Vikan - 24.07.1947, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 30, 1947
PÓSTURINN •
Kæra Vika!
Við erum hér tvær vinkonur. Við
sáum myndina „Ali Baba og hinir 40
ræningjar". Er Jon Hall íslenzkur,
ef ekki, hverrar þjóðar er hann þá?
Er hann giftur? Er Turham Bey
giftur ?
Með fyrirfram þökk.
J. G. S.
Svar: Við vitum ekkert annað um
uppruna Jon Hall en það, að hanr
er fæddur i Presno í Kaliforníu 1911,
Hann er kvæntur Frances Langford.
Turham Bey er ókvæntur.
Kæra Vika'.
Viltu nú ekki vera svo góð 04
segja mér eitthvaö um leikaranft
Jennifer Jones og Robert Walker.
Með fyrirfram þökk fyrir svarið.
I. K.
Svar: Jennifer Jones er fædd 2.
marz 1919 í Tulsa í Oklahóma í
Bandaríkjunum. Hún var gift Ro-
bert Walker og átti með honum tvö
böm. Vann áður við útvarp og heitir
réttu nafni Phyllis Isley. — Robert
Walker er fæddur 13. október í Salt
Lake City, Utah, og starfaði þar við
útvarpsstöð. Hann hefir mikið yndi
af að safna fáséðum, gömlum hús-
gögnum. Síðustu myndir hans em:
„Since You Went Away“, „See Here,
Pvt. Hargrove", „The Clock" og
„Her Highness and the Bellboy".
Kæra Vika!
Geturðu sagt mér hvað þarf háan
aldur til að mega aka reiðhjóli með
hjálparvél, og ennfremur hvort borga
þarf nokkum vegaskatt af þeim. Og
helzt að segja mér hvað þau muni
kosta. Hvemig finnst þér skriftin?
Með fyrirfram þökk.
Sveitamaður.
Svar: Til þess að mega aka reið-
hjóli með hjálparvél þarf samskon-
ar próf og við akstur mótorhjóls.
Skal það tekiö hjá Bifreiðaeftirlitinu
eða einhverjmn, sem til þess em skip-
aðir. Aldursmarkið er 18 ár, Vega-
skattur er 60 krónur á ári, en auk
þess er iðgjald af ökutryggingu. —
Hjólin munu ekki fáanleg núna, en
kostuðu um 1700 krónur. Skriftin er
læsileg og ekki ósnotur.
Kæra Vika!
Vegna þess að þú hefir svo oft og
margsixmis leyst vel og dyggilega úr
spumingum mínum og annarra
langar mig enn einu sinni til að
kvabha á þér. Málefnið er, að mig
og vin minn langar ákaflega til að
komast í bréfasamband við unga Is-
lendinga í N.-Ameríku, helzt í Winni-
peg. Er ekki eitthvert blað er getur
komið þess háttar á framfæri.
Við væntum svars í næsta blaöi.
Fyrirfram þakklæti.
Hnífsdælingur.
Svar: Reynið aö skrifa vestur-ís-
lenzku blöðunum, t. d. Heimskringlu.
Heimilisfang hennar er: 853—855
Sargent Avenue, Winnipeg, Man.,
Canada.
Halló Vika!
Þú, sem allt veizt. Viltu gera svo
vel og veita okkur svar við neðan-
greindum spumingum. Hvað er meðail
kvenmaður hár? Og meðal karlmaö-
ur ? Fyrirfram þakkir.
Fjóla og Lilja.
Svar: Meðalhæð íslenzkra karla er
talin 173 cm., en kvenna 10 ona.
minna.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
(Þær beiðnir um bréfasamband, sem
sendar vom til okkar áður en ákveð-
ið var að taka greiðslu fyrir að birta
þau þarf auðvitað ekki að borga).
Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem
óska aö komast i bréfasamband:
María Jónsdóttir (17—19 ára), Vest-
urgötu 77, Akranesi.
Soffía Lárusdóttir (15—18 ára),
Mjóstræti 1, Siglufirði.
Jóna Ragnarsdóttir (14—17 ára),
Eyrargötu 3 B, Siglufirði.
Björg Þorleifsdóttir (12—15 ára),
Grundargötu 19, Siglufirði.
Guðrún K. Jakobsdóttir (13—15 ára),
Efri-Sandvík, Grímsey.
Inga B. Óladóttir (14—16 áa-a),
Sveinsstöðum, Grimaey.
Guðrún A. Kristjánsdóttir (15—17
ára), Sjálandi, Grimsey.
Rósa Jóhannsdóttir (16—18 ára),
Sjálandi, Grímsey.
Tækifærisgjafir
Gottsveinn Oddsson
úrsmiður. - Laugavegi 10.
(Gengið inn frá Bergstaðastr.)
Ferðaskrifstofa ríkisins
gefur ferðamönnmn upplýsingar um allt, sem
lýtur að ferðalögum, skipuleggur og efnir tii
orlofs- og skemmtiferða.
Skrifstofan starfar einnig á Akureyri um
sumartímann og er þar í húsinu nr. 5 við Strand-
götu. Sími 475.
I Reykjavík er skrifstofan við Amarhólstún.
Sími 1540 (þrjár línur).
Ferðaskrifstofa rikisins.
Þetta er 60 manna Skoda-diesel strætis- og langferðabifreið, mjög mikið notaðar um alla Evrópu.
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.