Vikan


Vikan - 24.07.1941, Blaðsíða 12

Vikan - 24.07.1941, Blaðsíða 12
14 VIKAN, nr. 30, 1941 i að hann var að heyja einvígi, og að frú Daubreuil var sterkur mótstöðumaður. „Þér haldið fast við, að herra Renauld hafi ekki trúað yður fyrir neinu?“ „Hvers vegna haldið þér, að hann hafi trúað mér fyrir einhverju ?“ „Vegna þess, frú mín góð,“ sagði Hautet og var ruddalegur af ásettu ráði, „að menn segja stundum frillum sínum það, sem þeir segja eig- inkonunum ekki.“ „Hvernig dirfist þér!“ Frú Daubreuil stökk á fætur og augu hennar leiftruðu. „Þér móðgið mig, herra minn! Og það í viðurvist dóttur minn- ar! Ég get ekkert sagt yður! Viljið þið gera svo vel og fara héðan út!“ Því bar ekki að neita, að konan hafði borið sigur af hólmi. Við fórum frá „Villa Marguerita", sneyptir eins og skóladrengir. Rannsóknardóm- arinn bölvaði sjálfum sér í hljóði. Poirot virtist vera utan við sig. Allt í einu áttaði hann sig og spurði Hautet, hvort ekki væri gott gistihús þar um slóðir. „Það er lítið gistihús í þessum hluta bæjarins, sem heitir „Hotel des Bains“. Það er nokkur hundruð metra niður með veginum. Það er á þægilegum stað fyrir rannsóknir yðar. Ég vona, að við fáum að sjá yður aftur í fyrramálið.“ „Já, ég þakka, herra Hautet.“ Við skildum, með hneigingum og beygingum, Poirot og ég fórum í áttina til Merlinville, en hin- ir aftur til „Villa Geneviéve. „Franska leynilögreglukerfið er sannarlega dá- samlegt," sagði Poirot og horfði á eftir þeim. „Þær upplýsingar, sem þeir hafa fengið um fólk- ið, jafnvel hvern einstakan borgara eru allar alveg sérstæðar. Enda þótt Renauld hafi ekki átt hér heima í meira en sex vikur, vita þeir um allt háttemi hans og með augnabliks fyrirvara geta þeir aflað sér upplýsinga um sparisjóðsbækur frú Daubreuil og hvað mikið hún hefir lagt inn í seinni tíð. En hvað um það?“ Hann snéri allt í einu við. Berhöfðuð stúlka kom hlaupandi niður veginn á eftir okkur. Það var Marthe Daubreuil. „Afsakið þér,“ sagði hún og var mjög móð, þegar hún náði okkur. „Eg veit, að ég ætti ekki að gera þetta. Þið megið ómögulega segja móður minni frá því. En er það satt, sem fólk segir, að herra Renauld hafi beðið um leynilögreglu- mann, áður en hann dó, og að þér séuð leyni- lögreglumaðurinn ? “ „Já, ungfrú," svaraði Poirot blíðlega. „Það er alveg rétt. En hver sagði yður þetta?“ „Francoise sagði henni Anélie, stúlkunni okkar, það,“ sagði Marthe og roðnaði. Poirot gretti sig. „Það er ómögulegt að halda nokkru leyndu í máli eins og þessu. Jæja, það gerir ekkert til. Hvað var það, sem þér vilduð, ungfrú?“ Unga stúlkan hikaði. Hana langaði til að segja eitthvað, en hún var hrædd. Að lokum hvíslaði hún: , „Er nokkur, — sem liggur undir grun?“ Poirot horfði hvasst á hana. Síðan svaraði hann og færðist undan. „Við höfum ákveðinn grun.“ „Já, ég veit það — en er það einhver sérstakur, sem þið grunið?“ „Hvers vegna viljið þér vita það?“ Ungu stúlkunni virtist bregða við þessa spurn- ingu. Nú datt mér líka í hug, það sem Poirot hafði sagt áður um daginn: „Stúlkan með skelfdu augun.“ „Herra Renauld var alltaf mjög góður við mig,“ svaraði hún að lokum. „Það er ekki nema- eðli- legt, að ég hafi áhuga á þessu.“ „Nú jæja,“ sagði Poirot. „Já, ungfrú góð. Nú sem stendur liggur grunurinn aðallega á tveimur manneskjum." „Tveimur ?“ Ég hefði getað svarið, að hún varð undrandi og að henni létti. Vikunnar. Lárétt skýring: — 1. harmsöngur. — 15. magrir. — 16. dauðanum. — 17. tveir samst. -— 18. gagn. -— 19. ný. — 20. get. — 21. kveikur. — 23. leiði. — 24. sk. st. — 26. tveir samst. — 27. rándýr. — 29. kyrð. — 31. neit- un. — 32. húðunarefni. — 34. fáan- legt. — 36. yfirfór. — 40. staðfesta. — 41. trufluðum. — 42. vötn. — 43. ílát. — 44. sterk. — 45. hrifning. — 48. ókurteis. — 51. blaut. — 52. yfir- stétt. — 53. fljótur. — 55. mala. — 56. tveir eins. ■— 57. nefnifall. — 59. máttartré. — 61. mynt. —■ 62. sama mánaðar. — 63. draup. ■— 65. henda. — 67. samþykki. — 69. mjúk. — 70. amboð. — 72. söngmenn. -— 73. sjóð- andi. — 