Vörður - 04.07.1925, Blaðsíða 4
4
V Ö R Ð U R
dal á Kjalarnesi, en hann liafði-
næstflesta vinninga í glímunni.
Að henni lokinni höfðu íþrótta-
menn boðið Noregsförunum til
fagnaðar. Töluðu þar ýmsir, en
fegurst Sigurður Greipsson glímu-
kóngur. Mintist hann í látlausri
en innilegri og hrifandi ræðu
hins »besta förunautar« þeirra
fjelaga í Noregsförinni, en það
var islenski fáninn. Kvað hann
það vera dýrustu augnablik
ferðarinnar, er þeir báru fánann
inn á glímusviðin í erlendu
landi og áhorfendurnir fögnuðu
honum og hyltu þá fjelaga um
leið, ekki sem glímumenn, held-
ur sem fulltrúa íslands. Hefði
sjer þá fyrst skilist hver munur
var á því að vera fánalausþjóð
og hinu, að geta hvar sem var
í heiminum komið fram með
merki sitt í fararbroddi og reynt
að vekja virðingu fyrir því með
erlendum þjóðum.
Sigurður Eiriksson regluboði
ljest á heimili sonar síns síra
Sigurgeirs á ísafirði 26. f. m.
Stórstúkuþingið hefir samþykt
að kosta jarðarför hans, í við-
urkenningarskyni fyrir starf
hans í þágu reglunnar.
Embættispróf í lögfræði hafa
tekið: Valtýr Blöndal (II. eink.,
102 stig), Ingólfur Jónsson (II.
eink., 82 st.) Kristján Porgeir
Jakobsson (II. eink., 76 st.) og
Sigurður Grímsson (II. eink., 75
st.). — Læknisfræðispróf hafa
tekið: Karl Jónsson (I. eink.,
183 st.), Kristinn Bjarnason (I.
eink. 177 st.), Ari Jónsson (I.
eink., 174 st.) og Hannes Guð-
mundsson (I. eink., 160 st.).
Versiunarráðstefna. Heildsala-
fjelagiö danska hefir boöið
nokkrum fslenskum kaupsýslu-
mönnum á ráðstefnu, sem halda
á i Höfn f þessum mánuði og
verður þar rætt um verslunar-
viðskifti þjóðanna. Hjeðan eru
farnir á ráðstefnuna Ágúst
Flggenring alþm., Gisli Johnsen
konsúll, Sig. Kristinsson, Garðar
Gislason og Sœmundur Halldórs-
son frá Stykkishólmi. Auk þess
er búist við að baukastjórarnir
Sig. Eggerz og Magnús Sigurðs-
son sæki ráðstefnuna.
19. júni varð ágóðinn af há-
tíðahöldunum 10500 kr. og rann
í Landsspitalasjóðinn.
39 stúdentar útskrifuðust úr
Mentaskólanum 30. f. m.
Joannes Patursson kóngsbóndi,
forvígismaður Sjálfstæðisflokks-
ins á Færeyjum, er nýkominn
hingað með konu sinni. Mun
hann hafa stutta dvöl hjer, en
frúin verður lengur og yngsti
sonur þeirra hjóna, sem hingað
er kominn til skólavistar.
Iþróttamót stendur að Fjórsár-
túni í dag. Gengst bjeraðssam-
band ungmennafjelaganna.Skarp-
hjeðinn, árlega fyrir íþróttamóti
þar. Ræður flytja þeir Guðm.
Finnbogason og Arni Pálsson.
Noregsfiokkurinn glfmir.
Stórstúkuþing hefir staðið hjer
f bænum þessa viku. Fulltrúar
voru undir 80 að tölu og er
það með mesta móti fjölment.
Stórstúkan telur nú 6465 fje-
laga alls, unga og gamla.
Frá Akureyri er sfmað 29. júní:
Stærsta brúðkaupsveislan, er
haldin hefir verið hjer um slóð-
ir í meira en aldarfjórðung, stóð
að Æsustöðum í Egjafirði á laug-
ardaginn var. Níels bóndi Sig-
urðsson á Æsustöðum gifti tvær
Gjalddag’i „Varðar“ er 1. júlí.
Reikningur
Sparisjóðs Sauðárliróks ó.riö 1934.
P a s s i v a : Iír. a.
1. Inustæðufje 1071 viðskiftamanns..... 587382 08
2. Ýmsir skuldheimtumenn .............................. 12 80
3. Varasjóður .................................... 69105 89
Alls kr. 656500 77
Sauðárkróki 1. maí 1925.
Kristján Blöndal. Hálfdán Guðjónsson. Pjetur Hannesson.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
Inn- og titborganir árið 1934.
Innborganir: Kr. a.
Peningar i sjóði frá f. á..............
