Vikan


Vikan - 15.05.1941, Page 11

Vikan - 15.05.1941, Page 11
VIKAN, nr. 20, 1941 M(ð daiiann á hæluiQU. 2Q Framhaldssaga eftir DAVID HUME. „Það er ekki til neins fyrir yður að reiðast," sagði hann. „Við erum tveir, og við skjótum, ef jþér gefið nokkurt tilefni, og það er ekki hætta á að við hittum ekki. Það mundi ekki hjálpa kvenmanninum, að öðru leyti en því, að hún yrði að ljúka ferðinni i fylgd með líki. Notið skyn- semi yðar. Þér vitið, að þér hafið tapað.“ „Já, auðvitað,“ sagði Mick. Hann vissi þvi mið- ur allt of vel, að maðurinn hafði rétt fyrir sér. „TJr því að þér hafið gert sígaretturnar mínar upptækar, vilduð þér kannski vera svo góður að gefa mér og stúlkunni sína sígarettuna hvoru?“ Sammy leit tortryggnislega á hann áður en Jiann tók upp sígaretturnar og eldspýturnar. En Miek setti sígarettu að vörum Clare, kveikti í henni og síðan í anna'rri handa sér, án þess að gera nokkuð af sér. Svo stakk hann bæði sígar- ettunum og eldspýtunum i vasann. Þorpararnir tveir gátu ekki annað en dáðst að því, hvað hönd- in, sem hélt á eldspýtunni, var styrk og örugg. Kjark skorti Mick ekki! • „Þér haldið kannske, að þessi dæmalausi heili yðar muni bjarga yður úr þessari klípu,“ sagði Sammy. „Þeirri fánýtu von er yður óhætt að stinga í vasann ásamt eldspýtunum og sígarett- unum." „Það er sorglegt,“ sagði Mick, „að veslings móðir yðar skyldi verða til að fæða yður i þennan heim.“ „Jæja, hér eigum við víst að skipta,“ sagði Sammy og sneri sér að Pete. „Nei, ekki strax. Það er bara umferðarljós," sagði Pete. Brauðbíllinn hægði á sér og nam að lokum alveg staðar. Mick heyrði, að fleiri bilar brems- tiðu skammt frá. Bófamir voru á verði. „Verið ekki órólegir," sagði Mick. ,,Ég þori að veðja, að við höfum orðið að nema staðar við rautt ljós í Colchester." „Haldið yður saman, að minnsta kosti þangað til við erum komnir fram hjá,“ sagði Sammy-. „Það er ráðlegra fyrir yður — og vinkonu yðar líka.“ „Ég er ekki svo vitlaus, að ég viti ekki, hvenær ég á að þegja,“ sagði Mick. Síðasta hálftímann hafði hann fundið kaldan súg i bakið. Yfirbygg- ingin á bílnum var úr tré, og ein fjöl hafði verið tekin í burtu, sennilega vegna viðgerðar. Á meðan hann talaði, ýtti hann tveim brauðum út um rif- una. Hann braut heilann um það, hvort hann gæti ekki gert eitthvað annað til að vekja athygli um- ferðarlögregluþjónsins. En áður en honum hafði dottið nokkuð í hug, fór bíllinn af stað aftur. En hann hélt áfram að ýta brauðum út um rifuna með stuttu millibili, án þess að nokkur tæki eftir. Mick velti því fyrir sér, hvort hann ætti að grípa til einhverra róttækra ráða, áður en þau væru komin út úr bænum. En þegar hann leit á skamm- byssurnar, sannfærðist hann um, að minnsta til- raun til undankomu mundi kosta hann lífið. „Næsti viðkomustaður er kirkjugarðurinn,“ sagði hann við Clare. „Eru það nokkur blóm, sem þér hafið sérstaklega augastað á ? Ég er viss um, að okkar elskulegu vinir vilja gera það, sem þeir . geta fyrir okkur.