Vörður


Vörður - 21.07.1928, Page 3

Vörður - 21.07.1928, Page 3
V Ö R Ð U R 3 hefur oss aldrei fyr verið gerð í þessu landi! Hjer eftir stöndum vjer varnarlausir gegn erlendum yfirgangi, er dómsmálaráðh. auglýsir þannig ótrú sína á ís- leuskum dómstólum. Það hefði verið betra, að hann hefði sett alla dómara af og sett samvinnu- skólapilta í staðinn. 2. Gjafirnar úr landhelgissjóði eru stórfenglegar. J. J. ráðh. gaf í vetur er leið 8000 kr. ein- hverju ensku fjelagi og nú hefur hann gefið erlendum ræningja sem næst 20000 kr. Ráðh. álítur sjáanlega, að hann eigi land- helgissjóðinn, en það er hinn mesti misskilningur. Hann hefur enga heimild til að gefa úr honum og það er óhjákvæmi- legt, að þingið skipi honum að borga upphæðir þessar. Ýmsir spyrja, hvernig það megi vera, að forsætisráðh. láti alt þetta viðgangast. En þeir menn spyrja fávíslega, því að það er löngu kunnugt orðið, að forsætisráðh. er ekkert annað en þægt verk- færi í höndum dómsmálaráðh. í*að sem J. J. skipar gerir hann og hvernig ætti hann þá að ráða gerðum J. J. Sjálfstæði forsætis- ráðh. gagnvart J. J. er hið sama og leirsins í höndum mynda- smiðs. J. J. getur breytt honum í hvaða mynd sem er. Forsætis- ráðh. er yfirleitt ekki nefndur lengur. Hann er skoðaður sem núll fyrir framan J. J., gildis- laus og þýðingarlaus og nennir enginn að eyða orðum um hann. 3. Daglega er nú farið á bifreið- um milli Norðurlands og Suður- lands. Húnvetningar eru nú einn sólarhring á leiðinni til Reykja- víkur og Skagfirðingar og Ey- firðingar tvo sólarhringa. Vill nú enginn fara með skipi, allra síst Esju, úr þessum hjeruðum. Það eru hinir miklu þurkar í júni, sem valda því, að bifreið- um er fært þessa leið. En í venjulegum árum mundi þetta ókleift. Árangurinn af því, að nú eru uppteknar bifreiðaferðir á þessum kafla landsins, hlýtur að verða einróma og hávær krafa um að flýta eins og verða má hinum nýja vegi yfir Holta- vöiðuheiði. Vegur þessi kostar ekki helming andvirðis hins nýja strandferðaskips og það verða ekki blíð orð eða fyrir- bænir, sem landsstjórnin fær, ef hún dirfist að láta nýtt strand- ferðaskip ganga fyrir þessari vegagerð. Flestum þykir ólíklegt, að hún þori að brjóta í bág við vilja almennings í þessu, en enginn veit nema J. J. vilji halda frain skipinu og þá vita allir hvað samgöngumálaráðh. muni gera. Sagt er, að nú sje verið að leita eflir tilboðum í skipið, en í vegi þorir stjórnin ekki að veita nema lítið. 4. Hannes dýralæknir segir í Tímanum ferðasögu sína til fundahalda um Borgarfjörð, Húnavatns- og Skagafjarðarsýsl- ur. Mun þeim, sem á fundun- um voru sjálfsagt þykja fróð- legt að bera saman frásögnina og veruleikann. Einna hlægi- legast mun það þykja, er sagt er, að Jón Þorl. hafi flúið af Borgarnesfundinum. En þáð er gömul saga, að Tíminn fyrir- lítur svo lesendurna, að hann leyfir sjer að bjóða þeim alt. Pað er leiðinlegt, að Tíminn skuli gleyma að tilfæra skila- boðin, sem einn af merkustu bændum Norðurlands bað Hannes fyrir til forsætisráðherr- aus, því að varla er rjett að geta þess til, að hann hafi ekki skilað boðunum. 