Vörður


Vörður - 10.09.1924, Síða 2

Vörður - 10.09.1924, Síða 2
2 V O R Ð U R Þýskaland, Nú siðustu mánuðina heíir verið hljótt um ástandið í Þýska- landi, enda engir stórviðburðir gerst. Nýlega var getið um það hjer i blaðinu, að verðfali mikið hefði orðið þar á sumum vöru- tegundum og getur að því leidd- ar hvað valdið hefði. Líka hefir þess verið getið, að i vetur sem leið, tóku Þjóð- verjar upp hið svokallaða wrentu^ mark« og reyndu með því að »festa« gengið hjá sjer og með því sneiða hjá því bölinu sem verst hafði leikið þá: gengis- sveiflunum. Hefir þeim tekist til þessa að halda genginu nokkurnveginn stöðugu, og enda þótt þessi fest- ing gengisins hafi haftýmiskon- ar truflun atvinnuveganna í för með sjer má þó segja, að þeim hafi tekist það íram yfir allar vonir og i engri atvinnugrein hefir það leitt til hruns eins og margir hefðu búist við og reynsla sumra annara þjóða, sem líkt höfðu reynt og likt stóð á fyrir virðist benda til að óhjákvæmi- legt væri. Hins vegar mun það vera svo að enn vanti mikið á, að á- standið sje orðið eðlilegt eða komið í svipaðar skorður sem það var fyrir styrjöldina. Mun það sönnu nær, að þeim hafi enn ekki tekist að sigrast á erf- iðleikunum heldur að eins skjóta þeim á frest. Eins og nú standa sakir er framleiðslan í sæmilegu lagi og töluvert meiri en hún var 1922 —23. — f*ó er framleiðsla land- búnaðarafurða tæpast meiri en tveir þriðju hlutar þess sem hún var fyrir strið og svipað mun vera um kolaframleíðsluna. öðru máli er að gegna um stálvinslu og vjelaiðnaðinn þó sjerstaklega, sem mun nálgast það að vera likur því sem hann var fyrir styrjöld og sama má segja um litarframleiðsuna. f*egar miðað er við framleiðsl- una í heild mun það láta nærri að hún sje 70% af því sem hún var fyrir styrjöld en það svarar til 78°/« ef tekið er tillit til landataps þeirra. Kaupgeta verkamanna er nú töluvert meiri en hún var síð- astliðið ár og meiri hluti þeirra getur nú veitt sjer föt og aðra nauðsynlegustu hluti, en þegar verst var í ári gat allur fjöld- inn tæplega satt sárasla hungur sitt. Enda þótt verkalaun í þýska- landi sjeu ekki há, borin sam- an við verkalaun gengishárra landa er það þó svo, að þýskur iðnaður er tæplega samkeppnis- fær við iðnað annara þjóða, að örfáum vörutegundum undan- skildum, einkum litarefnum og kalí. Kemur þetta til af hinum háu sköttum sem framleiðendur og iðnrekendur verða að borga. Meðan fall marksins stóð yfir hvarf löngun þjóðarinnar til þess að spara, var það líka eðli- legt því að vel gátu 100 þús. mörk verið orðin einskis virði að viku liðinni, því að hlutur sem kostaði 10 þús. mörk ídag gat hæglega kostað 100 þús. m. að örfáum dögum liðnum. Ráðið var því, ef menn vildu tryggja sig tyrir því, að fje sitt yrði að engu, að koma því i vörur eða verðbrjef, önnur leið var ekki ftil, og þessi skoðun varð smám saman svo rótgróin í meövitund þjóðarinnar að hætt er við því, að langir tímar líði áður en nægilegt fje safnast inn- an lands til að fullnægjá fram- leiðslunni og atvinnugreinunum í landinu. Augu þjóðverja mæna nú til erlendra ríkja um lán, einkuin Bandarikjanna, og vel mætti virðast, að vextirnir, sem eru 25—30°/« um árið — og jafn- vel meira, freistuðu til lánveit- inga, en miljónerarnir eru enn tortryggir gagnvart f'ýskalandi og ástandinu þar, og hingað til hefir það svo verið, að þau lán sem hægt hefir verið að fá hafa engan veginn svarað til þarf- anna eða bætt upp það veltu- fjárleysi sem leiddi af stöðvun seðlaútgáfunnar. Það er er einkum þessi vönt- un á veltufje sem gerir útlitið ískyggilegt. Enn þá er þó alt sæmilega rólegt og engið stór óhöpp hafa viljað til. En yfirleitt er það svo, að framleiðendur og iðnrekendur liggja með miklar og dýrar vöru- birgðir, sem sennilega verður ó- mögulegt að koma í verð nema með tapi, og til þessa mun verðfallið á ýmsum vörutegund- um, sem varð fyrir skömmu, eiga rót sína að rekja. Er hætt við því að tapíð, sem af verðfallinu leiddi ásamt veltu- fjár