“ Clare hristi höfuðið. Tárin runnu stöðugt niður kinnar hennar. Svo varð þögn stundarkom. Mick Það, sem skeð liefir hingað til í sögunni: Ameriskur stórglæpamaður, Lefty Vincent, rænir banka þar vestra og drepur gjald- kerann. Dóttir gjaldkerans, Clare Furness, reynir að koma Vincent í hendur lögregl- unni. Það mistekst. Clare flýr til Englands. Vincent eltir hana og fær enska glæpafé- laga í lið með sér. Mick Cardby rekur leyni- lögreglustöð í félagi við föður sinn. Þeir eru fengnir til að vernda Clare í Englandi, og tekur Mick á móti henni og ekur með hana um þvert og endilangt landið og bófamir á hælum þeim. Þau komast alltaf undan, en nú er Vincent sjálfur kominn til landsins, óánægður yfir árangursleysi eftirfararinn- ar. Sögunni víkur aftur að Clare og Mick. Þau em á flótta í bílnum, þegar springur hjá þeim og bíllinn veltur út af veginum. Þegar þau eru að komast undan bílnum, standa vopnaðir bófar yfir þeim og skipa þeim upp í brauðbíl og aka burt. sýndist Clare vera að því lcomin að falla í yfirlið aftur. Varðmennirnir sátu hreyfingarlausir og störðu á þau. „Hvenær veitist okkur sá heiður, að hitta Lefty Vincent?" spurði Mick. „Ég vildi ógjarnan koma of seint eftir allt það ómak, sem mannauminginn hefir gert sér til að vera stundvís.“ „Við skulum sjá um, að þið komið ekki of seint," sagði Sammy byrstur. „Það verður aldrei langt þangað til hann slæst i hópinn — ef það er yður og vinkonu yðar ekki á móti skapi.“ „Nei, það er nú eitthvað annað. Ákveðið bara stund og stað, og þá skulum við gera það, sem í okkar valdi stendur til að ekkert verði því til hindrunar. Mér er ekki almennilega ljóst, hvemig maður á að haga sér frammi fyrir svoha miklum mönnum. Þér gerðuð mér greiða, ef þér gæfuð mér nokkrar bendingar í þá átt. Eru nokkrar sér- stakar viðhafnarreglur viðhafðar í fyrsta skipti, sem maður hittir morðingja, þjóf, bankaræningja og stórglæpamann?" „Ég hefði gaman af að heyra yður segja þetta í viðurvist Vincents sjálfs,“ sagði Sammy. „Ég hefi aldrei hitt hann, en ég 'hefi heyrt ýmislegt um hann. Ég hlakka til að heyra, hvaða álit hann hefir á Mick Cardby.“ „Hann þorir sjálfsagt ekki að mæta mér nema með hendurnar bundnar á bak aftur og umkringd- an af vopnuðum bófum, heigullinn sá ama. Vin- eent er eins og þið hinir — ekkert nema grobbið og mikilmennskan, en huglaus, þegar á reynir.“ „Haldið yður saman, ef yður langar til að lifa,“ sagði Samrriy. „Ég gæti slegið ykkur niður á svipstundu, ef við stæðum jafnt að vígi,“ sagði Mick. „En þið þorið ekki annað en sitja með skammbyssurnar í hönd- unum andspænis óvopnuðum manni. Og svo þyk- ist þið vera heljarmiklir karlar! Leggið frá ykkur skammbyssurnar augnablik, þá skuluð þið fá að sjá sitt af hverju." „Nei, við látum ekki gabba okkur svona,“ sagði Sammy. „Ég hefi séð menn eins og yður fyrr. Ég læt ekki gabba mig.“ „Mér datt svo sem i hug, að ykkur myndi bresta kjark til þess. En úr því að ég á að deyja hvort sem er — og ekki er hætta á að dauðir menn ljóstri upp, — þá getið þið væntanlega sagt mér, hvernig þið funduð okkur.“ „Hefir annar eins gáfumaður og Cardby ekki getað reiknað það út ennþá?