Vikan


Vikan - 08.08.1946, Blaðsíða 13

Vikan - 08.08.1946, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 32, 1946 13 Felumynd. Faðirinn: Hver var hjá þér? Hvar er hann ? Getið þið fundið manninn ? Skrítlur. Gömul kona nokkur heyrði einu sinni ákaflega snjalla ræðu um kærieikann, sem hafði svo djúp áhrif á hana, að hún sór þess dýran eið, að aldrei skyldi hún fram- ar vísa nokkrum betlara frá dyrum sínum. Skömmu seinna kom þurfa- lingur til hennar og æskti hjálpar. Hún vatt sér inn fyrir og kom að vörmu spori aftur með vænan brauð- hleif, sem hún hafði aflað sér í búri ieigjanda síns. / * Eldri frú (við Guðríði): „Drekkið þér nokkum tima vin?“ Guðriður: „Áður en ég svara, er þetta boð eða aðeins fyrirspum." . * Bóndi nokkur auglýsti, að hann vildi selja gyltu, ásamt nokkmm nýfæddum grísum. Litlu síðar kom ókunnugur maður og hitti hann konu bóndans úti. ,,Ég vildi gjaman fá að sjá svinið," sagði hann. „Ja, hann er því miður ekki heima," sagði konan, „og ég býst ekki við að hann komi heim fyrr en í kvöld." Formaður i iþróttafélagi sat veizlu með félögum sínum. Þar var margt rætt og spjallað. Hann þakkaði þeim mikillega fyrir vináttu þeirra og ánægjulegt samstarf og þó að hann óskaði félaginu langra lífdaga og mikils frama, þá gæti hann samt ekki dulið' það, að ef einn ákveðinn maður úr félaginu vildi vera svo góður að gefa upp öndina, skyldi hann koma honum í gröfina, honum að kostnað- arlausu. 1 sama bili heyrðist hár hvellur við borðsendann. Þegar að var gáð, var þetta Skoti, sem hafði stytt sér aldur. * Strákurinn: Mér var sagt, að þetta væri lindarpenni og þá hélt ég, að það væri gott að skrifa með honum i vatni. Viggó og austanvindurinn. BARNASAGA. UH, hvað það er hvasst!" sagði fólkið stynjandi og staulaðist áfram á móti austanvindinum, sem feikti upp rykinu á veginum og blöð- unum af trjánum. „Mér er alveg sama um vindinn!" sagði Viggó hlæjandi. „Eg get vel haft mig á móti honum, hvað sem austanvindurinn blæs mikið!" Hann hljóp eftir veginum og stóð vindurinn í bakið á honum og var eins og hann ýtti honum áfram. „Svo að þú þykist geta haft við mér!" hvíslaði vindurinn í eyra Vigg- ós, „við austanvindinum!" „Já, það gæti ég, ef ég sneri mér við," sagði Viggo hugdjarfur. „Nei, nú kemur þú með mér!“ ýlfr- aði austanvindurinn, ,,og þá sjáum við, hvemig fer!“ Viggó vissi eiginlega aldrei, hvemig það vildi til, en honum var ýtt af austanvindinum upp brekkuna, fram hjá vindmyllunni, og síðan hófst hann í loft upp og þaut áfram í skýj- unum. En hann féll ekki aftur niður og meiddi sig — þvi fór fjarri, heldur sá hann, að hann var borinn áfram af örgeðja náunga, með reiðilegt andlit, og blés hann og másaði og benti fram fyrir sig. „Hingað eigum við að fara!“ blés austanvindurinn. „Þetta em Vind- heimar, höll konungsins okkar." Eftir skamma stund vora þeir komnir þangað. Höllin var stór og skrautleg og í kringum hana stóðu lítil, snotur hús í þyrpingu og braut Viggó hsilann um, hver skyldi búa í þeim. „Héma búa sumargolumar!" sagði lítil stúlka, sem sýndist vera álfur og stóð fyrir framan eitt húsið. „Ég er kvöldblærinn, en systir mín, morgunblærinn, býr við hliðina á mér." „Og þama býr sunnanvindurinn og konan hans rigningin, sem grætur oft," sagði morgunblærinn. „Hver á þetta stóra hús á hom- inu?" spurði Viggó. „Þetta er höll norðanvindsins; þarna býr hann til snjóinn og haglið!" sagði kvöldblærinn. „Er það ekki vestanvindurinn, sem á húsið þarna við vatnið?" spurði Viggó. „Mér finnst ég finna