Borgað af lánum:
a. fasteignarveðslán................... 47726 86
b. sjálfskuldarábyrgðarlán ............ 54033 11
c. lán gegn ábyrgð sveitarfjelaga...... 3310 00
d. lán gegn handveði og annari tryggingu 800 00
Innleystir víxlar ....................
Sparisjóðsinnlög .....................
Vextir:
a. vextir af lánum.................... 23552 46
b. forvextir af víxlum ............... 7185 67
c. vextir af innst. (bönkum og af verðbr. 3161 75
Kr. a.
11624 78
Bankar og aðrir skuldunautar
Seld verðbrjef og fasteignir ...
Ýmislegar innborganir ......
105869 97
206735 84
214441 82
33899 88
17012 05
2000 00
2242 65
Alls kr.
683826 99
Útborganir:
1. Lán veitt:
a. gegn fasteignarveði ..............
b. gegn sjálfskuldarábyrgð ...........
c. gegn ábyrgð sveitarfjelaga ........
d. gegn handveði og annari tryggingu ...
2. Vixlar keyptir........................
3. Útborgað sparisjóðsinnstæðufje .......
(þar við bætast dagvextir af ónýttum
viðskiftabókum).....................
4. Kostnaður við rekstur sparisjóðsins:
a. laun ..............................
b. annar kostnaður....................
5. Bankar og aðrir skuldunautar .........
Kr. a. Kr. a.
42750 00
41599 99
13000 00
3500 00
149473 14
584 34
4200 00
3260 46
100849 99
247030 84
150057 48
. 7460 46
157977 46
6. Keypt verðbrjef og fasteignir 4694 48
7. Ýmiskonar útborganir 45 00
8. í sjóði 31. desbr. 1924 15711 28
Alls kr. 683826 99
Á.t>ati og halli árið 1924.
Tekjur: Kr. a. Kr. a.
1. Vextir af lánum 23552 46
2. Forvextir af vixlum 7185 67
3. Vestirafinnst.ibönkumogaf verðbrj. ... 3161 75
4. Ýmsar aðrar tekjur 2242 65
Alls kr. 36142 53
G j ö 1 d : Kr. a. Kr. a.
1. Reksturskostnaður:
a. þóknun til starfsmanna 4200 00
b. þóknun til endurskoðenda 150 00
c. önnur útgjöld (húsaleiga, eldiviður,
ljós, ræsting, buröareyrir o. fl.) ... 3110 46 7460 46
2. Vextir af innstæðufje í sparisjóði
(Rentufótur 4V2°/o) 22650 60
3. Arður af sparisjóðsrekstrinum á árinu 6031 47
Alls kr. 36142 53
Jafflaöarreikningur 31- deebr. 1935.
A k t i v a : Kr. a. Kr. a.
1. Skuldabrjef fyrir lánum:
a. fasteignarveðskuldabrjef 288592 78
b. sjálfskuldarábyrgðarskuldabrjef 58616 50
c. skuldabrjef fyrir lánum gegn ábyrgð
sveitarfjelaga 37756 00
d. skuldabrjef fyrir lánum gegn hand-
veði og annari tryggingu 3300 00 388265 28
2. Óinnleystir víxlar 131770 00
3. Ríkisskuldabrjef, bankavaxtabrjef og
önnur slík verðbrjef 25000 00
4. Innieign í bönkum 88745 26
5. Aðrar eignir 5440 43
6. Ýmsir skuldunautar 1568 52
7. í sjóði 15711 28
Alls kr. 656500 77
Reikning þennan höfum við endurskoðað og borið saman við
bækur sjóðsins, og höfum ekkert við hann að athuga.
Sauðárkróki 14. mai 1925.
Sigfús Jónsson. Albert Kristjánsson.
dætur sinar, Helgu, Pálma Jós-
epssgni barnakennara í Reykja-
vik, og Jóninu, Sveini Frimanns-
sgni, útgerðarmanni í Ólafsfirði.
Boðsgestir voru um 200 og
komu víðsvegar að. Tveimur
nautgripum var slátrað til veisl-
unnar og fór hún fram í tjaldi
miklu i túninu. Sátu nær hundr-
að manna þar að snæðingi i
einu. Dansað var og setið að
drykkju langt fram á nótt. Brúð-
hjónin voru gefin saman af
bæjarfógetanum á Akureyri.
Aðaifundur íslandsbanka var
haldinn 1. þ. m. Hefir bankinn
á siðasta ári grætt rúmar 960
þús. kr.
