Vörður - 27.06.1925, Page 4
4
VðRÐUR
R e i ð t ý g i
margar gerðir, þar á meðal hnahkar svo traustir, að
tekin er ÍO ára ábyrgö á virkjunum.
Spaðahnabkar, aljárnadir.
Handvagnar, liestvagnar, alitýgi, listivagna-
ahtýgi. — Alt af liestu gerö.
Allskonar ólar og lausir hlutir til söðla- og aktýgjasmíða
er ávalt fyrirliggjandi. — Beisli, töskur, svipur, keyri,
ístöð, bakpokar, veski, klifjatöskur, beislistengur margar
tegundir o. fl., o. fl.
Ennfremur tjöld, vagua- og fiskyfirbreiðslur og efni i
þessa hluti.
Landsins stærsta og fullkomnasta fyrirtæki í þessari
grein. — Sívaxandi viðskifti sanna að hvergi er betra að
gera sín viðskifti en í »Sleipni«.
Aögeröir fljótt og' vel af Iiendi leystar.
Vörur sendar gegn eftirkröfn hvert á land sem er.
Símnefni »SLEIPNIR« — Sími 646.
Laugaveg 74. — Reykjavík.
ráðnar ýmsar framkvæmdir
hans. En verk hans bera þó
altaf vitni frábærum stórhuga
hans. Og mikillar aðdáunar er
það vert, hve langt hann komsf
af eigin rammleik, útilokaður
frá öllum lærdómi, að heita
mátti, á æskuárum sínum. Komst
han svo langt, að hann mun
mega heita einn af mestu versl-
unar- og glöggustu fjármála-
mönnum sinnar samtiðar. Og
í sögu Eyjafjarðar er engum
efa bundið að nafn hans verður
ódauðlegt sökum framkvæmda
hans. X.
Minningarsjóður Torfa
Bjarnasonar í Ölafsdal.
Á fundi, sem nokkrir nem-
endur Torfa heitins Bjarnason-
ar, skóiastjóra i Ólafsdal, hjeldu
með sjer hjer í Reykjavik, hinn
10. þ. m., til að ræða um fram-
kvæmdir á ákvörðun þeirri, er
nokkrir af nemendum hans
höfðu tekið við jarðarför hans
(i júlí 1915), um að stofna
minningarsjóð, erberi nafnhans,
vorum vjer undirritaðir kosnir
til að koma málefni þessu í
framkvæmd.
Aðaltilgangur sjóðsius á að
vera sá, að styðja að starfsemi
í sama anda og Torfi heitinn
sýndi í lífsstarfi sínu, sem sje
að efla og styðja íslenskanland-
búnað og fslenska bændamenn-
ingu. Er því tilætlunin sú, að
verðlauna úr sjóðnum framúr-
skarandi dugnað í búnaði, ný-
ungar, sem reynast vel og geta
orðið öðrum til fyrirmyndar og
landbúnaðinutn til eflingaro.s.frv.
Nú með því að verkefni sjóðs-
ins verður afar víðtækt, ef hann
á að ná tilgangi sinum, þá er
augljóst, að fje það, sem þegar
er safnað, er svo lítið, að það
getur ekki komið að neinum
verulegum notum, fyr en seint
og síðarmeir, nema röggsamlega
sje hafist handa um fjársöfnun
til sjóðsins sem allra fyrst. Hug-
mynd frumkvöðla þessa máls er
sú, að nefndur sjóður geti teldð
til starfa eigi sfðar enáriðl930,
á aldarafmæli Torfa heitins.
Samkvæmt framansögðu leyf-
um vjer oss því hjermeð vin-
samlegast að mælast til við
nemendur Torfa heitins, hvar
sem þeir dveljast, þá sem enn
eru á lffi, að þeir leggi fram
sinn skerf til sjóðsins, hver eft-
ir sfnum efnum og áslæðum,og
beiti sjer auk þess fyrir frekari
fjársöfnun hjá þeim öðrum, sem
þeir álíta lfklega til að vilja
heiðra minningu Torfa heitins
á sama hátt.
