Vikan


Vikan - 26.01.1950, Blaðsíða 7

Vikan - 26.01.1950, Blaðsíða 7
'VIKAN, nr. 4, 1950 7 Gullöld Islendinga Framhald af bls. 3. an heillaði huga hans frá námsárunum í Kaup- mannahöfn og til dauðadags . . .“. Alþingi veitti Jóni Aðils styrk til að stunda íslenzka sagnfræði á vísindalegan hátt. Skrifaði hann á Danmerkurárum sínum stórmerkar rit- gerðir. Þegar heim kom, eftir um áratugs dvöi úti, hóf hann að halda fyrirlestra í Reykjavík. Um það segir Jónas m. a. í umræddri grein: „ . . . Jóni hefur vafalaust verið fullljóst, áður en hann hóf þetta starf, að það lét honum mæta- vel. Saga landsins lá fyrir sjónum hans eins og opið landabréf. Hann var æfður fyrirlestrarmað- ur. Rödd hans var djúp, skýr og breytileg, fram- burður hans glöggur og framkoma hans í ræðu- stól hrífandi og áhrifamikil. Jón Aðils tók nú til óspilltra málanna. Vetur eftir vetur hélt hann opinbera sögufyrirlestra í Reykjavík. Um ræðu- stól hans fylkti sér í hvert sinn fjölmennur söfn- uður. Hann talaði um þau efni, sem æska landsins vildi fræðast um, einmitt á þessum vakningar- og umbrotatíma. Hann naut styrks til þessa fyrir- lestrahalds í 10 ár. Sigurður Kristjánsson gaf fyrirlestrana út í þremur bókum. „Islenzkt þjóð- erni“ kom út 1903, „Gullöld lslendinga“ þrem árum síðar og „Dagrenning" 1910. Árið eftir, 1911, var háskólinn stofnsettur á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar, og varð Jón Aðils þá dósent í sögu landsins við þá stofnun. Tók hann þá að gefa sig að nýjum viðfangsefnum.“ Jón Aðils kvæntist Ingileifu Snæbjarnardótt- ur Þorvaldssonar frá Akranesi árið 1904. Hann andaðist úr hjartaslagi í Kaupmannahöfn 5. júlí 1920, en hann hafði brugðið sér til Norðurlanda á sagnfræðingafund. Gullöld Islendinga skiptist í þessa kafla. Inn- gangur: Land og þjóð. Upphaf allsherjarríkis. Þjóðfélagslíf: I. Landstjórn. II. Héraðs- og sveita- stjórn. III. Löggjöf. Andlegt líf: IV. Heiðni. — Hof og blót. V. Kristni. — Kirkjan í elztu tíð. VI. Skáldskapur og sagnalist. VII. Hjátrú, seið- ur og galdrar. Atvinnu- og viðskiptalíf: VIII. At- vinnugreinar. IX. Verzlun og siglingar. Ytri lífs- kjör: X. Húsakynni. XI. Klæða- og vopnabúnað- ur. XII. Árstíðaskipti og árstíðastörf. -— Eykta- mörk. — Daglegt viðurværi. ■— Boð og veizlur. — Leikar og skemmtanir. Heimilislíf: XIII. Upp- eldi og æskulif. XIV. Fullorðinsár. — Festar og brullaup. — Hjúskaparlíf. — Foreldrar og börn. XV. Húsbændur og hjú. — Þrælahald og þræla- kjör. — Ævilok. Við Whitehaven á Englandi eru kolalög sem ná langt út i sjó. Hafa jarðgöng verið grafin allmarga kílómetra í sjó fram til þess að rann- saka magnið. Svör við „Veiztu—?“ á bls. 4: 1. Hún var það í sextán ár. Kona Thomas Jeffersons dó áður en hann varð forseti, svo að Dolly Madison, sem var kona ráðherra hans gegndi húsfreyjustörfunum. Síðan varð Madison forseti tvö timabil. 2. Þvottaskál. 3. I Róm 1835. 4. 1901. 5. 1859—1941. 6. Tirana. 7. 3.481 m., Sierra Nevada, Spáni. 8. 2.176.600 km!. 9. Færeyinginn William Heinesen. 10. „Skógur, þar sem hnetur eru tíndar (oft er getið um það í fornritum, hversu hættulegt sé fyrir ungar stúlkur að fara (einar) á hnotskóg" (orðaskýringar Riddarasagna). Margir eru þeir, sem ekki geta þolað sjúkra- húsþef. M. a. fór hann mjög í skapið á ilmvatna- framleiðenda einum í Indíanapolis, og tók hann sig til að finna upp eitthvert ráð svo að útrýma mætti þefinum. Er svo komið, að öll sjúkrahús í Indianapolis .anga af vorblómailman. ! ! ! Einstein féll á stærðfræði, þegar hann var að taka próf upp í menntaskóla, og Churchill þótti illa gefinn í skóla, af þvi að hann kunni aldrei neitt i latinu. En Montgomery var duglegur námsmaður, enda fékk hann alltaf 10 i biblíu- sögum. BUFFALO BILL 19. Kaupmannalest er á leið til Fort Piney til liðveizlu .... Gulhandi: „Það verður að hindra liðið. Hvaða leið kemur það?“ Indíáninn: „Ég veit það ekki.“ Gulhandi: „Calamité og Bill Hickok vita það áreiðanlega. Ég ætla sannarlega að fá að vita það.“ Bill Hickok: „Þarna koma Gulhandi: „Heyr- þeir. Bardaginn virðist ekki hafa ið þið, fölvangar. gengið að óskum. Nú ætla þeir að Ég ætla að koma hefna sín á okkur.“ með tillögu . . .“ Endursögn: Eft- ir miklar mann- raunir hefur tek- izt að ná Jóhönnu Calamité úr bráðri hættu. En hún er ekki af baki dott- in og leggur af stað undir leið- sögn Buffalo Bills í varaliði, sem sent var verjend- um Piney-vígisins, en á njósnaför eru þau handtekin af Indíánum, hún og Bill Hickok, alda- vinur Buffalo- Bills. Indíánar nálgast Pineyvíg- ið undir forystu Gulhanda, höfð- ingja síns. Indíánarnir hafa neyðzt til að hörfa undan og ætla að jneyða Jóhönnu og Hickok til að tala. Gulhandi: „Ég hef uppástungu fyrir þig, Calami- té. Heyrðu . . .“ . . . Þið verðið frjáls, ef þið segið frá, hvaða leið liðið kemur til Piney.“ Jóhanna: Hvaða leið talar þú um?“ Jóhanna: „Ég segi ekki orð, hvorki nú né síðar!" Gulhandi: „Þá verður vinur þinn, Hiclcok, að þola pyntingar. Gulhandi: „Farið með hvíta hundinn að pyntinga- staurnum!“ Jóhanna: „Hættið! Þið megið ekki pynta hann. Ég skal tala!“ Jóhanna: „Þú lofaðir okkur Hickok: Nei, Cali- Jóhanna: „Jú, lífinu og frelsi, Gulhandi." mité, segðu ekkert ... ég held ekki út Gulhandi: „Já, talaðu.“ segðu ekki frá neinu . .“ að sjá þá p'ynta þig. Liðið er á leið gegnum Savanna- skóginn."

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.