Vörður


Vörður - 24.03.1928, Page 2

Vörður - 24.03.1928, Page 2
2 V Ö R Ð U R Gekk svo fram á stríðsárin. En 1917 náðu Sjálfstjórnar- menn 11 þingsætum á Lögþingi og varð þá J. Patursson Lands- þingsmaður. En á Fólksþinginu sat sambandsmaðurinn A. Sam- úelsen. Reyndi hann að sýna Dönum fram á, að þrátt fyrir meiri hluta Sjálfstjórnarmanna á Lögþingi væri Sambandsmenn fltýri í Færeyjum og bæri að fara eftir þeirra skoðun. Fekk því Patursson engu áorkað. Reyndi hann að fá stjórnina til að leggja fram frumvörp, er Lögþingið hafði samþykt, en hún neitaði. Lagði hann þau þá sjálfur fram, en þau voru svæfð i nefnd. Þetta voru frum- vörp um að færeyska yrði skólamál, um aukið vald Lög- þingsins, um hvalveiðar (um veiði smærri hvala máttu þeir sjálfir setja lög„ en stórhvel- unuin urðu Danir að ráða), um skattamál og um stofnun stýri- mannaskóla. Á stríðstímunum teptust all- ar samgöngur við Danmörku og urðu Færeyingar þá að snúa sjer til íslands, er þá sótti vör- ur til Ameriku, og gátu þeir þannig fengið vörur með því að sækja þær lil Reykjavíkur. En sá var hængurinn á, að Englendingar tóku öll skip, er komu út fyrir landhelgi og fluttu til Orkneyja til skoðun- ar. Gat þetta valdið miklum töf- um. Sneri Lögþingið sjer þá til amtmannsins í Færeyjum, Rytters, og bað hann um að fá hjá ensku stjórninni frjálst siglingaleyfi til íslands. Því neitaði hann og samdi Lögþing- ið þá sjálft við ensku stjórn- ina um siglingaleyfið íyrir milligöngu danska sendiherr- ans í London. — Varð út af þessu mikill úlfaþytur i danska þinginu eftir að stríðinu var lokið og var skipuð 11 manna nefnd til þess að rannsaka málið. Sat sú nefnd heilt ár á rökstólum og vildi stefna fyrir sig ýmsum mönnum í Færeyj- uin, er við málið höfðu verið riðnir. En þeir svöruðu að „engar utanstefnur víldu þeir hafa“ og gætu menn komið til Færeyja, ef þeir vildi eitthvað við sig tala. Árangurinn af starfi nefndarinnar var sá, að J. Patursson væri „næstum því“ landráðamaður, og hinir flokks- menn hans dálítið skárri, er þeir hefðu ekki snúið sjer til Dana, sem þeim var neitað um af danska amlmanninum, og verslað við aðra en Dani, sem var óhjákvæmilegt og bjargað sjer þannig frá hungri eða neyð. Snemma á árinu 1923 skrif- aði Norðmaður nokkur grein í norskt blað, þar sem hann með svörtum litum málaði harð- stjórn Dana i Færeyjum og kvað Færeyinga helst mundu vilja ganga undir yfirráð Nor- egs, enda væri þeir norsk þjóð. Skrifaði þá Oliver Effersöe grein á móti í dönsk blöð og kvað Færeyinga vera af dönsk- um uppruna og væri þeir í alla staði ánægðir með danska stjórn. Tóku þá norsk blöð aft- ur upp „leiðrjettingu" Effersöe. Svo vildi þá til, að Patursson var staddur í Noregi um þess- ar mundir í fyrirlestrarferð. Mótmælti hann þá í blaðagrein staðhæfinguin Effersöe’s um danska upprunann og skýrði nokkuð frá stjórn Dana i Fær- eyjuin. Þetta var hið svokallaðá Noregsmál og reyndi Effersöe að nota það til að fá fylgis- menn J. Paturssonar á Lög- þinginu til að segja skilið við hann og setti það síðan injög á oddinn við kjósendur 1924, en l'lokkur Paturssonar hafði þessa viðleitni Effersöe að engu. Þá var það er Lögþing stóð 1924, að Moltke utanríkisráð- herra Dana stýrði til Færeyja á herskipi einu mildu með fríðu föruneyti og með tvo kafbáta í förinni. Riðu þá af skot mikil, svo undir söng í fjöllunum. Steig síðan Moltke á land og gekk til Lögþingsins. Las hann þar fyrir mönnurn boðskap er ekki einungis kæmi frá dönsku stjórninni, heldur stæðu þar allir flokkar og öll danska þjóðina á bak við. Var boðskapurinn sá, að dönsk grundvallarlög skyldu gilda fyr- ir Færeyinga, og dönsk tunga vera mál þeirra. Færeyjar væri einungis amt úr Danmörku, Færeyjaamt. Þessu svöruðu Sjálfstæðis- inenn í Færeyjum því einu.