Vikan


Vikan - 02.05.1946, Page 10

Vikan - 02.05.1946, Page 10
10 VTKAN, nr. 18, 1946 ucimii m UbllUILIU o Matseðillinn Sveskjusúpa. 2 lítrar vatn, Ms kg. sveskjur, 125 gr. sykur, 40 gr. kartöflu- mjöl. Sveskjurnar eru þvegnar og látnar Hggja í bleyti í einn sólarhring. Soðn- ar I sama vatninu I 20 mínútur. Þá éru teknar frá 25 heilar sveskjur og geymdar, en hinum er núið í gegnum fínt sigti. Súpan er síðan látin I pott- inn aftur og þegar suðan er komin upp, er hún jöfnuð með kartöflu- mjölinu, sem áður hefir verið hrært út í köldu vatni. Þá er suðan aðeins látin koma upp, og heilu sveskjurnar síðan látnar út í. Eorið á borð með hveitibollum eða tvíbökum. Kjötréttur: Skjaldbökubróðir. Kálfshaus, 1 kg. fiskfars, 1 kg. kjötfars, 2 vænar gulrætur, 2—3 laukar og ofurlítill rauð- ur pipar. 1 sósuna: 150 gr. , smjör, 150 gr. hveiti, soð af kálfhausnum og jurtunum, % peli af sjerry eða madeira og salt eftir bragði. Þegár búið er að ná vel hárinu af lcálfshausnum, er hann klofinn og látinn í bleyti í vatn, svo að alit blóð- ið dragist út; þvi næst er hann lát- inn í sjóðandi vatn og skafinn. Þar næst skolaður úr tveimur til þremur köldum vötnum og látinn liggja í köidu vatni yfir nóttina. Þá er hann settur í pott yfir eldinn, ásamt % matskeið af salti og soðinn í tvo til þrjá tíma. Þegar kjötið er vel laust frá beinunum, er það tekið af, látið í fat og létt pressa sett ofan á. Þegav það er orðið kalt, er það skoriö í litla teninga, hér um bil 1% þumlung á kant. Gulræturnar og laukarnir eru afhýddir og skornir niður og látið í pott ásamt 100 gr. af smjöri og brún- að. Soðinu af kálfhau3num síðan hellt yfir og bætt út í matarlit og pipar. Þetta er látið sjóða í eina klukku- 'stund, síðan er það síað og sósan þynnt út með soðinu. Þá er vínið lát- ið í sósuna og meiri matarlitur og salt ef þarf; soðið hægt í 6—8 mín- útur. Kjötteningunum af hausnum síðan bætt út í ásamt steiktum og soðnum kjöt- og fiskbollum, sem stimgnar hafa verið með teskeið. Þetta er síðan látið hitna vel i gegn og borið á borð með sundurskorn- um 2 harðsoðnum eggjum, sem látin eru á fatið.1 Smjördeigssnittum raðað í kring á fatið. Tízkumynd í heima á kvöldin. Handvegirnir eru víðir og rendumar brúnar. Pilsið er fellt undir mittisstykkið að framan. £ Hraðfrystur fiskur Þorskflök og ýsuflök, án þunnilda og roð- laus, vafin í cellophan-pappír og í pappa- öskjum, er vega eitt kíló, fást á morgun og framvegis í eftirgreindum verzlunum: 1 Reykjavík: í búðum Sláturfélags Suður- lands og í verzl. „Kjöt & Fiskur“. í Hafnar- firði: í verzl. Jóns Mathiesen og í „Stebba- búð“. Ishús Haínarfjarðar h.f. $ >v h i & U m t rj á rœ kt. Úr Garðyrkjuritinu 1945. 1 síðasta blaði birtum við fyrri hluta greinarinnar ,,Gróð- urþankar“, eftir Sigurð Sveins- son, en héma kemur seinni hluti hennar. Fjöldi fólks um allt land hefir áhuga á þessum málum, en samt þarf hann að aukast mjög og verða almenn- ari nú, því að vel hirtir trjá- og blómagarðar em til hinnar mestu prýði. TrjáræKtin þarf að margfaldast á næstu árum, vanda þarf meira undmbuning fyrir gróoursetningu trjánna almennt en nú er og um- hirðu alla, því fátt er eins fallegt og vel hirtur og þróttmikill trjágróður, auk þess sem hann veitir öllum lág- vaxnari gróðri mikið skjól. Ættum við að hafa aörar þjóðir til fyrir- myndar hvað viðkemur gróðursetn- ingu trjáa til skjóls og gróðursetja margar samliggjandi raðir af trjám, þar sem það á