Framtíðin - 15.04.1923, Page 1
FRAMTIÐIN
Ritstjóri: Hinrik Thorarensen.
I. Árgangur.
Siglufirði 15. apríl 1923.
5. tölublað.
Alþingi.
Vog og mælir.
Lárus Helgason, þingin. Skaftfell-
inga, hefur komið fram með frum-
varp til laga um rnælikvarða og
vogaráhöld. Er þar farið fram á, að
leggja niður mæli- og vogarskrif-
stofuna, en fela lögreglustjóranum
starf hennar.
Nýr banki.
Nýlega hefir verið útbýtt í nd.
frumvarpi um heimild fyrir lands-
stjórnina til að veita ýms hlunnindi
fyrirhuguðum nýjum banka i Rvík.
Flutningsmennirnir eru Jakob Möller,
Pétur Ottesen, Hákon J. Kristófers-
son, Pórarinn Jónsson, Porleifur
Ouðmundsson, Benedikt Sveinsson,
Einar Porgilsson og Lárus Helgason.
En í framkvæmdanefnd þess fyrir-
hugaða hlutafélags, sem bankan ætl-
ar að starfrækja, eru nú þeir Eggert
bóndi Benediktsson í Laugardælum,
Gunnar konsúll Ólafsson f Vest-
mannaeyjum, Morten kaupmaður
Ottesen í Rvík, Sigurður hæstarétt-
armálarlutningsm. Sigurðsson. í Rvík
og Pórður kaupmaður Sveiusson.
Bankanum á að vera heimilt að reka
sparisjóðsstarf, samkv. 4. gr laga
nr 44, 3. nóv. 1915. Hann á að vera
undanþeginn opinberum gjöldum og
sköttum en greiða í ríkissjóð hluta
af hreinum ársarði sínum, sem hér
segir:
Frá ársarðinum dragist fyrst hæli-
leg fjárhæð til afskriftar af væntan-
legu bankahúsi og innanstokksmun-
um, þar næst beint áfallið tapbank-
ans og síðast 15% af hlutafénu til
varasjóðs og 5% til hluthafaarðs.
En af því, er þá verður eftir, greiðist
ríkissjóði: 2l/z% af fyrstu 50 þús.
kr., 5% af öðrnm 50 þús kr .,
7V,°/0 af þriðju 50 þús kr., 10%
af fjórðu 50 þús kr. og 15% af því
sem þá verður fram yfir.
Hlunnindin samkv. lögum þess-
um hatdast fyrst um sinn þann
tíma, sem nú er eftír af hlunninda-
tíma íslandsbanka, samkvæmt lög-
um nr. 11, 7. júní 1902, og aug-
lýsingu nr. 48, 25. nóv. 1903.
Ennfremur er gert ráð fyrir því,
að hlunnindi þessi séu þeim skil-
yrðum bundin, sem hér segir:
»a. Hlutafé bankans má eigi vera
minna en 2 miljónir og eigi meira
en 6 miljónir króna, og skulu að
minsta kosti 55 prc. hlutafjárins
boðin út innanlands í hálft ár eftir
að lögin öðlast gildi. Meiri hluti
bankastjórnar (bankaráðs) séu ís-
lendingar, búsettir á íslandi. b. Bank-
inn skal hafa heimili og varnarþing
í Reykjavík. c. Ráðuneytið skipar
einn af þrem endurskoðendum bank-
ans. d. Bankinn skal jafnan hafa í
auðseldum verðbréfum, er ráðherra
tekur gild, sem svarar 10 prc. af
sparisjóðsfé því, sem hann geymir
hverju sinni, til tryggingar því.
e. Reikninga bankans skal birta
opinberlega á þann hátt, sem leyf-
isbréf segir til. f. Bankinn má ekki
lána fé gegn trygging í hlutabréf-
um sjálfs sín. g. Bankinn skal taka
til sarfa fyrir árslok 1924. h. Ráðu-
neytið getur sett bankanum frekari
skilyrði í leyfisbréfinu, ef þörf þykir,
enda fari þau ekki í bága við lög
þessi.«
í greinargerðinni segir:
»— — Um hlutafé til þessa fyrir-
hugaða banka skal þess getið, að
erlendis hefir verið utinið að undir-
búningi hlutafjársöfnunar til bank-
ans, og hafa undirtektir reynst svo
góðar, að full ástæða er til að ætla,
að nægilegt fé fáist.«
Jón Baldvinsson talaði með frum-
varpinu, en enginn á móti, og var
því vísað til 2. umræðu með 19
samhljóða atkvæðum.
Mentaskóli á Akureyri.
Porsteinn Jónsson flytur frumv.
um stofnun mentaskóla Norður- og
Austuriands á Akureyri. Sigurður
Guðmundsson skólameistari við
gagnfræðaskólann á Akureyri hefur
samið frumvarpið. í greinargerð
þess er fullyrt, að námskostnaður
yfir skólaárið sé 1000 kr. lægri á
Akureyri en í Reykjavík. Ætlast er
til að 4. bekkur skólans taki til
starfa þegar á næsta vetri.
Hæstiréttur.
Jónas Jónasson frá Hriflu flytur
frumv. um fækkun hæstaréttardóm-
ara. I frumvarpinu er gert ráð fyrir
því, að hæstaréttardómararnir verði
aðeins 3, en jafnframt ganga víst
flestir fylgismenn fækkuuarinnar út
frá því, að stofnaður verði þriðji
millirétturinn. Forsætisráðherra mót-
mælti frumvarpinu, taldi engan
sparnað af því, þar sem milliréttur-
inn hefði mikinn kostnað í för með
sér, en hæstiréttur hinsvegar veikt-
ur talsvert, og væri rétt að lofa
þessu skipulagi, sem nú er, að fá
lengri reynslutíma. Hæstaréttardóm-
ararnir 4 hafa skrifað bréf þar sem
þeir leggjast á móti fækkuninni, en
sá fimti þeirra Lárus H. Bjarnason
mun vera á þeirri skoðun, að fækka
megi dómurunum ef jafnframt sé