Vörður


Vörður - 09.10.1924, Side 1

Vörður - 09.10.1924, Side 1
II. ár. Reykjavík 9. október 1924. 40. blað. Krossanesmálin. »Vöröur« hefir ekki hÍDgað til látið þessi mál til sín talca, því að hann hefir litið svo á, að raeðan Alþbl. og Verkamað- urinn höfðu mál þessi til með- ferðar til skemtunar sjer væri ekki nein ástæða til fyrir sigað segja neitt, því að lesendur þess- ara blaða og Varðar eru svo fáir sameiginlegir, en af því að Tíminn hefir nú kastað grím- unni og fylgir uppteknum hætti um að jeta upp og lepja skoð- anir Alþbl., þykir ekki rjett að sitja hjá lengur og skal því far- ið nokkrum orðum um mál þessi. Eftir því sem síðasta blaði Tímans segist frá er hið versta í málum þessum, að hans áliti það, að síldarkerin í Krossanesi við Eyjafjörð hafa verið löggilt í sumar. Nolar blaðið þessi ó- slcapatíðindi til þess að vella sjer með .óbótaskömmum og svívirðingum yfir þá, Jón Magn- ússon og Magnús Guðmundsson. Munu lesendur Tímans þekkja ritháttinn frá fyrri »Tímum«, honum þarf ekki að lýsa. En að vanda er Tíminn sem út- troðinn vindbelgur og er því ekki nema góðverk að stinga lítið eilt á houum og hleypa vindinum út. Mun þá aðstand- endum blaösins líða betur en áður, er vindurinn kvelur þá eigi eins. Það er því rjettast að segja þessa sögu óhlutdrægt og fer hún bjer á eftir. Hin gildandi lagaákvæði bjer á landi um löggilding mælikerja eru í lögum um mælitæki og vogaráhöld 14. nóv. 1917 og tilskipun 12. febr. 1919 um löggilt mælitæki og vogaráhöld. Ef vita á hið rjetta um hvort löglega hefir verið farið að í þessu máli, verður að athuga þessi lög og þessa tilskipun. Lögin vísa í því efni, sem hjer skiftir máli, til tilskipunarinnar og það verða því að eins á- kvaeði hennar, sem rannsaka þarf í þessu sambandi. í 10. gr. tilsk. segir svo: »Mæliker löggildast í þessum stærðum: 2 lítrar, 1 litri, 2 desi- litrar og 1 desilítri. Mælikerin skulu vera úr blikki, alúminíum eða öðru efni, sem löggildingar- stofan telur jafn heppilegt«. Og í 16. gr. sömu tilskipunar stend- ur: »Löggildingarstofan getur, þegar hún telur þörf á því, lög- gilt mælitæki og vogaráhöld, sem að efni, stærð eða gerð eru frábrugðin því, sem fyrir er sagt í 8.—15. gr., ef þau að hennar dómi eru til þess hæf«. Þetta eru hin einu gildandi á- k^æði um stærð mælikerja. Nú mi*n engum detta í hug, að það sem tilfært er úr 10. gr., geti átt við síldarmæliker, því að sú grein nær að eins til mælikerja sem ekki eru yfir 2' lítrar að stærð, en svo lítil ker eru ger- samlega ónothæf sem sildarmál. Löggilding síldarmælikerja hlýt- ur því að falla undir 16. grein tilslt., og er sú grein tilfærð orð- rjett hjer að framan. Hún sýn- ir, að löggildingarstofan ræður stærð síldarmælikerjanna og hún sýnir ennfremur, að það er lagt i valdlöggildingarstofunnar hvort slík mæliker eru löggilt eða ekki. Eftir íslenskum lögum eru sild- armæliker því ekki löggildingar- skyld, enda munu engin þess konar mæliker hafa verið lög- gilt hjer á landi fyr en í sumar. Og þau hafa verið löggilt af ýmsum stærðum 50, 100 og 170 lítra, enda segir skýrum orðum í 16. gr. tilsk., að löggildingar- stofan ráði sjálf stærðinni, enda er vitaskuld, að jafnvel er hægt að ná tilganginum með löggild- ingunni, hver sem stærð kerj- anna er, en tilgangurinn er auð- vitað sá, að seljandi og kaup- andi viti hve mikið fer þeim í milli af þeirri vöru, sem ræðir um í hvert skifti. Á Krossanesi voru löggilt sildarker er tóku 170 lítra. Pelta er það sem Tím- inn kallar að löggilda »sviknu« mælikerin og velur hann M. G. atvinnumálaráðherra.með venju- legri frekju sinni, inörg og ill orð út af þessu. En af því, sem að framan er sagt, sjest að þetta eru staðlausir stafir. í fáfræði sinni og framhleypni gengur ritstj. Tímans út frá, að síldar- mál megi ekki vera af annari stærð en 150 litrar. Þetta er gersamlega rangt og að þessu upplýstu er árás hans að engu orðin. Pað er ekki nóg fyrir ritstj. að lepja upp eftir Alþbl. Það er vissara að rannsaka mál- ið sjálfur. Og stjórnartiðindin