Skýrsla Landsbankans um starfs-
árið 1924 er nýkomin út. Segir
þar svo um afkomu bankans:
»Tekjur bankans síðstl. ár
hafa alls numið kr. 3.169.453,96
(að frádregnum kr. 40.376,25 er
fluttar voru frá fyrra ári), en
áriö áður námu þær kr. 2.493.-
998,23. Innborgaðir vextir hafa
numið á árinu kr. 1.713.201,45
(1923: kr. 1.187.278,33) og for-
vextir af vixlum og ávísunum
kr. 1.144.273,12(1923: kr. 971.-
181,10). Ágóði af rekstri útbú-
anna nam kr. 79.683,81 (1923:
kr. 45.086,19) og ýmsar tekjur
námu kr. 216.511,00 (1923: kr.
137.416,84). Þegar dregið er frá
tekjunum greiddir vextir (þar
með taldir vextir af seðlum í
umferð samkvæmt lögum irá
1922) og kostnaður við rekstur
bankans, alls kr. 2.513.878,09,
verður afgangs af tekjunum kr.
695.952,12. Verðbrjef hafa verið
lækkuð i verði um kr. 104.032,-
62. Afskrifað tap bankans sjálfs
á víxlum og lánum kr. 188.147,-
47 og útbúsins á Eskifirði kr.
644.638.91. Gengistap hefir orð-
ið kr. 123.032,76 og lögákveðin
gjöld nema kr. 15.000,00. Alls
nema gjöldin kr. 3.588.729,85 og
rýrist því varasjóður um kr.
378.899,64«.
Aðalfundur Eimskipafjelags Is-
lands stóð 1. þ. m. Ágóði fje-
lagsins siðastliðið ár var 292
þús. kr., og verður honum var-
ið nær öllum til afskrifta á eig-
um fjelagsins. Hluthafar fá eng-
an arð.
Hjúskapur. Síðastl. þriðjudag,
voru gefin saman í bjónaband,
austur í Pingvallasveit, ungfrú
Helga Jónsdóttir, hjúkrunarkona
og síra Jakob Kristinsson. Pró-
fessor Haraldur Nielsson gaf
þau saman.
Danska listsýningin. Henni er
nú lokið og fór Struckmann
málari heimleiðis síðastliðið
sunnudagskvöld. L. Kaaber
bankastjóri keypti eina fegurstu
og dýrustu myndina, sem þar
var: Jómfrúin i ormshamnum,
eftir Joakim Skovgaard, og gaf
hana málverkasafni landsins.
„Yörn í guðlastsmálinu“,
Rjetlvísin gegn Brynjólfi
Bjarnasyni. Fæst hjá bóksölum
um land alt og á afgr. blaðs-
ins.
Nokkur málverk fleiri voru
keypt, eftir ýmsa.
Myndir frá íslandi. Svo sem
kunnugt er, ferðaðist franski
vísindamaöurinn Poul Gaimard
hjer á landi árin 1835—36.
Hjeldu Hafnar-íslendingar hon-
um veislu er hann kom frá
Fróni og orti Jónas Hallgríms-
son við það tækifæri hið fræga
kvæði sitt: »Þú stóðst á tindi
Heklu hám«. í för meö Gaimard
var málarinn A. Meger og teikn-
aði hann fjölda mynda hjeðan,
sem siðan fylgdu landabrjefum
þeim er Gaimard gaf út með
ferðabók sinni. Mun verk það í
fárra höndum hjer á landi og
þessar steinprentuðu myndir
(litografiur) því lítt kunnar ís-
lendingum. Nú hafa verið send-
ar hingað um 140 af þessum
myndum og eru þær til sölu
hjá firmanu Jón Grímsson og
Carl Tulinius í Hafnarstræti.
Myndirnar gefa ágæta hugmynd
um lífið á íslandi fyrir 90 ár-
um, búninga, húsagerð til sveita
og kaupstaða o. fl. íslenskir
listamenn, sem hafa sjeð þær,
telja þær mjög vel gerðar og
sumar stórfallegar.
Ræktunarsjóðurinn. Um for-
stjórastöðuna við hann sækja
þessir: Vigfús Einarsson fulltrúi,
Pjetur Magnússon lögmaður,
Gunnar Viðar hagfræðingur,
Björn Pórðarson hæstarjettarrit-
ari, Porsteinn Jónsson bankarit-
ari, Páll Jónsson og Hallgrímur
Jónsson.
Dönsku stúdentasöngvararnlr
koma til bæjarins á miðvikudag.
Peir eru 38 að tölu og syngja
hjer í bæ 4 sinnum. Halda svo
kringum land á sunnudag og
syngja á tsafirði, Sauðárkrók,
Siglufiröi, Akureyri og Seyðis-
firði. — Á fimtudagskvöld verða
söngvararnir gestir á dansleik,
sem Stúdentafélagið heldur. Á
laugardag býður bærinn þeim til
Pingvalla.
Genglð.
Rvik. 26. júní 1925.
pund sterl. . . . kr. 26,25
dönsk kr — 110,76
norsk — .... — 98,47
sænsk — .... — 144,98
dollar .... - 5,4174
Prentsmiðian Gutcnberg.