Vikan


Vikan - 26.01.1950, Síða 12

Vikan - 26.01.1950, Síða 12
12 VIKAN, nr. 4, 1950 „Þér eruð kona Garths Rosslyn, er það ekki? Hann hefur enn ekki tekið á móti heimsóknum frá neinum nema manni yðar.“ „Ég veit það,“ sagði Nada brosandi. „En hann getur ekki komið hingað nú, og — við héldum, að Tony vildi ef til vill gjarnan sjá mig.“ ,,Það vill hann efalaust." Hjúkrunarkonan hik- aði ekki lengur. Ungi maðurinn var efalaust mjög einmana hérna. Laglega unga hjúkrunarkonan leit ekki eins á þennan unga mann og alla hina sjúklingana. ,,Ég veit, að þér munið ekki segja neitt, sem getur komið honum í geðshræringu,“ sagði hún. „Nei, ég ætla aðeins að dvelja stutta stund,“ sagði Nada. Hjúkrunarkonan fór fyrst inn til Tonys. Hún beygði sig yfir hann og sagði blíðlega: „Það er heimsókn til yðar!“ En er hún sá svipinn á andliti Tonys um leið og Nada kom inn, fór hana að gruna margt. „Þér megið ekki koma honum í geðshræringu. Hann er mjög veikburða." „Nei, það er ég ekki. Ég er að verða sterkur aftur.“ Hjúkrunarkonan leit á hann úr dyrunum. Og, þegar Nada sá andlit hennar, varð hún áhyggju- full á svip. Alltaf, alltaf gat Tony fengið konur til að horfa á sig með þessu augnaráði — jafn- vel nú, er hann lá veikburða og brotinn. Svo voru þau ein, og Nada horfði í augu Tonys, sem skyndilega urðu svo fjörleg í fölu andlitinu. Áður hefði hún orðið óttaslegin yfir breytingunni, sem orðið hafði á honum, en nú fann hún ekki til meðaumkunar. Hún var undr- andi á því, hve köld og ákveðin hún var. Eng- inn hefði getað hindrað hana í að ná því, sem hún hafði ætlað sér. Án þess að taka í höndina, sem hann rétti að henni, settist hún við hliðina á rúmi hans. „Nada,“ sagði Tony. „Þú ert komin tii mín — þá veit ég, að þú hefur fyrirgefið mér.“ „Bíddu Tony,“ sagði hún og beygði sig yfir hann. „Eg má aðeins vera hér stutta stund, og mér var sagt, að þú mættir ekki tala. Og þess- vegna er ég hrædd um að ég verði að segja þér það, sem ég er komin til að segja, mjög hratt. Ég veit allt um þig og Lissu-------“ Hann hrökk við og gretti sig af sársauka. „Hefur Garth-------“ „Garth hefur ekki minnzt á það einu orði við mig,“ sagði hún mjög hægt og greinilega. „Veiztu að það er verið að neyða hann til að segja upp stöðu sinni við sjúkrahúsið ? Tony, þú verður að segja þeim sannleikann — eða hjálpa mér á einhvern hátt. Jafnvel þótt einhver kæmi hing- að — —“ Enda þótt hann væri veikburða, skildi hann strax merkingu þess, er hún sagði við hann, og jafnvel í veikleika sínum barðist hann gegn því. „Hver hefur sagt þér — þetta?“ spurði hann. „Enginn! Ég gat mér þess til sjálf. Þú skilur — ég veit, að hún var ástfangin af þér! — Hvað hefur það að segja, hvort það var satt eða ekki? — Ég vissi, að Garth var að hlífa einhverjum. Það ert þú!“ Skyndilega lagði hún höndina ofan á hans hönd og sagði með einkennilegri röddu: „Tony — ef þú hefur nokkru sinni elskað mig, hjálpaðu mér þá nú. Þú verður einhvern veginn að hjálpa mér." Hann var of veikur til að berjast meir á móti. Hún hafði hann algjörlega á valdi sínu. Það eina, sem hann gat spurt um, var: „Hvernig uppgötvaðirðu það, ef Garth sagði þér það ekki?“ „Það er alltof löng saga,“ sagði hún. „En.frú Dennison vissi, að það varst þú, sem Lissi hitti í kránni — svo að þú sérð, að við höfum vitni.“ Hann brosti biturlega. „Það sannar ekki neitt, góða min — en þú skalt ekki vera hrædd. Ég skal viðurkenna allt, ef þú heldur, að það muni hafa gott í för með sér.