5. Á Borgarnesfundinum var gerð hörð hríð að dómsmála- ráðh. og átti hann mjög í vök að verjast. Varð hann þá skap- illur og jós úr sjer ókvæðisorð- um, eins og hann á vanda til, er hann reiðist. Á fundinum var ungur maður, sem tók meinlega fram í fyrir J. J. nokkrum sinnum og varð hann ókvæða við og kallaði hinn unga mann sveitarlim o. fl. Hinn ungi mað- ur, sem fram í tók, er fram- kvæmdarstjóri mjólkurfjelagsins »Mjallar« í Borgarnesi, mann- vænlegur maður og djarfmann- legur, og kunnugir segja, að með því að kalla hann sveit- arlim hafi J. J. átt við það, að »Mjöll« nýtur styrks úr ríkis- sjóði. »Mjöll« er bændafjelag, stofnað í þeim tilgangi að koma mjólkurafurðum í sæmilegt verð. Uppnefni dómsmálaráðh. sýnir því það, að hann lítur á styrk- inn til þessa bændafjelags sem sveitarstyrk og bændurna sem í fjelaginu eru sem sveitarlimi. Honum fer því illa að niðra öðrum fyrir illmæli um bænd- ur. Og þess mun minst verða, að meðlimur stjórnar, sem sjálf hefir skírt sig bændastjórn, til þess að villa á sjer heimildir, þó að engih sje bóndinn í henni, leyfir sjer að viðhafa slík orð, jafnvel þótt í reiði sje. 6. Brottrekstur opinberra starfs- manna, sem heimilt er að segja upp án lagabreytinga, heldur áfram. Refsar dómsmálaráðh. á þenna hátt óvinum sinum og skyldmennum þeirra. Flest skrif- stofufólk vínverslunarinnar er rekið burtu, án þess að nokkr- ar sakir sjeu og gæðingar stjórn- arinnar teknir í staðinn. Á Borgarnesfundinum var J. J. vittur fyrir þetta, en hann sagði að sjóðþurð hefði valdið brott- rekstrinum. Honum var bent á, að þetta gæti ekki verið rjett, því að ýmsir af mönnum þess- um hafa alls ekkert fje undir höndum. Sakargift þessi gat því aðeins átt við um fáeina af hin- um brottreknu og fáir trúa þvi um útsölumennina t. d. á ísa- firði, ^estmannaeyjum og Seyð- isfirði, að hjá þeim hafi verið sjóðþurð. Er hart fyrir þessa menn að fá þá uppbót hjá J. J. á brottrekstrinum að vera bornir æruleysissökum á opinberum fundi í viðurvist mörg hundruð manna. J. J. þykir ekki nóg að flæma menn þessa burtu, hann vill líka svifta þá ærunni, sem er þeirra helgasta eign. 7. Á Borgarnesfundinum reyndi J. J. að eigna sjer og sínum flokki öll landbúnaðarmál und- anfarandi þinga. Þá reis upp Pjetur Ottesen og sýndi fram á í langri og skýrri ræðu hve mikinn þátt íhaldsmenn hafa ált í málum þessum og frum- kvæði að mörgum þeirra. Pessu treystist J. J. alls ekki að svara. Gin- og klaufaveikin var og nefnd og gekk P. O. fast að Hannesi dýral. og Tr. Þ. út af því máli og varð lítið úr svör- um. X. Hannes Jónsson dýralæbnir lýsir sjálfam sjer. í síðasta tölublaði »Tímans« skýrir Hannes Jónsson frá þing- málafundunum síðustu fyrir norðan. Lýsir hann því þar, hversu Hannes Jónsson dýra- læknir hafi gersigrað alla and- stæðinga sína, svo að þeir hafi fallið fyrir honum hver um ann- an þveran. Ennfremur segir hann: »Mátti það heita tilviljun er flokksstjórninni (Framsóknar) tókst á siðustu stundu að fá ágætan mann, Hannes Jónsson dýralækni, til að mæta á fund- unum af flokksins hálfu. Er Hannes raunar mjög störfum hlaðinn og gafst því raunar tími til undirbúnings. En vegna starfs síns í ríkisgjaldanefndinni og áhuga um almenn mál, er hann manna kunnugastur þing- störfum og sjerstaklega fjármál- um landsins.