Alt fje sem safnast í nefndan
sjóð, sendist meðundirrituðum
formanni nefndarinnar, fyrv.
alþm. Guðjóni Guðlaugssyui,
Reykjavík. Þó geta þeir, sem bú-
settir eru í Reykjavík og ná-
grenninu, og sem vilja styðja
umrætt málefni, snúið sjer til
hvers af oss undirrituðum, sem
þeir kjósa, með framlög sín til
sjóðsins. Sama gildir einnig fyr-
ir þá, sem annarstaðar eru bú-
settir, ef þeir kjösa það frekar
en að snúa sjer til annara stofn-
enda, þó nær þeim sjeu.
Vesturheimsblöðin »Heimkr.«
og »Lögberg« eru vinsamlegast
beðin að taka áskoran þessa til
birtingar.
Reykjavík 14. júní 1925.
Guðjón Guðlaugsson
form. nefnd.
Guðm. Bergsson, Tjarnargötu 14.
Jón Sigurðsson, Vesturgötu 59.
Jón Jónatansson, Lindargötu 20B
Metúsalem Slejánsson, Grettisg. 53.
Utan úr heimi.
Roald Amundsen.
Norðurheimsskautsflugið. Það hefir
áður verið frá því skýrt hjer í
blaðinu, að menn voru farnir
að óttast um Roakl Amundsen
og fjelagahans og að stofnað hafði
verið til leiðangra til þess að
leita þeirra. En 18. þ. m. komu
þeir aftur fljúgandi að norðan
og náðu heilu og höldnu f Kings-
bay á Spitsbergen, en þaðan
höfðu þeir lagt upp i flugvjel-
um sínum.
Mikla hrakninga höfðu þeir
komist í á ferðinni. Á norður-
leið hreptu þeir hvassviðri og
hrakti þá af leið, en er þeir
höfðu eytt helmingi af bensíni
þvi er þeir höfðu meö sjer, tóku
þeir að svipast um eftir lend-
ingastað. Höfðu þeir hvergi á
leiðinni sjeð nægilega stóran
sljettan flöt á ísnum, til þess að
hægt væri að Ienda vjelunum
þar og hefja þær þaðan aftur
til flugs. En nú flugu þeir yfir
stóra vök, þá fyrstu sem þeir
höfðu sjeð á leiðinni og settust
á hana. En von bráðara inni-
lokaðist önnur flugvjelin milli
hárra ísjaka, og meðan þeir
voru að reyna að forða henni,
lagði alla vökina og fraus þá
hin flugvjelin föst í ísinn.
Þeir fjelagar gerðu nú afstöðu-
mælingar og komust að raun
um að þeir voru á 87. stigi og
44. mínútu norðlægrar breiddar.
Þeir mældu eiunig sjávardýpið
og reyndist það 3750 metrar.
Ályktar Amundsen af því að vart
geti hugsast að land sje á póln-
um eða í nágrenni hans.
Þeir fjelagar ákváðu nú að
halda ekki Iengra norður á bóg-
inn, en að leggja alt kapp á
að komast lieilu og höldnu
heimleiðis. Var nú matarskamt-
urinn 300 gröm á dag, til þess
að þeir gætu haldið sem lengst
í sjer lííi þar norður frá, því
fyrirsjáanlegt var að lengi mundi
dragast að þeir kæmust af stað.
í 24 sólarhringa voru þeir að
losa aðra flugvjelina úr vökinni
og sfðan að koma henni yfir ís-
hröngl og hrannir upp á ísjaka
þann er hæstur var í námunda
við þá. Á þennan jaka mynduðu
þeir flöt, nægilega stóran til þess
að hægt væri að hefja vjelina
þaðan til flugs. Hinn 14. júní
kom sprunga í ísjakann, þveit
yfir svæðið, sem þeir voru búnir
að jafna. Var nú ekki annars
kostur en að reyna að hefja
flugið sem skjótast. Þeir skildu
alt eftir, sem þeir gátu án verið
á heimleiðinni og flugu af stað
sunnudagsmorgunin 14. þ. m.
og náðu til Spitsbergen eftir 8V2
klst. flug.
