýringar. — Á
þessari mynd sést
fótur af flugu, eins
og hann lítur út í
smásjá. — Flugan
hefir 6 slíka fætur;
þeir eru hærðir, og
framan á þeim era
eins og tangir, til
þess að flugan geti
haft fótfestu, ef
hún sest á eitthvað óslétt. Framan á
fætinum eru 2 gljúpir þófar, sinn
hvoru megin; það eru nokkúrs konar
sogskálar, sem hjálpa flugunni til
þess, að geta fótað sig á sléttum flöt-
um, t. d. rúðum, sem þær geta farið
eftir upp og ofan eftir vild; þær geta
líka farið neðan á loftinu í herberg-
inu. Af þessu sköpulagi á fótum flug-
unnar verður það augljóst, að ekki
getur hjá því farið, að ýmislegt loði
á fótum hennar af því sem fyrir er,
þar sem hún leggur leiðir sínar. Þetta
kæmi nú ekki svo mjög að sök, ef
flugan færi aldrei nema um svæði,
þar sem allt væri ósaknæmt, en það
er nú öðra nær. Hún lifir aðallega á
alls konar óþverra, úldnum og
morknum matarleifum og hræjum,
saur og sorpi alls konar, en þar er
hreinasta paradis fyrir allar sótt-
kveikjur. Það má því nærri geta, hví-
líkur sægur af sýklum getur tollað á
fótum flugunnar og vængjum, þegar
hún er búin að spígspora fram og
aftur á einhverju úldnu hræi eða öðr-
um viðbjóði; hafa verið taldar svo
miljónum skiptir af gerlum á einni
flugu. Þetta kann að sýnast ótrúlegt
í fljótu bragði, en þess verður að
gæta, að svo er mikill stærðarmunur
á flugu og gerli, eins og á fíl og
flugu. Þó kemur það oft fyrir, að
flugum finnst þær vera of þungar á
sér, eða ofhlaðnar af óþveranum, og
Fluguvængur. Fluga situr á pelatotu!
því sjást þær oft vera að ná þessu
góðgæti af sér, af fótunum, vængjun-
um og munnfærunum, og er því ekki
skemmtilegt að horfa á þetta kvik-
indi, skríðandi á matnum, sem verið
er að borða, og vera þar að losa við
sig eitthvað af þessum viðbjóði. —
Flugur era sólgnar í öll sætindi; þær
setjast því oft á eitt og annað sæl-
gætið, sem á borðinu er, t. d. sykur
eða annað þvílíkt, og bæta sér í
munni eftir eitthvað annað ógeðs-
legra, sem þær kunna að hafa verið
að éta rétt áður. Þær era nefnilega
síétandi; komist þær i eitthvað góð-
gætið, verður þeim ekki mikið fyrir
að æla meir eða minna upp úr sér
af einhverju, sem þær era nýbúnar
að éta, og ekki er kannske jafn-
lostætt eins og þær krásir, sem þær
eru nú komnar í; ælurnar eru einmitt
til þess gerðar, að þær geti dregið á
bátinn svo um muni af einhverju góð-
gætinu. Og flúgur eru ekki vanar að
víla neitt fyrir sér að æla hvar sem
er, né heldur vandfýsnar um hvar
þær losa sig við óþverrann af fótum
sér og vængjum; þær geta því
vel komið beint upp úr spýtu-
bakkanum eða hrákusluddu, sem
þær hafa fundið á fömum vegi,
og sest á brauðið, smjörið eða
hvað annað sem á borðinu er.
Þeim þykir líka afskaplega góð
mjólk; þær setjast því oft á
mjólk og drakkna þar stundumí
Það má nærri geta hve holl slík
mjólk getur orðið, fyrir nú utan
viðbjóðinn! Það kann heldur
enginn tölum að telja þann ara-
grúa af ungbömum, sem árlega
deyja af völdum þessara smá-
kvikinda, einkum úr berklaveiki
og gamakvefi. Berklasýklana
bera þær með sér úr hrákum
berklasjúklinga, sem hrækt hafa
hvar sem er, af sóðaskap eða hugs-
unarleysi, og fluga svo sest á, og
jóðlað um sínar viðbjóðslegu loðnu
lappir, og svo kannske sest rétt á
eftir á mjólkina, sem ætluð var ung-
baminu, en ílátið opið, eða á pela-
Framhald á bls. 15.
Fótur af flugu.
„Nafnspjald" flugunnar.