og lántraustsleysinu ríði mörgum manninum og fjelaginu að fullu. En "dugnaður og hagsýni Þjóð- verja er meiri en flestra annara þjóða, og því er vonandi að þeim takist að vinna bug á erf- iðleikunum. Er útlit fyrir að ullar- verðið haldist? Ullarverðið í ár hefir verið mjög gott, nálægt 6 kr. fyrir kg. af norðlenskri ull 1. flokks og ca kr. 4,90 fyrir »ósorteraða« ull hjer sunnanlands. Er þetta um 75—80°/« hækk- un frá ullarverðinu síðastl. ár. Spurningin er nú hvort likur sjeu fyrir, að þetta ullarverð eða svipað muni haldast og þótt ómögulegt sje að segja um það, með fullri vissu, hvort svo muni verða eða ekki, þá eru þó nokkur likindi til þess að markaður fyrir ull, næstu ár, verði góður. Aðalástæðan til þess að ætla má að svo verði er sú, að sauð- fje hefir fækkað að mun í heim- inum síðan í styrjaldarbyrjun. Taldist mönnum svo til að um 1914 væri tala sauðfjár um 600 milj., en mun nú ekki vera hærri en 530—550 miljónir, og sje rakið alt til aldainótanna, verður fækkunin um 100 milj. Sje þess jafnframt gætt, að fólkstalan í heiminum hefir aukist stórkostlega síðan, er ekki að undra þótt eftirspurnin verði meiri en framboðið. Hefir sú orðið raunin á að sauðfje hefir farið stórum fækk- andi í flestum löndum. ÍÁslralíu hefir því t. d. fækkaó niður í 84 milj. úr IO6V2 milj. árið 1891 en þá var sauðfjártalan hæst. öll ullarframleiðsla heimsins nam árið 1923 um 2600 milj. Ibs., en sama ár var talið að ekki hefði veitt af 2850 milj. Ibs. til að fullnægja eftirspurn- inni. — Svipaður munur var næstu árin þar á undan. Pað sem hefir valdið því aö ullin hækkaði ekki í verði fyr en þetta og jafnvel fjell stór- kostlega nú síðustu árin, var það, að á stríðsárunum safnað- ist mikið fyrir af ull, sem nú fyrst er uppseld og jafnskjótt byrjaði verðið að stíga. Eftir þessu að dæma má því fyllilega vænta þess, að eftir- spurnin og jafnframt mat á ull fari vaxandi næstu ár, því að engar verulegar líkur eiu fyrir því, að sauðfjenaði fjölgi mjög í heiminum á næstunni. Yerslunarjdfnuður ýmissa ríkja. Eitt af því sem talið er að ráði miklu um gengi hvers lands er verslunarjöfnuðurinn, hlut- fallið milli inn og útflutnings. — Er því dálítið fróðlegt að at- huga hvernig nágrannalönd vor standa að vígi í þessum efnum. Fyrstu 6 mánuði yfirstandandi árs fluttu Dahir inn fyrir um 1 miljarð og 148 milj. kr., en út- flutningur þeirrra nam á sama tíma um 1 miijarð kr. og 1 miljón kr. er mismunurinn 34 milj. kr. minni en á sama tíma i fyrra. Á sama tíma íluttu Norðmenn út vörur fyrir 431 milj. kr. en inn fyrir 727 milj. kr. Er mis- munurinn því 296 milj. kr. og er það allískyggilegur munur og því tæpast að undra þótl norsku krónunni veiti örðugt að stíga. — En aðgætandi er að talsvert vega upp i þenna mun tekjur Norðmanna af sigl- ingum, ferðamönnum o. fl. Finnar fluttu inn fyrstu 6 mán- uðina vörur fyrir rúmlega 2 mil- jarða og 300 milj. finskra marka en útfluttar vörur uámu aðeins röskum 1 miljarð og 570 milj. marka. — Mismunurinn nani því um 738 milj. finskra marka. Búnaðarhættir landsmanna 1922. Búnaðarskýrslur Hagstofunn- ar árið 1922 eru nýkomnar. — Verður stutlega getið þess helsta, sem þar stendur, um skepnu- eign landsmanna og búnaðar- framfarir þetta ár og telur Vörð- ur, enn sem fyrri, að bændum landsins sje meiri fróðleikur og gagnsemi í þvi, að vita nokkur skil þar á heldur en læra utan bókar munnræpu og ósanninda- vaðal sumra svo kölluðu leið- toga sinna. Árið 1922 voru framteljendur búpenings 12078. Árið 1918 voru þeir hálfum fjórða tug betur, en komst árið 1921 niður í 11691. — Lætur nærri eftir þessu að V» hluti landsmanna sje fram- teljendur. í fardögum þetta ár var sauð- fjenaður talinn samkvæmt bún- aðarskýrslum 571 þúsund, en mun sennilega hafa verið mun hærri, því að viö fjárskoðunina 1906—07 reyndist fjenaðurinn Kjallari »Varðar« Stjörnuríkið. Nólin. Hvuðau itaíar orka sólar? 