Skeyti lierma að þeir hafi allir
komið horaðir og þjakaðir úr
förinni, sjerstaklega beri mikið
á því, hve Amundsen sje miklu
ellilegri og þreytulegri en áður.
Sjálfur segist hann aldrei hafa
komist í hann svo krappan fyr,
ekki þegar örðugastur var Suð-
urpólsleiðangurinn.
ílr Þingeyjarsýslu er skiifað:
Jón Porláksson fjármálaráðherra
boðaði og hjelt tvo þjóðmála-
fnndi í Þingeyjarsýslu, að Húsa-
vík og Breiðumýri og voru þeir
vel sóttir. Ráðherrann fjekk bestu
áheyru á báðum fundunum,
enda voru ræður hans frábær-
lega skýrar og að sama skapi
kurteis framkoman. Mest talaði
hann um fjármál vor og svo
um slefnu íhaldsflokksins og
fyrirætlanir. Mótstöðumönnun-
um gaf hann þá dýrð sem þeir
áttu skylda og jafnvel meiri, og
er þessháltar höfðinglyndi fá-
gætt á þjóðmálafundurn. Mörg-
um þótti ráðherrann aufúsugest-
ur og þörf mikil á komu hans
í Þingeyjarsýslu, sem engir and-
legir höfðingjar þjóðmálanna
hafa heimsótt slðan Hannes
Hafstein reið um hjeraðið.
JÓn Lelfs og frú hans eru
væntanleg hingað í sumar.
Nína Sæmundsson myndliöggv-
ari er nýkomin frá útlöndum
til Reykjavíkur.
Bjarni Björnsson leikari dvel-
ur nú í filmbænum Hollywood
í Kaliforníu. Segir í brjefi sem
Jens B. Waage bankastjóra hefir
borist frá filmfjelagi þar, að B.
B. sje leikari, senr sje tekinn að
geta sjer orðstýr í Hollywood
— »an actor who is coming to
the front in Hollywood«. Hvort
Bióið verður fyr til að sýna
stóra ameríska Bjarna Björns-
sonar-filmu?
Áriii Guðnason frá Ljótar-
stöðum i Landeyjum lók nýlega
meistarapróf i ensku við Hafn-
arháskóla með hárri I. einkunn.
Háskólinn. Rektorsval fór þar
fram, að venju 17. þ. m. og var
Magnús Jónsson prófessor val-
inn rektor fyrir næsla háskólaár.
Prestkosníngar. Til Skútu-
staða var nýlega kosinn með
lögmætri kosningu, síra Hermann
Hjartarson i Laufási, með 159
atkvæðum, öllum sem greidd
voru. Enn fremur fór nýlega
fram prestskosning f Ögurþinga-
prestakalli. Kosinn var sfra Óli
Ketilsson, settur prestur þar. —
Hlaut liann öll atkvæði, sem
greidd voru, að undanteknu einu,
sem var ógilt, eða alls 156.
Frú Björg Þorláksdóttir Blöndal
hefir skrifað doktorsritgerð á
frönsku, sem Sarbonne-háskól-
inn í París hefir tekið gilda.
Frá Seyðisfirði er símað 23.
þ. m.: Hjer eystra hefir verið
einstök veðrátta í vor, stöðugt
sólskin að kalla, hlýindi ogregn-
skúrir stöku sinnum og því mik-
ill gróður kominn. Er álit
manna hjer, að belra vor hafi
ekki komið síðan fyrir aldamót.
