Vikan


Vikan - 15.05.1941, Blaðsíða 13

Vikan - 15.05.1941, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 20, 1941 13 Bœn fyrir friði. Framhald af bls. 4. guði, að hún fellur á kné og biður: ,.Ef barninu mínu batnar, skal ég gera allt, sem í mínu valdi stendur til þess að gera líf þess fagurt og göfugt ..." Á þessari stund þjáningarinnar hefirv henni yitrast sýn. Hún hefir séð, hvað • barnið henn- ar gæti orðið, hvað skapari þess hefir ætl- að því að verða. Hún sér draum sinn, draum allra mæðra. Hún sér möguleika, ekki aðeins síns eigin barns, heldur allra barna, alls mannkynsins. Hún biður í vit- und þess máttar, sem mannlegur andi býr yfir. Og þessi bæn hennar boðar nýtt líf. Eins og móðirin gæti heimurinn kné- kropið í dag. Eins og henni gæti honum vitrast sýn. Eins og hún gæti hann beðið þess, að Hfi barnsins síns yrði þyrmt, að friður mætti koma til þess að skapa hið nýja líf, hinn nýja draum, sem þjáningin fóstraði. Þó að ég tali máli friðarins, er mér ijós, að sú stund getur komið í lífi manns eða þjóðar, að hún verði að grípa til vopna. Eg veit, að til eru verðmæti, sem eru dýr- mætari en lífið sjálft. Gildi píslarvættis- ins er byggt á þessari trú. Dauði píslar- vottarins skapar stundum þeim sem eftir lifa skilyrði til betra lífs. Ég trúi ekki að betri heimur rísi upp af rústum þessarar styrjaldar. Ég trú því ekki, að styrjöldin, sem nú geisar í Evrópu sé píslarvætti. Ég er sannfærður um, að hún er sjálfsmorð, bæði sigurvegarans og þeirra sigruður. Það er í þeirri trú, að ég tek undir orð kínversku konunnar fyrir meira en tvö þúsund árum, „ráðið mitt var leiðin eina.“ Það er í þeirri trú, að ég hvet til umburð- arlyndrar, staðfastrar og víðsýnnar af- stöðu til friðar. Ekki friðar, sem byggður er á beizkri auðmýkingu annars aðilans og hrokafullri valdabeitingu hins. Heldur friðar, sem byggður er á gagnkvæmri ósk um sameiginlega velferð. Sá friður mundi ekki þurfa að styðjast við samninga, sem síðan vrðu rofnir, þegar mest á riði. Hann þyrfti ef til vill að styðjast við vopn í fyrstu. Hann yrði kannske ekki annað en það, sem við 'köllum vopnaður friður — ekki svo mjög frábrugðinn því ástandi, sem nú ríkir í Evrópu, en nógu frábrugð- inn til þess að mynda grundvöll fyrir frek- ari samningum. Sá friður, sem vona má að rísi upp af þessum vopnaða friði, yrði auðvitað að vera byggður á þeirri einu mögulegu trygg- ingu fyrir varanlegum friði, sem til er — sem sé gagnkvæmum skilningi og hagnaði. Ef ,,Hitlerisminn“ er andi, sem ekki verður drepinn eða lokaður inni, hvernig er þá hægt að koma tauti við hann ? Það er aðeins hægt með því að „reka hann út“, svo að notuð séu orð biblíunnar. Til þess að reka út þennan anda, verður að bjóða Þýzkalandi og heiminum, ekki stríð — heldur frið — stórkostlegri og göfugmann- legri frið en nokkurri þjóð hefir verið boð- inn til þessa. Lífrænan, en ekki steinrunn- inn frið, sem hægt er að sveigja til eftir þörfum mannanna. Því að friður, sem ekki tekur tillit til breytinga og framfara, mun vissulega aldrei verða varanlegur. Að heimurinn verði að breytast, verði að fá nýja skipan, eru allir hugsandi menn sammála um. Margir af beztu mönnum Englands flytja þennan boðskap nú. Ekki þarf í því sambandi að minna á annað en ræður Lothians lávarðar hér í Bandaríkj- unum, og