Vorið - 01.07.1934, Blaðsíða 16
56
VORIÐ
KAUPENDUR Á AKUREYRI
eru beðnir að greiða blaðið hið
fyrsta á afgreiðslu þess: Þing-
vallastræti 6.
Allt sonui Keiðina.
Tötralega búinn maður stóð
fyrir utan dyrnar á veitingahúsi
einu og starði stöðugt á dyrnar.
»Á hvað ert þú að horfa?«
spurði maður nokkur, sem fór
þar fram hjá.
»Ég er nú bara að horfa á
þessar dyr«, sagði maðurinn, »og
það ekki að ástæðulausu. Fyrir
nokkru átti ég fallegt þriggja
hæða hús, en það hvarf inn um
þessar dyr. Ég átti stóran skóg,
svo stóran, að það var ekki hægt
að ganga í kringum hann á ein-
um degi. Hann fór líka inn um
þessar dyr. Ég átti 20,000 krón-
ur í bankanum, þær fóru sömu
leiðina. Ég átti mylnu með 4
kvörnum svo stórum, að það er
ótrúlegt að þær skyldu komast
þarna inn, og þó fóru þær einnig
þessa sömu leið. Ég átti 10 hesta,
50 kýr, 100 kindui, 200 svín og
300 hænsni; allt hefir þetta horf-
ið inn um þessar dyr. Ég átti
krafta í vöðvum mínum, og æsku-
roða á kinnunum. Þetta fór ég
með þarna inn, en kom ekki með
það aftur. Ég átti gott nafn og
góðan orðstír, en það hefir allt
horfið inn um þessar ægilegu
dyr, og aldrei komið út aftur.
Nú óska ég þess innilega að
eiga peninga til að láta mála hina
sorglegu sögu mína þarna á hurð-
ina. öllu því beztá og dýrmætasta
sem ég átti, hefi ég fórnað þarna
innan við dyrnar. Aleigu mína
og allt sem ég átti bezt og dýr-
mætast til, hefi ég farið með inn-
um þessar dyr, sem nú er búið
að loka fyrir mér.
(»Magne«).
RÁÐNINGAE
á þrautum í síðasta blaði:
Felumyndin: Látið myndina standa á
liöfði, sézt þá stúlkan á milli trjánna
til vinstri.
Felunöfnin eru þessi: Hjálmfríður,
Unnur, Lauga, Dóra, Alda, Hulda.
Reikningsþnmtin: Hann er 23 ára
gamall.
Gátumar: 1. Skórnir mínir. — 2.
Hægri ölnboginn.
Frá íslandi til Grænlands eru 300
km., til Færeyja eru 420 km., til Jan
Mayen eru 550 km., til Skotlands eru
800 km. og til Noregs eru 970 km.
»V O R I Ы kemur út mánaðarlega,
12 blöð á ári, og auk þess er desem-
berblaðið — jólablaðið — tvöfalt. Ár-
gangurinn kostar 2 krónur og greiðist
fyrir 1. maí. — Afgreiðsla blaðsins er
í Þingvallastræti 6, Ak. — Sími 174.
Ak. Prentsmiðja Odds Björnssonar. ’34.