“ sagði Sammy háðs- lega. „Ef þér hefðuð notað þessa heilakörtu yðar þótt ekki væri nema í eina mínútu, mynduð þér aldrei hafa lent í þessari klípu. Þér voruð allt of slunginn, karl minn, þar í liggur skissan. Næst ættuð þér að reyna að haga yður eins og fábjáni og vita, hvort yður gengur ekki betur. Þegar þér notið heilann, fer bersýnilega allt í hund og kött. Sennilega hefir hann ekki verið skapaður í þeim til gangi.“ „Já, þetta er nú allt saman mjög fróðlegt, en ég er litlu nær fyrir þvi. Ætlist þér til að ég klappi fyrir yður eða falli grátandi um hálsinn á yður?“ „Verið ekki með þessi látalæti, Cardby. Það fer yður svo illa. 1 Banbury voru þér sannfærður um, að auðvelt mundi að finna yður í yðar eigin bil, var það ekki? Þess vegna tókuð þér einn af okkar bílum og skilduð yðar eftir. Það var snjall- ræði, finnst yður ekki? Þér fóruð úr bíl, sem við þekktum tæplega í sjón, í annan, sem við þekkt- um frá því að hann kom úr verksmiðjunni. Þegar þér skilduð bílinn yðar eftir handa okkur, gerðuð þér okkur þann mesta greiða, sem þér gátuð. Ég þakka yður kærlega fyrir. Og kæra þökk fyrir, að það skyldi springa hjá yður í Bedford. Það er dásamlegt, hvað veiða má upp úr lögregluþjóni, ef maður leggur sig í framkróka. En mest þakka ég yður fyrir heimsókn yðar á lögreglustöðina í Newmarket. Við sáum gamla bilinn okkar þar fyrir framan. Það var ómögulegt að komast hjá því að sjá hann. Þá var það, sem við tókum brauð- bílinn að láni.“ Mick hlustaði á þessa frásögn með hálfgremju- legu brosi. Þegar Sammy hafði lokið máli sínu, sneri Mick sér að Clare og yppti öxlum. „Ég bið yður afsökunar, Clare. Allt, sem þessi náungi segir, er rétt. Það var heimskulegt af mér að taka þennan bil. Það lítur út fyrir að ég hafi gert hVerja vitleysuna á fætur annarri." „Hvaða máli skipta slíkir smámunir, eins og nú er komið, Mick.“ „Ég var ekki fyrst og fremst að hugsa ufn. okkur, heldur þessa tvo náunga þ'arna. Mig tekur það sárt þeirra vegna. Mér datt ekki í hug, þegar ég tók bilinn þeirra að láni, að þeir myndu fá tólf eða fjórtán ára fangelsi fyrir að ráðast inn á lögreglustöðina í Banbury. Ég er hræddur um að þeir verði orðnir aumir i fingurgómunum af að sauma póstpoka i Dartmoorfangelsi áður en lík- ur. Þegar þeir koma út aftur, verður pósturinn ímynd skrattans í augum þeirra!“ „Sparið fyndni yðar þangað til þér hittið Lefty Vincent,“ sagði Sammy. „En ef 'Slim er nógu hress til að koma til móts við yður á undan, munuð þér aldrei fá að sjá Lefty Vincent. Það síðasta, sem ,ég heyrði Slim tala um, var það, hvað hann ætlaði að gera við yður. Og það fór hrollur um mig við að hlusta á það.“ „Það þarf vist ekki mikið til að fá yður til að skjálfa. En mér þykir leiðinlegt, að Slim skyldi þurfa að fara svona. Mér var næstum því farið gð þykja vænt um hann. Og mér leiðist, að ég skyldi þurfa að merkja hann. Það er meira i hann spunnið en ykkur alla hina til samans. En það er honum kannske fyrir beztu, að hann hitti mig ekki. Þá kemst hann hjá að lenda í gálganum." „Hvað eigið þér við með því? Á að hengja ein- hvern?“ „Ef þér hafið eins mikla vitglóru í hausnum og þér viljið vera láta, þá hljótið þér að skilja, að menn eins og þið sleppa ekki hjá að verða hengd-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.