« Mikil er trú Hann- esar á sjálfum sjer, en skopleg hljóta ummæli hans að vera í eyrum þeirra manna, er fund- ina sóttu. Landhelgishöfðingian. Pegar hafa borist mörg brjef utan af landi, er lýsa biturri gremju yfir hinni hneykslanlegu landshelgisgjöf dómsmálaráð- herra. Einn brjefritaranna kemst meðal annars svo að orði: »Altaf höfum við útvegsbænd- ur vitað að Jónas frá Hriflu er okkur fjandsamlegur, en vegna hinna mörgu, og að því er virðist, einlægu og gremjufullu skrifa hans i »Tímanum« gegn landhelgisbrotum, bjeldum við að honum mætti þó treysta til röggsemi í landhelgisvörninni. Okkur er nú mikil raun að því og voði að sjá að áhugi hans í þessu máli reynist hræsni ein. En sú er von okkar að ekki þoli þjóðin það til lengdar, að Jónas fari með vcld og haldi erlendum veiðiþjófum veislur í landhelgi. Hefir honum höfðing- lega farnast við þennan Hull- togara og vildi jeg mega beina þeirri spurningu til ritstjóra »Varðar«, hvort ekki sje tilhlýði- legt að veita Jónasi nafnbót fyrir þá rausn og nefna hann Hull- Jónas«. Leiðrjetting. Sú villa hefir slæöst inn í grein- ina »Mentamálaráðherrann og Mentaskólinn« i siðasta blaði, að þar er sagt, að árið 1878 haíi verið veittar til Gagnfræðaskólans á Moðruvöllum 5800 kr. til kennara- launa. Þetta er eigi rjett. Með fjár- lögum fyrir fjárhagstímabilið 1878 —1879, sbr. Lög nr. 30 1877, eru veittar i þessu skyni kr. 3200. En skólinn komst eigi á fót, fyrr en 1880, það ár eru veittar með fjárl. fyrir fjárhagstímabilið 1880—1881, sbr. lög nr. 30 1879, til kennaralauna við skólann 5800 kr. G. A. S. Ádrepa til Tímans. I Tímanum frá 7. þ. m. er kvartað yfir því, að jeg hafi á Borgarnesfundinum verið nokk- uð orðvondur um andstæðinga ihaldsins, og segir að sá flokk- ur sje nokkuð djúpt fallinn, sem býður eða styrkir slíka menn fram til þings. Jæja! þetta segir hann bless- aður, sagði kerlingin. — Jeg er nú satt að segja alveg hissa á því, hvað Timinn er vægur við mig, úr þvi hann á annað borð fór að minnast á þetta ljóta orðbragð mitt, að hann skyldi þá ekki fletta ofan af mjer eins og jeg átli skilið, og segja rækilega frá hver um- mæli mín voru; því sannast að segja vóru þau mikið ljótari en hann skýrir frá, en af hvaða ástæðum hann tekur svona vægilega f, verður hver að giska á eftir því sem honum sýnist. Hann segir að jeg hafi sagt, að þeir væru eins og »andskot- inn með skitinn í klónum«. Nú skal jeg, lesari góður, segja ykkur hvað jeg sagði um þá á Borgarnesfundinum. Jeg sagði að mjer væri sjálf- um fullkunnugt um það, um Tr. Pórhallsson forsætisráð- herra, og að jeg sömuleiðis hefði fullnægjandi sannanir fyrir því um Jónas Jónsson ráð- herra, að þeir hefðu í sinni pólitísku baráttu farið ljúgandi og rægjandi um landið, fyrir kosningarnar í fyrravor, til að afla sér kosningafylgis og til að þoka andstæðingunum úr vegi, og að þarna hefðu þeir svo greinilega mint mig á söguna um miður velþekta persónu sem Tíminn nefnir rjettu nafni og sagt er um, að beri lygina og skítinn á tánum milli manna, um bæi og bygðir. Ef þau ummæli, sem jeg hafði þarna um þessa heiðurs- menn hefðu verið ósönn og ó- makleg, þá var þetta auðvitað ljótt og ósiðmennilegt framferði af minni hálfu, en ef hjer var sagður hreinn og beinn sann- leikur, þá voru aftur á móti þessi ummæli rjettmæt og sjálf- sögð, því slíkur stjórnmála-ó- sómi á ekki að vera óumtalað- ur eða óvíttur. Pað er víst að enginn sljórn- málasigur hefir áður á íslandi, unnist eins greinilega vegna rógs og blekkinga eins og sá sigur, sem Tímamenn og sósí- alistar unnu við síðustu kosn- ingar. Peir hrópuðu hátt um það stjórnmálamyrkur, sem nú grúföi 5'fir þjóðinni, og um það