“ Hann var sigraður. Og meðvitundin um það fékk hann til að finna til innilegrar meðaumkun- ar með sjálfum sér. Hann lá augnablik grafkyrr með lokuð augu og sér til skelfingar sá Nada tvö stór tár koma undan augnalokum hans. Og skyndilega bráðnaði öll harka og reiði í henni og hún lagðist á kné við hliðina á rúminu. „Tony — ó, gráttu ekki! Ég fyrirgef þér allt — það er búið nú — það tilheyrir fortíðinni. Þú verður aðeins að hjálpa mér nú, ef þú getur. Af því að ég elskaði þig einu sinni--------“ Nada, sem hafði verið svo hraust og svo stolt, hún lá þarna á hnjánum og grátbað hann! „Það gagnar ekki nú að segja neitt,“ sagði hann lágt. „Skilurðu mig, elskan mín, það mun ekki hjálpa aðeins að segja eitthvað, — en ég á bréf — einhvers staðar í skúffunni minni — ég veit ekki, hvort þú getur fundið það. Það er þar — en ég man ekki hvar----------“ Rödd hans var veikari, dó út, og þegar hún sá, hve veiklu- legur hann var, hringdi hún strax bjöllunni og flýtti sér að dyrunum. Hjúkrunarkonan hlýtur að hafa beðið fyrir ut- an — hún kom næstum hlaupandi inn. Nada beið og sá, að unga, laglega hjúkrunarkonan beygði sig yfir sjúkling sinn. „Ég bið yður að fara nú,“ sagði hjúkrunar- konan. „Eftir augnablik verður hann orðinn góð- ur aftur — vona ég. Þér hljótið að hafa látið hann tala of mikið. Ég vil ekki, að hann fái fleiri heimsóknir." Nada flýtti sér út. Hún hafði beðið bílinn að bíða, en hún vissi, að engin lest fór til London fyrr en eftir eina klukkustund, og þess vegna spurði hún bílstjórann: „Viljið þér aka mér til London?" „Já, frú,“ sagði hann, „Það skal ég gera.“ 21. KAFLI. Stuttu eftir hádegið kom Nada að húsinu, sem Tony hafði búið í, áður en slysið vildi til. „Ég vil gjarnan fara upp í íbúð hr. Hammer- ton,“ sagði hún við dyravörðinn. Ég er kona Dr. Rosslyn, og ég kem beint frá sjúkrahúsinu. Hr. Hammerton bað mig um að ná í dálítið fyrir sig.“ „Já, gjörið svo vel, frú,“ sagði dyravörðurinn. „Ég skal fylgja yður upp. Þau fóru inn í lyft- una, á leiðinni upp spurði hann: „Hvernig líður veslings hr. Hammerton? Þetta var mjög sorglegt — einmitt þegar hann ætlaði að fara að leggja af stað í flugferðina. Ég efast um, að hann fljúgi nokkúrn tíma aftur!" „Það verður í það minnsta langt þangað til — ef hann gerir það nokkurn tíma.“ Og ef hann getur ekki flogið meir, mundi hann þá ekki langtum heldur vilja deyja? spurði Nada sjálfa sig. Og þótt undarlegt megi virðast, datt henni á þessu augnabliki í hug laglega hjúkr- unarkonan, sem hafði beygt sig yfir hann. Stofurnar voru nákvæmlega eins og hann hafði skilið við þær. Dyravörðurinn opnaði fyrir henni og fór svo. Augnablik stóð Nada hikandi í miðju herberginu, svo settist hún fyrir framan skrif- borðið og fór áð opna skúffurnar. Hann hafði sagt, að það væri bréf, en hann hafði ekkert sagt um, frá hverjum það væri eða hvar það væri, enda þótt hún gæti sér til, að það væri frá Lissu. En ekkert bréf var i skúff- unum. Nada stóð upp og gekk í þungu skapi inn í svefnherbergið. Ef honum hefði alls ekki verið ljóst, hvað hann var að segja — eða hefði gleymt, að hann ætti ekki lengur bréfið, sem hann hafði sent hana eftir. Ef til vill var búið að eyðileggja það. Það var heldur ekkert í náttborðsskúffunni. Tóm ferðataska stóð við hliðina á rúminu, læst ferðakista við endann. Hún opnaði klæðaskáp- inn og athugaði fötin, sem þar héngu. Hann hafði verið á leið til Brighton, þegar slysið vildi til — hann hlaut að hafa haft föt með sér. Alveg ó- sjálfrátt rétti hún höndina að gráum jakka og ötakk hendinni í vasann. Og augnabliki síðar tók hún upp umslag-------- Einkamdl! Anthony Hammerton Hún hafði áður séð þessa rithönd á skrifbók- um barnanna og hugsaði um, hve lítið, hún líkt- ist vanalegri barnfóstruskrift. Hún tók bréf út úr umslaginu. Hendur henn- ar titruðu — þetta var andstyggilegt. Þetta var eins og að hnýsast í dauðs manns skjöl. En hún vísaði þeirri hugsun á bug — hún vissi, að þetta var ekki stund til að verða viðkvæm. Kœ.ri Tony! Eg hef komizt að þeirri niðurstöðu, að heimskulegt mundi vera að halda áfram að lifa á þennan hátt. Framhald á bls. lj. MAGGI OG RAGGI Teikning eftir Wally Bishop. 1. mynd: Amma (kallar að innan): Sæll Billi minn! Billi: Má ég fá eitt epli, frú? 2. mynd: Amma: Vissulega, Billi. Ég er ný- búinn að ttna þau af eplatrénu okkar. Ég býst við að þú hafir aldrei bragðað eins góð epli. Billi: Það er nú ekki alveg rétt. 3. mynd: Amma: Nei, Billi, nú ertu svei mér góður! Hvenær hefur þú bragðað svo góð epli- Billi: I morgun — 4. mynd: — þegar ég klifraði upp í tréð i garð- inum þinum ! ! !

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.