Framtíðin - 29.04.1923, Blaðsíða 3
F R A M T í Ð I N
23
leið og hann er öryggi gegn því
að rafstöðin eyðileggist af ofhleðslu,
þ á e r h a n n h e m i 11 á r a f -
veituneínd og bæjarstjórn
sem er engu minna virði
f y r i r b æ j a r b ú a !
4. gr, »Verð á rafmagni til suðu
eða hitunar, eða vélareksturs ákveð-
ur rafveitunefnd með samjjykki
bæjarstjórnar, verði á annað borð
nokkuð rafmagn selt til slíkrar
notkunar.«
Rar sem núverandi rafstöó hefur
»Jafnstraums«-vél er hún mjög
óheppileg til þeirra þarfa sem 4. gr.
gettir um; enda héfur reynslan hér
á Siglufirði sannað þetta, hitinn
verður ekki nægilegur á suðuplöt-
unum, til þess að elda við, nema
með nokkuð löngum tíma. Til
suðu og hitunar er ávalt notaðar
»Skiftistraums«-vélar. —
5. gr. sPegar vatnsskortur er svo
mikill, að vatn nægir ekki til Ijósa
í bænum, er rafijósanotendum skylt
að spara Ijósin hver hjá sér, eins
og þeim er frekar unt. Pegar svo
stendur á er rafveitunefnd heimilt
að láta slökkva Ijós á bryggjum
og pöllum, þegar ekki er verið að
vinna þar. Sömuleiðis í sölubúðum
eftir lokunartíma.«
Bæjarstjórninni hefir ekki fundist
vanþörf á þessari 5. gr. og eflaust
hefur hún kostað mikil heilabrot,
enda er það mikils virði að raf-
I j ó s a n o t e n d u r s p a r i I j ó s-
i n h v e r h j á s é r, þ e g a r e n g-
i n 1 j ó s e r u !
Hvenær á að spara strok-
járnin seni leyfð eru umfram
Ijósin? Þeirra er hvergi getið í
sambandi við sparnað á rafstraumn-
um þegar vatnsskortur er.
Síðastliðinn vetur var töluverður
vatnsskortur, svo rafljósin entust
skamma stund daglega, yfir iangan
tíma; en þar sem fiestir rafljósanot-
endur hafa ekki séð þessi lög, og
og gátu þeir því auðvitað ekki
breitt samkvæmt þeim.
Bæjarbúum er víst forvitni á að
vita hvaða sparnaðanáðstöfun raf-
veitunefndin gerði á rafstraumnum,
yfir þann tíma í vetur sem vatns-
skortur var. Spurði eg því einn
bæjarfullírúann, sem einnig er í raf-
veitunefnd, um þetta atiiði.
Bæjarfulltrúinn og rafveitunefnd-
armaðurinn svarar því fyrst að
h a n n h a f i a 11 s e k k i s é ð
þ e s s i I ö g! o g a ð r a f v e i t u-
n e f n d i n h a f i I e y f t n o t k u n
á 11 s t r o k j á r n u m , u m f r a m
I j ó s i n , e n d u r g j a 1 d s 1 a u s t,
s e m u p p b ó t á k e y p t u m
rafstraum t i I suðu, á s í ð-
a s 11 i ð n u s u m r i!
Þannig fer rafveitunefudin (auð-
vitað með samþykki bæjarstjórnar)
að spara þann straum sem er svo
takmaikaður til Ijó'sa, þegar vatns-
skortur er. Sama tíma sem rafljósa-
notendur mega aðeins nota allra
nauðsynlegustu ljós, leyfir rafveitu-
nefndin straumnotkun ti! strok-
j á r n a, u m f r a m þ v í s e m
s t ö ð i n g e t u r f r a m 1 e i 11, er
jafngiídir tíu 16 kerta ijósum
í 24 hús/ og eftirgjöf á gjaldi
sem nemur kr. 1443,75, sam-
kvæmt 2. gr.H
En hverjir eru þessir 11 raístrok-
járnseigendur, sem verða fyrir þessu
láni? Pað eru flestir bæjarfulltrú-
ar-nir og rafveitunefndarmenn, og
nokkrir vinir þeirra.
(Framli.) Oj.
Erl. símfréttir.
Ráöstefnan í Lusanne.-
Ráðstefnan í Lusanne er komin
saman til þess að ræða um deilu-
mál Grikkja og Tyrkja. Fulltrúar
Breía, Bandaríkjanna, Ítalíu og
Tyrklands eru komnir til ráðstefn-
iinnar, en fulltrúar Frakka og Grikkja
eru ókomnir. Samkomulagshoríur
taldar góðar.
Verslunarsamningur.
Danmörk og Soviet-Rússland und-
irskrifuðu verslunarsamning 23. þ.m.
Danska ríkisþinginu var slitið á
miðvikudaginn og liafði samning-
urinn þ:i ekki hlotið staðfestingu
þess. Islendingar eiga kost á að
ganga inn í samninginn.
Ruhr.
Smáskærur milli Rjóðverja og
Frakka í Ruhr, sló í götubardaga
í Múhrheim, margir særðust og
fjórir biðu bana.
Curson lávarður.
Utanrikisráðherra Breta Curson
lávarður hélt ræðu í lávarðadeild-
inni á dögunum um þýsku skaða-
bæturnar. Ráðlagði hann Rjóðverj-
um að koma fram með nýja skaða-
bótauppástungu, þar sem gert er
ráð íyrir ábyrgð af hálfu iðnaðarins,
og að fallast á úrskurð óvilhallra
manua um skaðabótaupphæð. Rýska
stjórnin lofar að íhuga þessar til-
lögur.
Ríkisbankinn pýski.
Ríkisbankinn þýski hefur hækk-
að íorvezti úr 12 upp í 1Q%.
Enski skipastóllinn.
Bretar tilkynna að þeir séu nú
búnir að fylla það skarð er höggið
var í skipastól þeirra á ófriðarárun-
um. Verslunarfloti þeirra er einn
þriðji af verslunarflota heimsins.
Innl. símfréttir:
Samband ísl. samvinnufélaga ætl-
ar að höfða skaðabótamál gegn
Birni Kristjánssyni út af bækling
hans, og heimta 500 þús. krónur í
skaðabætur.
Mokafli í Vestmanhaeyjum.
Siglufjörður.
Kvenfélgið »Von« hélt skemtun
á Sumardaginn fyrsta í ieikfimis-
húsinu. Til skémtunar var: ræða,
upplestur, söngur og dans. Skemt-
unin var vel sótt og fói ágætlega
fram.
Hákarla- og hnýsuveiði er tals-
verð hér fyrir utan þegará sjó gefur.
Bessi Rorleifsson fór fyrir nokkru
einn á bát í hákarlalegu; var hann
um sólarlning í ferðinni og kom
með bátinn hlaðinn af lif'ur og
hákarli. Er þetta rösklega gert af
manni á sjötugsaldri. —
E.s. : Noreg« kom hingað um
síðustu helgi frá Akureyri. Með
skipinu komu Stangeland heildsali
og Friðbjörn Níelsson kaupmaður.
Asgeir Pétursson, Karl Nikulásson
og Eggert Einarsson voru með
skipinu og fóru með því aftur til
Akureyrar. —
Esjan var á Hólmavík í fyrradag.
E.s. Willemoes kom hingað
snöggvast á fimtudagskvöld, og
skipaði hér upp 60 fötuni af stein-
olíu. —