Menntamál - 01.12.1931, Blaðsíða 1
MENNTAMAL
Ú’J’GEFANDl: ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
V. ÁK Descjnlier J931. 8. BLAÐ
Skólaliús í sveitum.
Aður en almenn skólaskykla var lögleidd hér á landi, var
fleztum börnum kennt i heimahúsum. Fyrir aldamótin' síðustu
voru þó komin barnaskólahús á einstöku sta'Ó. Eftir að almenn
skólaskylda var lögleidd, byggÖu mörg skólabéruÖ skóíahús.
Flezt voru ]>au smá og barla ófullkomin. Þótti nóg aÖ hafa
eina kennslustofu með dálitilli forstofu, en önnur herbergi voru
þar ekki. Þetta var og skiljanlegt, því að frá því að kenna
í baðstofum e‘Öa köldum og ])röngum stofum, voru ])essi skóla-
hús, — þótt lítil væru — stórkostleg breyting til batnaðar.
Ví'ðast bvar var ekki heldur nema um farkennslu a'Ö ræÖa, og
til hvers átti þá a'Ö nota stærri hús en bygg'Ö voru ?
Á síbasta áratug hafa tímarnir breyzt svo mjög, aö þau skóla-
hús, seni ])óttu ágæt fyrir jiann tíma, þykja það ekki nú. Nýj-
ar stefnur í kennslu og u])peldismálum, nýjar kennsluaðferðir
og kröfur nútimans til hvers manns bafa það í för með sér,
að óhjákvæmilegt er að breyta og bæta húsakynni ])au, sem
barnafræðslan á að fara fram í.
Vegna strjáÍ1)ýlis og staðarbátta er víÖa ómögulegt að byggja
skólahús á þeim sta'ð í skólahéraði, a'ð öll börn geti gengið
í skólann. Annaðhvort yrði ]>á að byggja þar fleiri en eitt
skólabús eða heimavistarskóla.
Mörg skólahéruð munu bafa bug á því, að koma upp hjá
sér skólahúsi eins fljótt og hægt verður. Hvort ])að verður
heimangcjngu- eða beimavistarskóli, fer eftir staðbáttum.