76. mjólkina. — 78. hómó- pati. Lóðrétt skýring: — 1. dáðaferð. — 2. eldfæri. — 3. tónn. —■ 4. kjaftur. — 5. áminnt. — 6. skrái. — 7. þyngdareining. — 8. athugist. ■—- 9. gætur. — 10. öldur. ■— 11. umferð. — 12. úttekið. — 13. raup. — 14. molar. — 22. húsdýr. — 23. forsetningar. — 25. róður. — 26. örlagadís. — 28. hvíldi. — 30. óhapp. — 31. aukist. — 33. dapra. — 35. fræðirit. — 37. erfiði. -— 38. forsetning. — 39. atviksorð. — 40. sjá eftir. — 45. ferða- týra. — 46. fædda. — 47. sjá. — 48. lofa. — 49. kraps. — 50. skrumara. — 54. keyri. — 58. hög. — 59. burðarás. •— 60. hreyfing. — 61. braut. — 64. blása. — 66. hús. — 68. boga. — 69. tíndi. -— 71. korn. — 72. ambátt. — 74. — 47. lóðrétt. — 75. handritasafnari. — 76. veizla. — 77. næst- komandi. Lausn á 97. krossgátu Vikunnar. Lárétt: — 1. Samvinnufélögin. - 15. okraðir. — 16. áleitni, — 17 .K. A. — 18. mað. — 19. iðn. — 20. að. — 21. Sit. — 23. óðu. — 24. ar. — 26. út. — 27. ýta. — 29. rl. — 31. la. — 32. dútl. — 34. ábúð. — 36. ógirt. — 40. stoði. — 41. tilhald. — 42. svarrar. — 43. lek. — 44. lag. — 45. bræð- ing. — 48. skarans. — 51. rótir. — 52. rörin. — 53. alin. — 55. safi. — 56. ni. — 57. næ. — 59. nón. — 61. út. — 62. tl. — 63. frú. — 65. ást. — 67. af. — 69. æði. — 70. öra. — 72. ei. — 73. reifaða. ■— 76. skárann. — 78. innanstokksmuna. Lóðrétt: -— 1. sokkadót. — 2. aka. — 3. mr. — 4. van. — 5. Iðast. — 6. niði. —7. nr. — 8. fá. — 9. élið. — 10. leður. — 11. öin. — 12. Gt. — 13. Ina. — 14. niðraðir. — 22. Tý. — 23. óa. — 25. rúgi. — 26. úlfheðinn. —- 28. tó. — 30. Látra- röst. — 31. lúða. — 33. tillæti. — 35. borgara. — 37. tahir. — 38. s. d. — 39. is. — 40. salar. — 45. brandari. — 46. róli. — 47. gá. — 48. sá. — 49. nift. — 50. snillina. — 54. ló. — 58. æfðan. — 59. nú. — 60. ná. — 61. útrás. — 64. riðs. — 66. sökk. — 68. fen. -— 69. æfa. — 71. arm. — 72. enn. — 74. in. ■— 75. at. — 76. sk. — 77. au. „Dað er alveg áreiðanlegíu Það er álitið, að lengsta orð í heimi sé í bókinni Ecclesiagusaen eftir Aristofanes. Orð þetta, sem þýðir kjötmusl (,,lafs- kássa“), er á grísku með 171 staf. * Þó að fundizt hafi beinagrindur úr frumhestum bæði í Suður- og Norður-Ame- ríku, lifðu engir hestar í Ameríku frá því á ísöld þangað til fram á 16. öld, þegar Spánverjar fluttu þá inn frá Evrópu> * Nikulás I., sem réð ríkjum í Montenegro frá 1860—1918, var einn hinna lýðræðis- sinnuðustu þjóðhöfðingja, sem nokkru sinni hafa verið uppi. Hann gekk um í höfuðborginni, Cettinje, eins og hver annar óbreyttur borgari, þúaði þegna sína og þeir kölluðu hann „faðir“. Auk þess, sem hann var þjóðhöfðingi, var hann dómari, hirðskáld, leikhússtjóri og póstmeistari. í höllinni var herbergi, sem hann notaði sem póstskrifstofu og seldi þar sjálfur frímerki. Hann var þá oft til með að gefa vinum sínum eitthvað hjartastyrkjandi í kaup- bæti. * I Prag eru tveir mjög merkilegir hlutir. Annar er klukka í turni ráðhúss Gyðinga. Vísarnir ganga í öfuga átt við það, sem þeir gera á öðrum klukkum, og tölustaf- irnir eru hebreskir. Hinn hluturinn er mjög stór kross á Karls-brúnm, sem á að sýna krossfestinguna og er með áletrun á he- bresku. Árið 1696 var Gyðing nokkrum ógnað til þess að skera krossinn út, með því að hóta honum ógurlegum pyndingum. En þar eð Gyðingurinn óttaðist hegningu Jehova fyrir að heiðra Krist svona, risti hann skýringuna inn í tréð á hebresku. * I biblíunni eru 263 nöfn og titlar not- aðir við Jesús Krist. Svör við spurningum á bls. 5: 1. Bláskógar. 2. Itölsk fréttastofa. 3. Þorvaldur víðförli Koðransson og‘ Friðrekur biskup. Árið 981. 4. Patterson. 5. Bjami Guðmundsson. 6. 1133, á Þingeyrum, að ráðstöfun Jóns biskups Ögmundssonar. Þar var munkaklaustur. 7. Danskur, fæddur í Aakjær á Jótlandi, frægur fyrir kvæði og sögur úr heimahögum sínum. 8. Finnskur eyjaklasi við mynni Bottneska fló- ans. 9. Um og eftir 1870. 10. Finnsk skáldkona, sem meðal annars hefir skrifað skáldsöguna „Katrina".

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.