Menntamál - 01.12.1936, Qupperneq 4

Menntamál - 01.12.1936, Qupperneq 4
4 lang sjaldgæfast þeirra. Og verður manni þá að minnast hlulfallanna, sem ráða um e > i, ö > u. , Samkvæmt skýrslunum blanda 22.6% barnanna e > i og aðeins 10.7% ö > u. En tíðni þessara sérhljóða má ráða nokkuð í af því, að eg fann á 10 síðum í Hrafn- kellssögu 500 e > i á móti 59 ö > u (tölurnar eiga við löng sérhljóð í áherzlu-samstöfum, þ. e. þau hljóð, sem virkilega hafa tekið breytingum). Þetta mætti ef til vill skýra svo, að breytingin hefði fyrst komið upp í orðum sem algeng og tiðhöfð eru í daglegu tali. Tölurnar sýna, að það eru nær 10 sinnum meiri hlikur til þess, að það liafi verið i orðum með e > i, heldur en í orðum með ö > u. Síðar hefur svo breytingin e > i breiðzt samkvæmt einskonar hljóð-tillíkingu til ö > u. Á svipaðan hátt væri það auðskilið, hvers vegna hið sjaldgæfa p varð á eftir k og t í linmælis-breyting- unni. Einna kynlegastar niðurstöður sýnir skýrslan um hljóð- hreytinguna hv > kv, enda tekur Aðalsteinn Sigmunds- son það fram í athugasemdum sínum um skýrsluna, að grundvöllur prófsins sé hér ótryggur. Börn um allt land rugla þessum hljóðum; má lieita, eftir skýrslunni, að Rangárvallasýsla ein sé laus við breytinguna (með 2.8%). Undir 14% barna rugla þeim i Árness-, Rangárvalla-, Skaftafells-, Múla-sýslum og jafnvel Norður-Þingeyjar- sýslu, þar sem ætla mætti að miklu fleiri, jafnvel öll börnin segðu kv. í hinum sýslunum rugla frá 20—36% (á Siglufirði 54.1%) hljóðunum. Sennilega er breytingin almenn á öllu svæðinu frá Gullbringusýslu norður og austur um til Norður-Múlasýslu. Á Fljótdalshéraði fann eg ekki kv fyrir hv hjá öðru fólki en því, sem flutzt hafði úr kv-héröðum, að norðan, vestan og úr Reykjavík. En úr þvi breytingin er rótgróin í Reykjavík, er auðskilið, að hún muni breiðast út um land.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.