ætti ritstj. umfram alt að eiga og lesa, til þess að hann losni við þessi alræmdu og marg- endurteknu gönuskeið sín og það er hálfleiðinlegt fyrir hann að þurfa að fá að vita það hjá öðrum, að það sem hann lætur setja með gleiðasta og feitasta letrinu í blað sitt, er versta endi- leysan af öllu er þar stendur og er þá langt til jafnað. Hver rit- stjóri verður að vera svo vel að sjer að hann reki ekki, svo að segja daglega, nautshornin í ó- tvíræða lagastafi. Eins og þegar er vikið að, er hin umrædda árás á atvinnu- málaráðh. útaf þessu máli, bygð á fáfræði og engu öðru. Verður ekki annað sjeð en að það sje þakkarvert fremur en ámælis- vert, að síldarmæliker væru í fyrsta sinni löggilt í sumar, þótt ekki sje skylt að hafa þau Iög- gilt og þótt ekki eitt einasta síldarmæliker muni hafa verið löggilt hjer á Iandi fyr en á yfirstandandi sumri. fað er broslegt að sjá ráðh. verða fyrir árás fyrir það, aö löggildinga- skrifstofan hefir nú í fyrsta sinni löggilt síldarmál, þótt hún hafi gert það umfram skyldu. Vissulega ætti þetta að vera fremur til lofs en lasts, ekki síst í augum Tímans, sem segir, að viðskiftamenn Krossanes- verksmiðjunnar hafi á síðast- liðnu ári tapað 117.000 kr. á því, að síldarmælikerin voru ó- löggild. Fyrir að þessum skaða er afstýrt framvegis fær atvinnu- málaráðh. þær þakkir, að ritstj. Tímans veltir sjer yfir hann með óbóta og æruleysis skömm- um. Hver gétur skilið þetta? Fyrir það, að landsmönnum eru sparaðar 117.000 kr. á ári að sögn Tímans, á einum viðskifta- stað er ráðist að þeim ráðherra, sem málið heyrir undir. Og | svo er tneira að segja að sjá af blaðinu, að það telji M. G. eiga sök á þessu tapi viðskiftamann- anna í fyrra og að hann eigi að sjá um að það verði bætt. En fyrst ritstj. fer út í þessa sálma, er rjett að minná hann á það, að í fyrra var flokks- maður hans og tengdafaðir (Kl. J.) atvinnumálaráðherra hjer á landi og hafi viðskiftamenn þess- arar Krossanesverksmiðju tapað á síðastliðnu ári, mundi það frekar vera þessum Framsókn- arráðherra að kenna en M. G., ekki síst ef það er satt, sem sagt er, að hann hafi bannað löggildingastofunni að fást við slíkar löggildingar. Pað væri því nær fyrir Laufásklerk að skjóta geiri að tengdaföður sín- nm en M. G., því að hinn fyr- nefndi hefði getað firrt viðskifta- mennina þessu mikla tapi í fyrra með því að löggilda málin eins og nú hefir verið gert. Hjer hefir að framan verið gengið út frá því, að skýrsla Tímans um tap viðskiftamann- anna væri rjett, en um þetta atriði er Verði ekki kunnugt. Hinsvegar þykir Veröi mjög ó- liklegt, að Tíminn hafi nokkra hugmynd um hvaða sildarmál voru notuð i Krossanesi í fyrra. Fað er sem sje alls ekki vist, að það hafi verið sömu mæli- kerin sem voru notuð í fyrra og nú. Hitt er langsennilegast, að skift hafi verið um ker að meira eða minna leyti, því að ker þessi sæta illri meðferð og brotna títt svo að skifta þarf um. Það getur því vel verið, að kerin, sem notuð voru í fyrra hafi verið miklu stærri en þau, sem notuð voru í ár og þau geta hafa verið minni. Tímaritstjórinn veit senuilegast ekkert um þetta og allir reikn- ingar hans til tengdaföður síns svífa því í lausu lofti. En eina reikningsskekkju, sem sjáanleg er, er þó rjett að benda honum á, og hún er sú, að hann geng- ur út frá, að öll síldarkerin hafi tekið 170 litra, en sum voru minni. Við þetta gæti reikning- urinn breyst eitthvað, fyrverandi atvinnum.ráðh. í vil og er þá vel. Þess er rjett að geta, að engin kæra hefir komið fram yfir mælikerjunum til landsstjórnar- innar, enda notuðu allir sildar- kaupmenn, að því er best er vitað, ólöggilt mál þangað til i sumar, enda bar þeim engin skylda til þess að hafa þau lög- gilt fyr en löggildingarstofan krafðist þess. Allir sjá því, að það er gersamlega útilokað, að hægt sje að höfða sakamál gegn verksmiðjustjóranum fyrir það, að hann hafði ekki löggilt mæliker. Öll brígsl ritstj. Tím- ans til J. M. forsætisráöh. útaf þessu eru því gripin úr lausu lofti en til þess að maka hann