lykt af sjávarseltu." „Jú, það er alveg rétt hjá þér, og beint á móti þvi er höll austanvinds- ins og þar er bæði hiti og kuldi, eins og þú veizt," sagði morgunblær- inn hlæjandi. En nú var sent eftir Viggó og hon- um ságt að koma, því Fellibylur kon- ungur vildi tala við hann. Fellibylur sat í hásæti stnu og í kringum hann sátu allir vindar heimsins með konur sínar, böm og skyldmenni. Þama voru sumargolumar og hinn sterki norðanvindur; vestavindur- inn, sem er svo stórviðrasamur, og hinir brennandi heitu eyðimerkurvind- ar; hressandi norðvestanvindurinn og konan hans.sólbirtan, og rakur suð- austanvindurinn. Eyðimerkurvindarn- ir voru sveipaðir hirðingjakápum, suðvestanvindurinn líktist Itala, norðaustanvindurinn var Grænlend- ingur og sunnanvindurinn var hulinn skýjáhnoðram, en á milli þeirra gægðist konan hans, rigningin, og grét. Litill, bráður náungi, klæddur eins og Svisslendingur, hoppaði um og blés af hita. „Þetta er fönvindurinn, sem blæs i Alpafjöllunum og bræðir snjóinn þar, svo að ámar vaxa og bólgna upp og rífa með sér hús og brýr í vorleysingunum," sagði morgunblær- inn. Viggó hafði ekki imyndað sér, að það væru til svona margir vindar, því að þama vora samankomnar vinda- verur frá Asiu, Suðurhafseyjum, Ameríku og Ástralíu, og allir voru forvitnir að sjá drenginn, sem þóttist hafa við austanvindinum. „Gáttu fram fyrir hásæti mitt," sagði Fellibylur konungur og var rödd hans svo ægileg, að undir tók í saln- um, „þú hefir sagt að þú myndir hafa við austanvindi, þjóni mínum, sannaðu það nú, annars fer illa fyrir þér." Austanvindurinn, grannvaxinn en þó sterkleg vera, sveipuð gulum, flaks- andi klæðum, stökk fram. Eftir skamma stund voru þeir Viggó ög hann komnir í áflog. Það var illt að fá höggstað á aust- anvindinum, hann var ýmist til hægri eða vinstri við Viggó og högg hans voru ekki eins kröftug og búast mátti við. Viggó varð mest ringlaður af gulum, rykugum fötum austanvinds- ins, sem reyndi sífellt að vefja þeim utan um andlit hans og hendur. Einnig varð hann móður og másandi. En hann var svo duglegur, að Felli- bylur konungur hrópaði allt í einu með dynjandi rödd. „Þetta er nóg! Drengurinn hefir sannað þau ummæli sín, að hann gæti haft við austanvindinum. Lofum hon- um nú að fara aftur í friði." Vindamir klöppuðu saman lófunum af gleði og það varð svo hvasst í salnum, að Viggó hélt að hann ætlaði að fjúka burt. En þá varð aftur þögn og kyrrð og Viggó spurði: „Leyfist mér, yðar tign, að fara aftur til jarðar?" Konungurinn sneri sér vingjarn- lega að honum og sagði; „Hvemig ætlarðu að komast T Aaustanvlndurinn bar þig upp, en nú er hann of þreyttur til að fara me® þig niður aftur." Austanvindurinn blés og stundi eftir áflogin, sveipaði að sér kápunni og sagðist ætla að leggja sig í þrjár vikur. „Þá ætla ég að bera þennan dug- lega dreng heim," sagði vestanvindur- iun, „þú ert ekkert hræddur við að vökna, því að kápa mín er dálítið rök, síðan ég blés yfir Atlantshafið." Viggó setti það ekki fyrir sig, held- ur hoppaði upp á grábláa kápu vest- anvindsins — hún lyktaði duglega af sjávarseltu — og svo flugu þeir burt frá Vindheimum. Að síðustu komu þeir til jarðar á grasbalanum á bak við heimili Vigg- ós. „Þú fórst burt með austanvindinum og kemur með vestanvindinum," sagði móðir hans og lokaði gluggan- um, sem regnið buldi á, „þetta er alveg hræðilegt rok, sem við höfum haft í dag." „En við fáum ekki austanvind fyrst um sinn," sagði Viggó.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.