Vikan - 24.10.2000, Qupperneq 6
flSTlM SPYR EKKIUM ALDUR
Fyrir stuttu var ég
stödd í hópi kvenna á
ýmsum aldri og eins
og gjarnan þar sem
margar konur eru
samankomnar var
mikið rætt og víða
komið við. Meðal ann-
ars voru á lofti ýmsar
vangaveitur um ást-
ina og allar vorum við
sammála um að ástin
væri flókið fyrirbæri
sem oft gæfi tilefni til
þess að saklausir aðil-
ar, sem ekki hefðu
gert neitt af sér annað
en að verða ástfangnir,
lentu á milli tannanna
á fólki. Sem dæmi um
það var nefnt þegar
,,eldri“ konur verða
ástfangnar af sér
miklu yngri mönnum.
Sjálf var ég um langt
skeið fórnarlamb slúð-
urberanna, en undir
öfugum formerkjum.
Ég varð ástfangin af
manni sem var miklu
eldri en ég.
gvarung þegaréggift-
ist fyrri manninum
mínum. Við vorum á
svipuðum aldri og búin
að vera saman frá því við vor-
um unglingar. Foreldrar mínir
voru efnaðir, ég var einkadóttir
ogsvolítil dekurdúkka. Foreldr-
ar hans börðust hins vegar í
bökkum með stóran barnahóp.
Ég nautalls þesssem lífið hafði
upp á að bjóða, fór í málaskóla
erlendis á hverju sumri þegar ég
var unglingur og sneri til baka
uppfull af sögum utan úr heimi.
Sjálfsagt hefur kærastinn minn
verið afbrýðisamur því sjálfur
þurfti hann að vinna öll sumur
til þess að eiga vasapeninga yfir
veturinn.
Foreldrar mínir kunnu vel við
hann og þegar hann lauk námi
frá Iðnskólanum hjálpaði pabbi
honum að stofna lítið fyrirtæki.
Við giftum okkur stuttu síðar
og á brúðkaupsdaginn fluttum
við inn í litla íbúð sem foreldr-
ar mínirgáfu okkur í brúðargjöf.
Sú gjöf varð reyndar tilefni
fyrsta rifrildis okkar hjónanna,
manninum mínum fannst ekki
rétt að við fengjum allt upp í
hendurnar. Ég sá hins vegar
ekkert athugavert við það, enda
vön því að þurfa ekkert að hafa
fyrir hlutunum.
Maðurinn minn var góður
maður og kannski hefðum við
lifað hamingjusöm til æviloka ef
við hefðum eignast barn. Það
tókst okkur hins vegar ekki og
ég tók það mjög nærri mér. Ég,
sem hingað til hafði fengið allt
sem mig langaði í, átti bágt með
að sætta mig við að vera neitað
um það eina sem mig virkilega
langaði til að eiga. En barn verð-
ur ekki keypt fyrir peninga.
Læknirinn
Ég lagðist nokkrum sinnum
á sjúkrahús þegar verið var að
reyna komast að orsökum þess
að ég gat ekki orðið barnshaf-
andi. Það var í einni sjúkrahúss-
legunni sem ég fyrst sá seinni
manninn minn. Flann var lækn-
ir við sjúkrahúsið og ég sá hann
daglega á göngunum. Það var
eitthvað við þennan mann sem
ég féll kylliflöt fyrir þótt ég
þekkti hann ekki nokkurn skap-
aðan hlut. En auðvitað kom að
því að ég útskrifaðist af sjúkra-
húsinu og smám saman dofnaði
minningin um hann.
Örlögin gripu í taumana
nokkrum árum seinna. Égvarað
leita mér að vinnu og einn dag-
inn hitti ég gamla skólasystur
mína sem vann á sjúkrahúsinu.
Hún benti mér á lausa stöðu
þar, ég sótti um starfið og fékk
það. Ég veit að ég gleymi því
aldrei þegar ég sá lækninn aft-
ur. Ég var á gangi eftir einum
af löngum göngum sjúkrahúss-
ins þegar ég gekk allt í einu í
fangið á honum í bókstaflegri
merkingu. Ég var með pappírs-
bunka í höndunum og við
áreksturinn flugu blöðin í allar
áttir. Eldrauð í kinnum tíndi ég
þau upp, með aðstoð læknisins.
Auðvitað var ekkert eðlilegra
undir þessum kringumstæðum
en að við tækjum tal saman.
Þannig voru okkar fyrstu kynni,
kynni sem áttu eftir að verða
náin og valda mörgu fólki sárs-
auka.
Ástarjjátning
Ég var, þegar þarna var kom-
ið sögu, um þrítugt og búin að
vera gift manninum mínum í tíu
ár. Hjónabandið var gott þótt
barnleysið varpaði skugga á
hamingju mína. Ég hafði aldrei
fundið þörf fyrir að vera með
öðrum manni og alltaf verið
manninum mínum trú.
Það leið þó ekki á löngu þar
til ég var komin í hlutverk ótrúu
konunnar. Ég tók fljótlega eftir
þvf að læknirinn gaf mér auga
og var ískyggilega oft staddur
á sama stað og ég. Hann gerði
sérerindi inn á deildina þarsem
ég vann, dokaði við og sagði við
mig nokkur orð. Hann var mjög
myndarlegur maður, hávaxinn
og grannur. Ég vissi ekki hvað
hann var gamall en giskaði á
að hann væri líklega um það bil
tuttugu árum eldri en ég. Eitt
sinn, þegar ég var á leiðinni
heim, sá ég hann fyrir utan
sjúkrahúsið á tali við konu sem
ég frétti nokkru seinna að væri
konan hans. Hún var mjög
glæsileg og mér fannst ekki
mikið til mín koma í saman-
burði við hana.
En það kom æ betur í Ijós að
læknirinn var ekki sama sinn-
is. Einn daginn sagðist hann
langa til að ræða við mig undir
fjögur augu og spurði hvort ég
vildi koma með honum ígöngu-
ferð þegar ég væri búin að
vinna. Ég vissi ekki hvaðan á
mig stóð veðrið en áður en ég
vissi af var ég búin að lofa mér
með honum í gönguferðina sem
varð upphafið að sambandi okk-
ar.
Við ókum út úr bænum og
meðan við gengum úti í nátt-
úrunni lagði hann spilin á borð-
ið. Hann sagðist vera ástfang-
inn af mér, hann réði ekki við
þær tilfinningar hvernig sem
hann reyndi að streitast á móti.
Að lokum spurði hann hvort ég
héldi að hann væri genginn af
göflunum, hvort mig hefði grun-
að þetta og það sem honum
þætti allra mikilvægast, hvort
ég bæri einhverjar tilfinningar
til hans.
Hann var grafalvarlegur og
varð sár og undrandi þegar ég
fór að skellihlæja. Ég reyndi að
stilla mig og sagðist vera að
hlæja vegna þess að ég hefði
fallið fyrir honum fyrir mörgum
árum, þótt ég hefði aldrei séð
hann nema í fjarlægð, og þess-
6
Vikan