Vatnavexlir voru óvenjulega
miklir um fyrri viknamót. Lag-
arfljót var óvenjulega mikið og
flóði yfir eystri bakka og skemdi
þjóðveginn lílilsháttar. Fiskafli á
róðrarbála og smávjelbáta er á-
gætur; á grunnmiðum er nokk-
ur afli á slærri vjelbáta. — Nýtt
blað hefir hafið göngu sina á
Eskifirði, en er prentað lijer.
Heitir það Röðull og er ritstjóri
Arnfinnur Jónsson skólasljóri.
Frá Þórshöfn i Færeyjum er
símað að tveir menn liafi lagt
af staðan til Björgvinjar í opn-
um bát, sem er bygður nákvæm-
lega eins og skip víkinga.
Ragnar Ólafsson kaupmaður á
Akureyri hefir gert ráðstafanir
til þess að láta höfða meiðyrða-
og skaðabótamál á hendur rit-
stjóra Verkamannsins fyrir brígsl-
yrði um sviksamlega kolasölu.
Krefst hann 20 þúsund króna í
skaðabætur.
Sjúkraskýli eru Mýrdælingar
nú að reisa i Vik og nýja bú-
stað handa lækni sfnum í sam-
bandi við það.
Stefán frá Hvitadal er að
yrkja mikið kvæði um Jón Ara-
son, og ráðgerir að gefa það út
í haust.
Möhlholm-Hansen, danskur grasa
fræðingur, er nýkominn til
Reykjavikur og ætlar að ferðast
um landið í sumar til gróður-
athuguna. 1 fylgd með honum
verður Árni Friðriksson stúdent,
sem les náttúrufræði við Hafn-
arháskóla.
H. J. Hólmjárn búfræðiskandi-
dat og efnafræðingur, sonur Jós-
efs fyrv. alþ.m. Björnssonar, er
nýkominn hingað til bæjarins.
Ætlar hann að dvelja hjer á
landi við jarðvegsrannsóknir í
sumar.
Gllðlast-málið, sem áður heílr
verið frá skýrt hjer í blaðinu,
hefir nú verið dæmt í undir-
rjetti. Var Brgnjólfur Bjarnason
dæmdur í 30 daga einfalt fang-
elsi. Dómurinn er skilyrðisbund-
inn, þannig að refsingin verður
ekki framkvæmd nema að B. B.
verði á ný sekur um guðlast.
Guðmundur Friðjónsson fráSaudi
kom til bæjarins nú í vikunui
og ráðgerir að dvelja hjer hálf-
au mánuð. Alislór ljóðabók kem-
ur út eftir hann með haustinu.
Ræktunarsjóðurinn tekur bráð-
lega til starfa. Forsljórastaðan
hefir verið auglýst laus til um-
sókuar, eru byrjunarlaunin 4000
kr. með dýrlíðaruppbót. Um-
sóknarfrestur til 1. júlí. Fjár-
málaráðherra veilir.
Frá Akureyri er símað 25. þ.
m.: Aðalfundur klæðaverksmiðj-
unnar Gefjun lauk nýlega. Árs-
arður varð um 80,000 krónur,
mest að þakka aukinni fram-
leiðslu. Er hagur verksmiðjunn-
ar nú í miklum blóma. Sjóðir
hennar eru nú um 200,000 kr.
og er helmingurinn varasjóöur.
Framkvæmdarstjórn var endur-
kosinn: Ragnar Ólajsson, Pjetur
Pjetursson og Siglryggur Jónsson.
— í aðalhluta Akureyrarkaup-
staðar er nú unnið að holræsa-
gerð og gangstjeltalagning.
Leiðrjcttingr. í greininni Samv-.
molar frá Svíþjóð, í 24. tbl. Varðar,
hefir misprentast: Ef reiknað er
eftjr viðskiftamagni sarav.ijel. og
kaupm.vcrslananna, verður niður-
staðan sú, að skattar samv.fjel. eru
85°/o, en kaupm.verslananna 667o,
en á að vera að skattar samv fjel. eru
0,85°/o, en kaupm.verslananna 0,667».
Prentsmiðjan Gutenberg.