^að þeir bættu við stefnuskrá sína: í Færeyjum skulu Færeyingar ráða. — Bar siðan ei til tíðinda fyr en á árinu 1926. Mál JFær- eyja höfðu til þess tíma ÓIl heyrt undir sama ráðuneytið (Justitsministerium) en nú barst Færeyingum sá boðskap- ur, að málum þeirra slcildi skift niður á allar dönsku stjórnardeildirnar, 11 að tölu. Þessu mótmæltu þó báðir flokk- arnir þegar í stað, en við svo búið situr enn. Ástandið er þá þannig í Fær- eyjuin nú, að í Real-skólanum eru 6 timar í dönsku á viku, 1 i færeysku, sem þó er ekki skyldunámsgrein, því að í þess- um eina tíma mega þeir læra sænsku, ef þeir kjósa heldur. í barnaskólum er danskan kenslumál. I kirkju geta prestar fengið leyfi til að prjedika á færeysku, en aðrar kirkjulegar athafnir skulu fara fram á dönsku og danska sálma skal syngja. Stýrimannaslcóla hafa þeir nú loks fengið leyfi til að hafa, en skólastjórinn skal vera danskur og kent skal á dönsku. Til búnaðarlána i Færeyjum fengu Færeyingar frá stjórninni 500 krónur og er það þótti nokkuð lítið fengu þeir 150 kr. í viðbót til rekstrarkostnaðar. Til slcipasmíða hafa Færey- ingar getað fengið lán frá Dan- mörku, og fóru því fram á, að úr fje því er þeir gæti fengið þaðan væri myndaður sjerstak- ur sjóður, er þeir legðu í 50 þúsund krónur, og hefði þeir sjálfir yfirráð yfir sjóðnum. Við slíkt var ekki komandi, en landbúnaðarráðherra Dana á að segja fyrir um gerð skipanna og þau skulu bygð í Danmörku. Varðskip hafa Danir við Fær- eyjar, en svo þykir strandgæsla þess, að Færeyingar munu helst hugsa sjer að reyna að gjöra út sjálfir skip til strandvarna. Énda þótt ekki verði borið á móti því, að ýms vandkvæði sje á stjórn Dana á Færeyjum, kveðst Joannes Patursson ekki efast um, að ef Færeyingar eru sjálfir á einu máli um að rjetta við hag sinn, þá muni Danir verða þeim góðviljaðir og ekki láta sitt eftir liggja, enda sje það von sín að hægt sje að ráða málunum til lykta á friðsemd^- ar- og velvildar-grundvelli. ir vænta menn þess, að hann hugleiÓi hvort starfsbróðir hans í fjármálaráðuneytinu sje við- eigandi stafnbúi í fjármálum þjóðarinnar, eftir þessi afrek sín. Umvandanir Tímans. rjettmæt. Yfirleitt er það svo, að hjer í blaðinu munu and- stæðingar fá að njóta sannmæl- is. Eina ráðið til þess, að lýs- ingarnar á þessu átrúnaðar- goði Tíma-ritstjórans, verði á annan veg er það, að dóms- málaráðherrann sjái að sjer og bæti ráð sitt. Annars er rétt að það komi fram, að þrátt fyrir þessi harð- yrði um dómsmálaráðherrann, fer mjög fjarri þvi, að hér í blaðinu hafi þessi maður ver- ið víttur um skör fram. Það er þvert á móti svo, að alvarleg- ustu ávirðingar hans hafa ekki •verið gerðar hér að umtals- efni. Skal það fúslega játað, að þögnin um þessi mál stafar ekki af neinni hlífð við ráð- herrann, heldur af því, að ef ýms óvegin ununæli hans væru höfð eftir opinberlega, gæti það haft hinar alvarlegustu af- leiðingar fyrir sjálfstæði þjóð- arinnar. Dómsmálaráðherrann