Vikan - 30.03.1944, Page 9
VIKAN, nr. 13, 1944
ð
Roosevelt forseti Bandaríkjanna skoðar fyrstu júgóslavnesku herdeildina í Bandaríkjahernum.
Jii . nd þeasi er tekin austur i Ind-
. ndi, nálægt landamærunr Burma.
.lún er af amerískum verkfræð-
ingi, nem vinnur að vegalagningu.
A myndinni sést vegvisir, setn í.
st ndur „til Tokyo". Verkfræðr
ii'.gurinn er sýnilega sannfræðuj
um, að vegurinn muni fyrr eða
síðar ná alla leið til Tokyo,
Þetta er amerísk flugsijytta, som
hlaut brezka heiðursmerkið fyrtr
flugmenn. Afrek hans var í því
fólgið, að hann sat kyrr við bysa>
una sína eftir að búið var að
skjóta skotturninn, sem hann var
í, af flugvélinni. George Breta-
konungur festi sjálfur merkið '4
barm hans.
Þetta er ekki maður frá Marz,
heldur flugmaður, sem er að fara
í föt, sem þola eld.
Hraðar en hljóðið. Þessi flugmað-
ur á heiðurinn af því að hafa flog-
ið hraðar en nokkur annar maður,
já jafnvel hraðar en hljóðið berst.
Þetta skeði í loftorustu yfir
Emden í Þýzkalandi. Hann steypti
sér lóðrétt niður 7500 metra, og
hraðinn varð mestur 1260 km. á
kl.st., eða 350 metrar á sekúndu!
(Hljóðið berst 330 metra á sek.).
Þetta er mynd af níu bama móður, sem leggur sinn skerf tii varna
lands sins (Bandaríkjanna) með þvi að aka stórum vöi-ubil fyrir
ameriska flugherinn, sem hefir bækistöð á Miami í Flórida. Mynd-
in sýnir hana, þar sem hún nemur staðar fyrir utan heimili sitt
og heilsar upp á bömin. Hún á bráðum von á tíunda barninu.
; . t i.
Þessi hermaður sést vera að drekka
vatn úr nýju tæki, sem breythf
sjó í drykkjarvatn.
Þessi hermaður fékk heimfararleyfi, til þess að hitta 17 ára gamla
hundinn sinn, þegar hann lá banaleguna. Hér sést hundurinn sleikja
andlit húsbónda sins af ánægju.