Vikan - 30.08.1945, Page 7
VIKAN, nr. 35, 1945
7
Vetrarmynd frá Gróðrarstöðinni. Premst eru grenitré. (Ljósm. E. Sigur-
geirsson).
Kom á staurum i Gróðrarstöðinni. Kornið er sett á staurana til þurrkunar.
Á myndinni sést suðuryfir Eyjafjörð. Garðsárdalur fyrir miðju. (Ljósm.
E. Sigurgeirsson).
GRÓÐRARSTÖÐ RÆKTUNAR-
FÉLAGS NORÐURLANDS.
(Framliald af bls. 3).
Búnaðarfélagi íslands, enda var það
búnaðarsamband fyrir Norðlendingafjórð-
ung fram yfir 1930.
Þegar ritstjóri Vikunnar var á ferð á
Akureyri í sumar og skoðaði gróðrarstöð-
ina í fylgd framkvæmdastjórans, fékk
hann eftirfarandi upplýsingar um hana og
starfið, eins og það er nú í höfuðdráttum.
Trjástöðin er rekin að nokkru leyti sem
sýnisreitur og uppeldisstöð fyrir plöntur,
en aðalstarfsemin er hinsvegar ræktunar-
tilraunir, bæði með grasrækt og garðrækt.
Allt land stöðvarinnar er um 30 ha. og
meginið af því ræktað sem tún, röskur
hektari er með matjurtum og nálægt iy2
hektari trjágróður. Kornræktin tekur yfir
um einn hektara. Sex til sjö hektarar eru
óræktaðir.
Grasræktartilraunir eru aðallega áburð-
ar- og forræktartilraunir, en auk þess hafa
verið gerðar margar tilraunir með ýmis-
konar grasfræssáningu, en þær hafa lagst
mikið niður á stríðstímunum, vegna þess
að ekki hefir verið hægt að fá fræ til
þeirra. Sérstaklega voru gerðar tilraunir
með ýmiskonar belgjurtir. Árangurinn af
þeim hefir verið mjög góður, því að rækt-
im belgjurtanna hefir háft mikinn sparn-
að köfnunarefnisáburðar í för með sér. Af
innlendum belgjurtum má nefna smára og
umfeðming. Auk þess hafa verið gerðar til-
raunir með rauðsmára, ertur, flækjur, lúp-
ínur og lúsernur (alfa-alfa).
Tilraunir í.garðyrkju hafa aðallega fjall-
að um samanburð á mismunandi stofnum,
sáðtíma, hirðingu o. fl. I sambandi við
garðyrkjuna og trjáræktina eru haldin
námskeið á vorin og eru nokkrir nemend-
anna sumarlangt og hafa margir þeirra
síðan fengizt við leiðbeiningar í garðyrkju.
Gróðrarstöðin rekur kúabú í sambandi
við starfsemina. Hefir hún tuttugu kýr og
auk þess nokkur geldneyti.
Fast starfsfólk við stöðina eru fram-
kvæmdastióri, aðstoðarmaður, maður sem
sér um kúabúið, og garðyrkjukona yfir
sumartímann. Auk þess er allmargt annað
starfsfólk í stöðinni á sumrin.
Helztu trjátegundirnar eru íslenzkt
birki, reyniviður, lerki, sem mun nú há-
vaxnast allra trjáa í stöðinni, greni og
fura. Af runnum má nefna rauðvíði, hegg,
geitblöðung, síberiskt baunatré, gullregn,
rauðblaðarós og hundarós. Auk þess eru
berjarunnar, ribs, sólber og hindber. Inn á
milli þessarra trjáa er fjöldi blómateg-
unda, en sumsstaðar eru trén orðin svo há
IbúSarhúsið í Gróðrarstöðinni. Myndin mun tekin
1937.
og limmikil, að ljósið kemst ekki niður að
rótum þeirra og þar vex því enginn gróður.
Jarðræktartilraunirnar eru nú algerlega
reknar fyrir styrk úr ríkissjóði og eftir
fyrirmælum tilraunaráðs í jarðrækt.
1 sumar hafa verið gerðar tilraunir í
Gróðrarstöðinni með súgþurrkun á heyi,
en ekki er hægt að fara út í það hér að
lýsa þeim tilraunum.
Ræktunarfélagið gefur út ársrit um
starfsemi sína og hefir það komið út síð-
an 1903, og þar er að finna allar heildar-
skýrslur um starfsemina.
Núverandi stjórn skipa, auk Jakobs
Karlssonar, Stefán Stefánsson, bóndi á
Svalbarði og Steindór Steindórsson, kenn-
ari við Menntaskólann á Akureyri.
Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri
Ræktunarfélags Norðurlands, er fæddur
23. marz 1895 á Freyshólum í Valla-
hreppi í Suður-Múlasýslu, sonur Jóns
Ólafssonar frá Mjóanesi, og Hólmfríðar
Jónsdóttur konu hans, frá Freyshólum.
Ólafur var á Hvanneyri 1915—17, starfs-
maður Búnaðarsambands Borgarfjarðar
1918—19. Sigldi til Danmerkur 19.21 og
stundaði nám við landbúnaðarháskólann í
Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan
1924. Þá kom hann heim og tók við Gróðr-
arstöðinni og hefir verið framkvæmda-
stjóri síðan. Ólafur hefir mikinn áhuga á
rannsókn óbyggðanna, einkum Ódáða-
hrauns og hefir ferðast manna mest um
það. Nú er í prentun bók eftir hann um
Ódáðahraun. Er það mikið rit, með f jölda
mynda og uppdrátta. Ólafur Jónsson er
kvæntur Guðrúnu Halldórsdóttur, Sigurðs-
sonar verkstjóra í Reykjavík.
í VEIZTU—?
= 1. 1 fyrri heimsstyrjöld .varð að flytja 3
smálestir af ýmiskonar varningi með
hverjum hermanni, sem fluttur var frá
U. S. A. til Evrópu. 1 síðari heims-
styrjöldinni varð að flytja 18 smálestir
með hverjum hermanni í vopriuðu her-
fylki. En hve margir menn eru í hverju
herfylki ? Vitið þið það?
= 2. Hvaða borg er stundum nefnd „borgin
eilífa?"
| 3. Hver uppgötvaði undraefnið radíum?
| 4. Hverrar þjóðar var tónskáldið Chopin?
= 5. Hverrar þjóðar var Frithjof Nansen?
: 6. Hver var forseti Bandaríkjanna næst
á undan Pranklin Delano Roosevelt?
i 7. Hvað heita þrjár stærstu eyjar heims-
| ins?
= 8. Hverrar þjóðar var málarinn Rem-
1 brant?
| 9. Hvaða Suður-Amerikuríki er stærst?
Í 10. Hverrar þjóðar var skáldið Longfellow ?
Í Sjá svör á bls. 14.
'''UMiMiimiimiimiMimiMiiiimmmitiiMiiiiiitMiiiiiiiiiiMiiiimimi