við, t. d. þar, sem um stóra garða er að ræða, og mun það auka til mikilla muna fegurðarútlit garðanna. Þýðingarmikið atriði við trjárækt- ina er, að velja réttar trjátegundir eftir því, sem bezt hentar á hverjum stað, þvi að kröfur trjátegundanna til ræktunarskilyrða eru misjafnar. Engum efa er það bundið, að birkið er sú trjátegund, sem við eigum að rækta langsamlega mest af. Þessi trjátegund er fyrir mörgum manns- öldrum búin að sanna, hversu mikla yfirburði hún hefur fram yfir annan trjágróður hér á landi, þegar um mismunandi og léleg ræktunarskil- yrði er að ræða. Víðirinn er að vísu álíka harðgerr trjátegund, en fleiri munu þó kjósa að hafa birkitré í garði sinum. Að telja upp allar helztu trjá- og runnategundir, sem hér hafa verið ræktaðar, og jafnframt lýsa kostum þeirra og löstum, ef svo mætti að orði komast, t. d. næmleika fyrir sjúkdómum, ennfremur jarð- vegs og loftslagskröfum þeirra o. s. frv., væri alltof langt mál í stuttri blaðagrein. Ég vil þó enn geta nokkurra atriða vegna trjáræktarinnar hér í Reykja- vík. Eins og bæjarbúar vita, herja hér sveppasjúkdómar í reynitrjám. Sjúkdómar þessir hafa herjað hér í þessum bæ áratugum saman og nærri eyðilagt öll reynitrén á stórum svæð- um í bænum og eru útbreiddir um allan bæinn að meira eða minna leyti. Útbreiddasti sjúkdómurinn er reyniátan (Nectria galligena). Sjúk- dómurinn lýsir sér þannig, að við sár, sem koma á börkinn, kemur rauður hringur, viðurinn dregst saman á þessum bletti og fellur inn. Nái skemmdin umhverfis greinina visnar hún og deyr. 1 slíkum tilfellum er ekki annað ráð en að skera greinina burtu og brenna hepni eða koma því svo fyrir, að hún smiti ekki frá sér. Sé veikin á byrjunarstigi, má oft upp- ræta sjúkdóminn í trénu með því að skera skemmdina burtu með beittum hníf, nauðsynlegt er að skera bark- arrendurnar kringum aðalsárið inn i ósýkt tré, svo að vissa sé fyrir þvi, að maður hafi komizt fyrir sjúkdóm- inn, bezt er að bera koltjöru I sárið á eftir, málningu má einnig nota, en hún er tæplega eins góð til þessara hluta. Trjásjúkdómarnir verða aldrei upp- rættir hér í Reykjavík nema með róttækum aðgerðum og fullum skiln- ingi allra er hlut eiga að máli. Fleira er þó, er stendur reyninum fyrir þrifum hér en sjúkdómarnir einir, víða er jarðvegurinn alltof grunnur fyrir reynitré og grunnt niður á seltu, því að sjór síast upp í jarð- lögin víða í miðbænum, einnig hefur loftslagið hér við sjóinn mikil áhrif til hins verra, og ýmsir munu telja það aðalástæðuna. En sem sagt, merkin sýna verkin, og aðalorsakirnar eru þær, sem ég hef áður lýst, vil ég því eindregið ráðleggja Reykvíkingum að rækta fyrst og fremst birki í görðunum, en miklum mun minna af reyni, og ekki nema þar, sem þeir geta skapað trjánum góð vaxtarskilyrði, sparið ekki um of áburðinn og notið fyrst og fremst búpeningsáburð, sé hann fá- anlegur. Almur og hlynur. Þessar tvær trjá- tegundir hafa sums staðar hér í bæ náð miklum þroska, og eru til nokkur stór tré af þessum tegundum. Er sjálfsagt að rækta meira af þeim en gert hefur verið hingað til, þar sem skilyrði eru góð. Ég læt svo þessa gróðurþanka frá mér fara í þeirri von, að fleiri hug- leiði þetta mál og hafi af því nokkur not. H ú s r á 9 Það er mjög varasamt að fást sjálfur við rafmagnstæki, ef þau eru eitthvað biluð. Það á ætíð að fá raf- magnsmenn til að gera við allt slíkt. HtJSMÆÐUR í MUNIÐ:

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.