margra annarra stjórnmála- manna í Englandi. Spurningin er, hvort við eigum að reyna að skapa þennan nýja frið, og hvort gera eigi það eftir langa og ægilega styrjöld eða áður. Þessa spum- ingu finnst mér, að allt hugsandi fólk í Bandaríkjunum hafi rétt og skyldu til að íhuga, vinna að og ræða um. Og við konurnar, því að eins og ég sagði í upphafi, tala ég hér aðeins sem kona, og þá ef til vill aðallega til kvenþjóðar- innar — hvað getum við gert annað en „gengið um garðinn og tínt gleym-mér-ei ?“ Hvað getum við gert annað en gætt okkar heimilis? Við getum haldið hugum okkar og hjörtum opnum. Haldið huganum opn- um, ekki aðeins með því að lesa dagblöð, greinar og bækur um stríð, heldur miklu fremur með því að lesa sögu og heimspeki. Við eigum ekki að eins að kynna okkur þau deilumál, sem nú eru efst á baugi, heldur líka þau vandamál, sem forfeður okkar áttu við að stríða, til þess að við séum betur fær um að dæma hlutlægt um nú- tímann, og til þess að við getum miðlað öðrum af þessari þekkingu. En það er ekki einungis að fortíð og nútíð, sem við eigum að beina augum okkar. Við þurfum líka að horfa til fram- tíðarinnar, þeirrar framtíðar, sem börnin okkar eiga að erfa. Hvers óskum við þeim? Hver er sú sýn, sem vitrast hefir okkur þeim til handa, og hvernig getum við gert þá sýn að veruleika? Er langvarndi styrj- öld leiðin? Hvers konar friður væri líkleg- ur til úrlausnar? Og hvenær ætti sá friður að koma? Áður en þér beygið yður fyrir öllum þeim röksemdum, sem telja, að ómögulegt sé að semja frið nú, og í fljótu bragði virðast svo sannfærandi. Áður en þér tak- ið undir hin trylltu stríðsóp, bið ég yður í allri auðmýkt að íhuga kostina. Og ég bið yður einnig, þrátt fyrir það vonleysi og þá örvæntingu, sem ég veit að ásækir yður, að halda fast við draumsýnina, ef hún hefir vitrast yður. Draumar eru ekki eins þýðingarlausir og sumir vilja vera láta. Þeir hafa átt sinn þátt í orsaka- tengslum sögunnar. Eins og Whitehead segir í bók sinni „Æfintýri hugsjónanna": „Mannkynið dreymir um það, sem koma á, og þegar fylling tímans kemur gerir það drauminn að veruleika.“ Það þarf mikla þolinmæði til að bíða eftir „fyllingu tím- ans.“ Það þarf á að halda þeirri staðfestu, trú og þrautseigju, sem lýsir sér í orðum kínversku konunnar fyrir tvö þúsund ár- um: „En ráðið mitt var leiðin eina.“ Einn af varkárustu mönnum • Reykjavikurbæjar var nýlega að lœra að stjórna bíl. Hann ók út fyrir bæinn með kennara sínum og; fór sér að engu óðslega. Kennaranum þótti hægt farið, og var að skora á lærisveininn að aka hraða, en ekkert dugði. Þangað til kennarinn leit um öxl og sagði: „Gætið yðar! Það er hestvagn á eftir okkur.“ Maggi og Raggi Kalli gamli: Jæja, Maggi, svo þú ert kominn í skóialögregluna. Maggi: Já, ég er í yngri deildinni og ég á að vera héma á horninu hjá þér. Kalli gamli: Það var gott. Þetta er afleitt horn. Hérna er epli handa þér. Ég gái alltaf að því, að halda um- ferðareglurnar. Maggi: Þakka þér fyrir, þakka þér kærlega fyrir. Kalli gamli: Alltaf er ég heppinn. Maggi: Hinir ávaxtasalarnir gefa Ég fæ alltaf svo góða stráka hérna nefnilega aldrei epli. á hornið. Maggi: Það er engin hætta fyrir þig, Kalli. Við vörpum alltaf hlut- kesti um þetta horn.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.