situr í þeirri stöðu, að erlendar þjóðir geta ekki látið ummæli hans eins og vind um eyrun þjóta, hvað sem okkur líður hér heima fyrir. Verður að gera þá kröfu til flokksmanna ráðherrans, að þeir hlutist til um að hann sýni framvegis meiri gætni en verið hefir, i þeim málum, sem að erlend- um þjóðum vita. Siðleysi kunnings- skaparins. Fyrir skömmu síðan birtist grein hjer í blaðinu með þess- ari fyrirsögn þar sem ofurlítið var vikið að ræðukafla einum, sem dómsmálaráðherrann hafði flutt á eldhúsdegi. Nefndi dóms- málaráðherrann sem dæmi þess er hann kallaði „siðleysi kunn- ingsskaparins" það, að ná- komnir venslamenn manns eins, sem bendlaður hafði verið við fjárpretti höfðu beðið mann- inn undan ákæru og verið fús- ir til að færa f járhagslegar fórnir í því skyni. Eitthvað hafa ummæli þessi komið illa við kaun ráðherrans, þvi að hann fer sjálfur á stúfana í síðasta Tímanum og þykist ætla að hrekja ummælin með tilvitnum í danskan lögfræðing, sem ný- lega hefir átalið vægð þá, sem dönslc stjórnarvöld sýndu ýms'- um afbrotamönnum. Én það vill svo illa til að þessi danski lög- fræðingur knjesetur fyrst og fremst dómsmálaráðherrann. Farast honum svo orð m. a.: „Síst þarf að undra þótt ætt- ingjar og vinir leitist við að hjálpa afbrotamanni, sem tengdur er böndum frændsemi og kunningsskapar“. En það var einmitt þetta, sem dómsmálaráðherrann var að býsnast yfir og átelja. Það sem danska lögfræðningnum þykir eðlilegt og sjálfsagt, þykir ís- lenska dóinsmálaráðherranum vítaveit siðleysi. Danski lög- fræðingurinn staðfestir því al- gerlega skoðun „Varðar" í þessu máli. Ráðherrann telur að „vina- hói>ur Árna frá Múla“ hafi viljað láta breiða yfir þetta mál. En sannleikurinn er sá, að sú manneskja, sem einna mest mun liafa rætt við ráðherrann um þetta mál var ekki mál- kunnug Árna frá Múla, fyr en eftir að umrædd grein kom út hjer í blaðinu. í þessu sambandi er rjett að leiðrjetta þá missögn, sem var hjer í blaðinu, að gengið hafi verið að tilboði ættingjanna um fjárframlag og manninum hafi Tvær sjóðþurðir. Dómsmálaráðherranum hef- ur orðið tíðrætt um sjóðþurð- armál Brunabótafélagsins í Tímanum. Hefur alt sem hann hefur um það ritað verið sam- boðið sannleikksást og góð- girni þess heiðursmanns. Fyrir nokkrum vikum kvaðst Magn- ús Guðmundsson fús til að upplýsa gang þess máls, ef til- efni gæfist. Síðan hefir dóms- máiaráðherrann ekki á það minst — undir nafni. En í Tímanum birtist nýlega klausa undirskrifuð af A, þar sem les- endur eru fræddir á því enn á ný, að ritstjóri þessa blaðs, hafi sem forstjóri Brunabóta- fjelagsins „látið“ 30 þús. krón- ur af landsfje tapast á tveim- ur árum. Orðalagið sver sig svo í ættina, að tæplega verður vilst á faðerninu. Dómsmálaráðherrann hefur haldið þessu fram, sem full- sönnuðu máli hvað eftir ann- að, svo að almenningur hlýt- ur að gera ráð fyrir að hann hafi alveg órækar sannanir fyrir þessari fullyrðingu. Það gæti þó ekki sakað, að dóms- málaráðherran ljeti uppi skýrt og skorinort á hverju hann byggir þessa fullyrðingu sína. Dómsmálaráðherranum þykir það illa viðeigandi að slíkur maður, skuli gerast leiðtogi fhaldsmanna í fjármálum og landsmálum yfirleitt. Ritstjóri „Varðar“ getur tek- ið undir með forsætisráðherr- anum: Jeg er ekki fjármála- ráðherra. Fjármálaráðherrann er leiðtogi allra Iandsmanna í fjárinálum. Dómsmálaráðherr- ann