sem rækilegast í óhróðrinum hefir Tíminn notað marga dálka til þess að úthrópa hann. þetta er ekki nýtt hjá ritstj. og alt er þetta útaf því að forsætisráð- herran hefir ekki látið höfða sakamál gegn verksmiðjustjór- anum í Krossanesi, þótt enginn hafi gefið sig fram við ráðh. og vænt þenna mann um svik. Svo er þá þetta mælikerjamál vaxið og mun ritstj. hafa hugs- að sjer að setja ekki ljós sitt undir þessi mæliker heldur láta það skína fjrrir almenningi. Og það er rjett hjá honum að vilja ekki setja Ijós sitt undir sildar- mæliker, því að þau eru altof stór fyrir svo litla ljóstýru. Hæfilegt mæliker fyrir ljóstýr- una hans er minsta löggilt ker, 1 desilítri, þar er nóg rúm fyrir týrugreyið hans. í næsta blaði verður vikið að verkamannahlið þessara Krossa- nesmála. Bókafreg'n. Ei m r eiðin. Fjórða og fimta hefti af XXX. árg. hennar eru nýkomin út, fjölbreylt að efni og fróðlegt. (lefjast þau á ritgerð eftir Al- exander Mac Gill írskan rithöf- und og skáld um annað írskt skáld John Miliington Synge, sem talinn er að vera með mestu skáldum íra og einn af þeirra bestu mönnum. Grein þessi er sæmilega skrif- uö, en sá agnúi er á fyrir ís- lenska lesendur, að þeir fá litla hugmynd um skáldskap þessa manns. Gagnar lítið að skrifa um skáldskap erlendra höfunda, sem öll alþýöa þekkir litið eða ekk- ert til, nema því að eins að góð sýnishorn sjeu tekin af skáld- skap þeirra. — Hefir hver og einn þess litil not, þótt hann heyri eöa lesi, að skáldrit Pjet- urs eða Páls sje bæði hugmynda- ríkt og kröftugt, ef það sjer hvergi hugmyndirnar eða kraftinn. — Gefur oft betri hugmynd um skáldið ein staka eftir það eða eitt smásögukorn, heldur en langar og iburðarmiklar lýsingar á skáldskap þess. Tvö kvæði eru eftir Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi, bæði góð. Ber hið fyrra, Messa- lína, glögg einkenni sumra fyrri kvæða hans eins og sjá má af þessu erindi: Hver er það sem þarna læðist? Pað er hún, sem ekkert hræðist það er hún hin vilta vofa, er vakir, meðan aðrir sofa. Pað er hún er sveina seiðir og senatora gamla veiðir. Paö er hún, sem þrælkun hótar það er hún, sem mönnum blótar. Hún — sem engum lögum lýtur kyssir, bítur kvelst og nýtur . . . Pað er hún, sem beitir brögðum best af öllum heimsins flögðum, hún — sem laug og ljet sig krýna og leikur sjer að blóði og eldi, djöfull vafínn dökkum feldi, drotningin í Rómaveldi, ----Messalína. Hitt kvæðið heitir »Eyðimörk« og er þetta sfðasta erindið: Förumanna flokkar þeysa friðlausir um eyðisand. Fellibylir bölsins geisa bylgju falda svarta reisa. Sandrok hylur sól og land. Langt er enn til lifsins stranda — lækur enginn, hvergi björk, bannlýstjörð til beggja handa brunasandur, eyðimörk. Þá er »Páttur af Agli á Bergi« eftir Guðmund Gislason Hagalín. — Góð lýsing á einföldum og hrekklausum sveitahjónum — en siðasta línan í sögunni hefði mátt missa sig. Hjeðinn Valdimarsson skrifar um »Bresku heimssýninguna«. — Fylgja þeirri grein nokkrar myndir frá sýningunni. Greinin er lipurlega skrifuð og gefur aligóða hugmynd um þessa stórkostlegu sýningu. Ritstjórinn skrifar um »Hug- lækningar«. Er aðalefni greinar- innar frásögn af hinum merki- legu lækningum franska sál- fræðingsins Emile Coué, sem vakið hafa afskaplega eftirtekt, en hann læknar einungis með huglækningum. Þá koma fjórar »Sonnettur« eflir Jakob Jóh. Smára, liprar og þýðar, eins og allur hans ljóðakveðskapur er. Sami höf. skrifar smágrein sem hann nefnir »Grótti«. — Eftirtektaverð grein, sem bæði jafnaðarmenn og andstæðingar þeirra ættu vel að Iesa og reyna til að læra eitthvað af. Guðin. próf. Finnbogason þýð- ir grein eftir sir Arthur Keith forseta mannfr.deildar »Breska fjelagsins« um greining mann- kynsins í kynkvíslir. Er þar þeirri skoðun haldið fram, að það sjeu nokkrir kirtlar i mann- legum líkama sem mestu ráði uin andlitsfall, liörundslit og líkamsvöxt manna. Ritstjórinn skrifar stutta grein um heimsflugið og fylgja henni

x

Vörður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.