Vikan - 28.08.1941, Page 9
VIKAN, nr. 35, 1941
9
'mw
, j
■x y.+Ký.-ýi
{j'A&tízLMjyndíh.
Vopnahlé í dýraríkinu. Á meðan styrjöldin geisar um heiminn
semja tveir höfuðóvinir dýrarikisins vopnahlé i New York. Þessi
óvanalega mynd af ketti og mús var tekin í auðu húsi af manni,
sem fór þar fram hjá.
Minnismerki, sem verið er að Ijúka við. Lincoln Borglum, sem er
28 ára er um það bil að ljúka við þessi frægu Mount Rushmore
minnismerki, sem faðir hans, Gutzon Borglum, byrjaði að höggva
í granit í Black Hills í suður Dakota fyrir fjórtán árum. Mynd-
höggvarinn dó i marz 1941 og fól syni sínum að halda verkinu
áfram. Myndirnar eru (frá vinstri til hægri) af Washington, Jeffer-
son, Theodore Roosevelt og Lincoln.
Vann kappsiglingu. Aleta
Van Sant frá Elizabeth City
veifar til Ijósmyndarans,
þegar hún er að enda við að
vinna kappsiglingu, sem er
haldin árlega í Biscayafló-
anum við Miami á Florida.
Bátur hennar er nýtízku
kappsiglingabátur og heitir
,,Stormy“.
Nýtt embætti. Roosevelt forseti hefir gert
William J. Donovan í New York að yfirmanni
yfir leyniþjónustu Bandaríkjanna, og á hann
að hafa samvinnu við brezku leyniþjónustuna.
Donovan hefir verið mánuðum saman í þjónustu
Knox flotamálaráðherra og farið sem leyni-
sendiboði til ýmsra landa.
„Aðmíráll“ í landhcrnum. Joseph P. D’Arezzo
frá Los Angeles, sem var efstur við brottfar-
arpróf frá sjóliðsforingjaskólanum í Anhapolis
í Bandaríkjunum 1940 fékk ekki leyfi til að
ganga í sjóherinn vegna smávegis augnveiki.
Hann fór þá í landherinn og var gerður að
liðsforingja. Hann er þekktur undir nafninu
„Aðmírállinn" á Panamaskurðs-svæðinu, þar
sem hann er nú.
'és £
Astralía býður Bandaríkjamenn velkomna! Götur Brisbane í Astralíu voru fagurlega skreyttar
með brezka fánanum og fána Bandaríkjanna, þegar sjóliðar frá Bandaríkjimum gengu í gegnum
bæinn. Hermennimir komu í flotadeild, sem í voru sjö herskip.