Vikan - 13.08.1942, Side 9
VIKAN, nr. 28, 1942
9
Hetjan þelrra. Á myndinni sást frú Virginia Dempsey og 3 Vi árs
gamall sonur hennar, James Stewart Dempsey, dást áð mynd af
manni sínum og föður, James C. Dempsey kaftbátsforingja. Hann
var nýlega sæmdur heiðursmerki fyrir vasklega framgöngu gegn
Japönum i Kyrrahafinu.
Myndin sýnir áhöfnina af brezkri sprengjuflugvél af Halifax-gerð
vera að drekka te, rétt áður en lagt var af stað i árásarleiðangur.
Þessi flugvél var ein af þeim 1036 flugvélum, sem gerðu árásina á
Ruhr og Rínarhéruöin 30. maí s.l. Var það mesta loftárás, sem
torezki flughertnn hefir gert til þessa og stóð í eina og hálfa klukku-
stund.
Myndin er af A. P. Lloyd, flugmarskálki, yfir-
manni loftvamanna á Malta. — Hann hefir
stjómað loftvömunum af slíkum dugnaði, að
Malta hefir varizt hinum 2300 loftárásum, sem
Öxulríkin hafa gert á hana til þessa. 600 óvina-
flugvélar hafa verið skotnar niður i árásunum.
Amerískur sjóliði. Myndin t. h. sýnir nýjasta
útbúnað amerískra sjóliða. Þetta er mjög hent-
ugur og fyrirferðarlítill útbúnaður, og fljótlegt
að gripa til hans, hvort sem er á sjó eða landi.
Hann fékk eklti að ganga í herinn. Myndin sýnir Frederick Donna-
telli ásamt konu sinni og bömum. Hann langaði svo mikið til þess
að fara í herinn, að hann skrifaði Roosevelt Bandaríkjaforseta um
það. Honum hafði verið neitað um upptöku vegna þess að álitið var,
að kona hans mundi ekki geta séð um bömin, ef hann færi i herinn.
Kona hreystinnar. Frú Jean, kona Árthurs W.
Wermuth yfirforingja, sem felldi 116 Japana á
Filippseyjum og tók enn fleiri til fanga, er
hreykin af manni sínum. Frú Wermuth er nú
aðstoðarhjúkrunarkona við uppskurði á Ard-
more-sjúkrahúsi í Femdale, Michigan.
Nunnur í New York búa sig undir striðið. Nunnur, sem starfa við
St. Vincents sjúkrahúsið í New York hafa nýlega hafið námskeið
til þess að kenna hjálp í viðlögum. Á myndinni er verið að kenna
að lyfta sjúklingi upp á sjúkrabörur.
Lítill „Óhurchill“. Á myndinni t. h. sést þriggja
ára gamall drengur, Juan Angel Franco, sem
á grímudansleik í Puerto Rico kom fram í
gervi Winston Churchill og vakti hrifningu.