9. Ávalt hefir þjóðunum skilist að sól- in muni viðhalda lífinu á jörðunni. Hafa því margar þjóðir tignað hana engu minna en sjálfan' höfund hennar. Ljós og yl sólarinnar hafa þjóðirnar löngum skoðað sem útflæði hins mikla mátt- ar, sem stendur að baki tilverunni og gefur henni gildi sitt. — Bæði hafa geislar sólarinnar fyr og síðar lýst anda mannkynsins og lyft honum til hæðanna. Að vísu er nú sólin fallin úr goðatölu, en eigi að síður er hún ein af mestu ráðgátum þessa heims. Af ýmsu ráða menn að æfi sólar muni vera afarlöng. Og alla sína löngu tíð virðist-hún hafa stafað frá sjer ótæmandi geislum ljóss og yls, án þess að neitt gangi til þurðar. Petta er mönnum undrunarefni og því fýsir hugsandi menn að vita: 19 Hve lengi hefir sólin lýst og hitað heiminn, sem vjer búum? Hvað heldur við hita hennar? Hve lengi mun sól endast, til þess að hella geislum sínum út í helköld djúpin millum stjarnanna? Liður eigi að því, að sólin slokni? Er þá sólkerfið hnigið í eilift myrkur, eða getur nokkuð vakið það til nýs lífs? Skal nú greint frá því helsta, er menn vita um eðli sólar og víkja svo að þessu.1). Búmtök sólar. Fynjf<i og1 eðlisþyngíl. 10. Talið er að sólin sje 1V* miljón sinnum rúmtaksmeiri en jörð vor.2 *). 1) Næstum öll þekking í stjörnufræði er fengin með svo flóknum og fíngeiðum á- höldum, að engin kostur er að lýsa þeim í greinum þessum. Verða því lesendur að taka margt með trúarinnar augum. Allra mest hjálp er að 2 áhöldum: Sjónpípunni og lit- sjánni. Sjónpípan virðist færa alt nær, svo sem kunnugt er, en litsjáin fræðir menn um hvaða efni sjeu í fjarlægum hnöttum, í hvaða ástandi þau sjeu, hvaða hraða þau hafi og jafnvel fleira. Útreikningar verða einnig að falla niður. Bæði eru þeir flóknir og byggj- ast í lögmálum sem fáir þekkja — jafnvel þó taldir sjeu lærðir meun. 2) í töflunni i gr. 4 eru geislar allra hnatta í sólkerfinu tilgreiridir. Yfirborðið er önnnr 20 Það er stærð sem örðugt er að gera sjer hugmynd um. Miðbaugur sólar er langt um viðari en tunglbrautin. Hugsi menn sjer jörðina flulta í miðju sólarhnattarins, ásamt tunglinu í sinni venjulegu fjar- lægð, þá mundi það samt verða nál. 50 þús. km. fyrir neðan yfirborð sólar. Svo er hún umfangsmikil. Eigi er sólin að sama skapi þung, en þung er hún samt vegna stærðar sinnar. Talið er að hún sje % milj. sinnum þyngri en jörðin. Af því leiðir að alt verður geisiþungt á yfirborði hennar. Reiknast mönnum svo, að efni sem vegur 1 kg. á iörðu mundi vega 28 kg. á sólunni, Eðlisþyngd sólar er 1,4, miðað við vatn sem hefir eðlisþungan 1. Sólin er því ljett i sjer. Stafar það af þvf að efni hennar eru mjög heit og útþanin. Lítið eitl er hún þyngri en jafnstór vatns- hnöttur, og má af því álykta, að hún sje eigi neitt fast efni, heldur iögur eða loft eða eitthvað sem svipar til hvors- stærö og rúmtakið hin þriðja. Bæði má finna af hinni fyrstu. Sje yfirborðið nefnt Y þá er: Y = 4 rs n og sje rúmtakið nefnt r þá er: R — | r8 7i en r = geislinn og n = V< 21 tveggja. Annars vita menn fátt um á- stand efna við þvílika staðháttu, sem þar eru. Hiti og þrýsting yfirstígur alt sem menn komast nálægt í efnasmiðj- um á jörðu niðri. Flekkir sólar og blys. 11. Athugun á sólhvelinu hefir leitt í ljós, að 2 belti á yfirborði þess eru meira og minna gráflekkótt. Belti þessi liggja aðallega milli 5. og 30. stigs norð- lægrar og suðlægrar breiddar. Um mið- bikiö eru flekkir þessir fátíðir og sömu- leiðis við heimskautin. Flekkirnir þok- ast smátt og smátt af vesturrönd sólar og yfir á austurröndina og ráða menn af því að sólin snúist um möndul sinn. Venjulega er sá snúningur talinn 251/* sólarhringur. En af ílekkjunum má ráða, aö sólin snýst eigi sem fastur hlutur. Miðbikið fer á undan skautunum. Það sýnir tafla þessi: Breiddarstig á sólu Sólarhringur á jörðu 0...................25.4 15 26.4 30 27.o 45 ............... 30.o 60 33.o 75 ................ . 43.o Orsakir þessa vita menn eigi og mjög er þetta undarlegt í lofthafi jarðar eru aö visu svipaðar hreyfingar, en þær

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.