fjár- málafen, sem hún nú væri að sogast ofan í. En ef við kom- umst að, sögðu þeir, þá skulu af himni ský dragast og sól úr sævi rísa. Já, þá skal nú verða tekið á, sagði Tr. P. hinn stóri fálmari. Jeg ætla hjer fyrir lesend- urna að draga upp svolitla mynd af bardagagaaðferð þess- ara manna, mynd, sem jeg hefi sjálfur verið heyrnar- og sjón- arvottur að á þessum lífsins leikvelli, það er um stjórnmála- lega umsögn Tr. P. á fundi, sem haldinn var í Norðtungu f fyrravor á undan kosningum, þ. e. þeim eina pólitíska fundi, sem jeg hefi verið á með þeim manni. Jeg ætla ekki að fara mörg- um orðum um skrum og mælgi hans, um fyrirhugaðar fram- kvæmdir og fjárhagsumbætur, þegar Tímamennirnir með að- stoð sósíalista væri búnir að taka við völdum, því þau um- mæli voru þó í sjálfu sjer ekki neitt illkynjuð, það voru bara ógrunduð orð með vöntun á allri ábyrgðartilfinningu eins og oft vill verða hjá heimskum grobburum og vindbelgjum. En þegar hann fór að lýsa fjármálameðferðinni bjá hinni þáverandi stjórn, bg fjárhags- ástæðum ríkissjóðsins. Pá kom fram hinn óvandaði pólitíski loddari, um þau mál var hann bæði stórorður og margorður, því hann hefir líklega giskað á, eins og líka er víst og rjett, að þarna er fjöldinn af fólkinu nokkuð ófróður, og eins, að þegar um fjármál er að ræða, að þá eru flestir fremur við- kvæmir og að á þessu sviði er hægast að æsa upp hugi manna. Lýsing hans í aðaldráttum, var hjer um bil nákvæmlega á þessa leið. Hann sagöi að rík- issjóður hefði að vísu verið í talsverðum skuldum þegar í- haldið tók við, en svo hefði stjórn þess sýnt svo mikið á- byrgðarleysi, gáleysi og ráðleysi í meðferð fjármálanna, að hún hefði tekið hvert miljóna-lánið á fætur öðru ofan á það, sem fyrir var, og þetta var óþveginn lestur. Og í þessu synda- registri taldi hann lán það, sem Landsbankinn fjekk til styrktar veðdeildinni, og sömuleiðis lán það sem tekið var handa rækt- unarsjóðnum, og svo endaði hann sína bruðlunar skýrslu með því að ríkið hefði tekið 9 milj. kr. lán f Ameríku. Allar þessar upphæðir taldi hann rikisskuldir. Ekki gat hann um, að með þessum lánum eða á neinn ann- an hátt hefði verið greiddur einn einasti eyrir af eldri lánum, enda var það auðheyrður til- tilgangur ræðumannsins, að láta fólkið komast á þá skoðun, að hjer hefði af ráðleysi og gáleysi verið hrúgað skuldum á skuldir ofan, enda var hann mjög þung- orður, alvöruþrunginn og and- agtugur, útaf því að hinir ágætu íslensku bændur yrðu ósjálfráðir að sogast niður í hið botnlausa fjárhagslega vandræðafen íhalds- ins. Mjer satt að segja ofbauð al- veg hvað þessi maður þarna gat verið blygðunarlaus og stór- lýginn. Jeg skal kannast við það, að jeg tók ekki eins hart á þessa framferði þarna, og þurft hefði að vera, sem stafaði mikið af þvi, að fundur þessi var í kirkjunni, því mjer fanst að á slíkum orustuvelli þyrftu menn að vera sjerstaklega háttprúðir og heiðarlegir. En hann, þenn- an fyrverandi hempumann, hann klígjaði ekki við, þó í kirkjunni væri, að útdeila rógnum og lýg- inni til hins viðverandi safnaðar. Jeg sýndi fram á þarna á fundinum, hve mikil ósannindi og öfgar væru í umsögn ræðu- mannsins, skýrði frá hvað ríkis- skuldirnar hefðu stór-minkað á því tímabili, sem íhaldsstjórnin væri búin að vera við völd, og

x

Vörður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.