gerir tæplega minni kröfu til hans en ritstjóra andstæð- ingablaðs, sem hann virðir ekki meira en það, að hann fær sig aldrei til að nefna það réttu nafni. Menn vita að fjármálaráð- herrann er mesti heiðursmaður, en þó hefir hann hent það, að hann hefir „látið“ verða undir stjórn sinni á Landsversluninni sjóðþurð hjá einum af útbú- stjórum Landsverslunarinnar. Og sú sjóðþurð var ekki 30 þús. heldur þrisvar þrjátíu þúsund og vel það. En sá var munur- inn á fjármálaráðherranum nú- verandi og forstjóra Bruna- bótafjelagsins, að fjármálaráð- herrann tók á sig að semja um sjóðþurðina við hlutaðeigandi útbústjóra og lét hann fara ér- fram með allar fjárreiður út- búsins, eins og ekkert hefði í- skorist, en forstjóri Brunabóta- fjelagsins skaut málinu til að- gerða landstjórnarinnar, og fól starf hlutaðeigandi starfsmanns þegar öðrum manni, er uppvíst varð um sjóðþurðina. Næst þegar dómsmálaráð- herrann skrifar um sjóðþurð- Hjer í blaðinu var því nýlega beint að forsætisráðherianum, að hann hefði skrifað undir dulnefni svæsna árásargrein á fyrverandi flokksbróður föður síns, gamlan mann, sem legið hefir rúmfastur undanfarið ár, ekkert skift sjer af islenskum stjórnmálum síðasta hálfa mannsaldurinn, og engan kost ætti þess að verja sig, fyrir á- rásum, einmana í fjarlægu lahdi. í grein þessari var meðal annars komist svo að orði: „Mikil raun er að slíkur maður skuli hafa fæðst á íslandi". Mönnum fánst allur ritháttur og andi þessarar greinar með þeim hætti, að menn áttu bágt með að fella sig við þá hugsun, að forsætisráðherrann væri höf- undur hennar. Forsætisráðherr- ann hafði ærna ástæðu til þess að bera af sjer þetta ámæli. Hann hefir haft tækifæri til þess, því nokkur blöð hafa ltom- ið út af Tímanum síðan áskor- unin birtist hjer i blaðinu til hans um að bera af sjer á- mælið, ef hann væri hafður fyrir rangri sök. Hann hefir ekki gert það. Ef ályktað er á þá leið sem dómsmálaráðherr- ann er vanur að gera, mundi því slegið föstu, að forsætisráð- herrann hefði orðið að sam- þykkja áburðinn með þögninni. Mönnum hefði síður komið það á óvart, þótt undirmaður forsætisráðherrans, dómsmála- ráðherrann yrði bendlaður við slíka ritsmíð en að sjálfur for- sætisráðherrann skyldi gera sig sekan í slíkri óhadlu. Það er sem sjer alþjóð vitanlegt um dómsmálaráðherrann, að hon- um er annajð tamara en prúð- menska í orðfæri, hvort heldur sem er í ræðu eða riti. Og þó er oflast andinn á bak við orð- in snögt um óprúðari en orðin sjálf. Það er eins og „orðin vanti í málið“ til þess að allar hugrenningarnar fái þar búning við hæfi. „Tíminn“ hefir tekið að sjer það hlutverk að verja gerðir þess- ara tveggja nefndu ráðherra og framkomu. Ritstjóri Tímans vandar mjög um við andstæð- inga sína fyrir óprúðan rit- hátt. En nær stæði honum að gera fyrst hreint fyrir sínum eigin dyrum og húsbænda sinna. Hann ber sig aumlega yfir því að dómsmálaráðh. var ný- lega kallaður hjer í blaðinu „valdagráðugur snápur“ og „endemi“. Honum er líklega ekki kunnugt um það, að sami virðulegi ráðherra kallaði and- stæðing sinn í sömu ræðunni heimskingja, götustrák, skræl- ingja og negra! Ritstjóri „Varðar“ 'finnur enga hvöt hjá sjer að afsaka þessi ummæli um dómsmála- ráðherrann. — Þau voru undir- bygð með rölcum og fyllilega

x

Vörður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.