Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.02.1907, Síða 8

Bjarmi - 15.02.1907, Síða 8
24 B J A R M I nokkur eintök af þvi til sýnis, gegn burðargjaldi. Blaðið kostar hér á landi 3 kr. og utanáskrift ritstjórans er: Pastor Barrat, Soíie Plads 2, Kristjanía. Bjarmi mun síðar minnast frekar á þessar hreyfingar. <s Molar. Dæmisaga. Það voru einu sinni nokkrir menn í orðahnippingum og vönduðu lítt kveðjur hverir öðrum. »Þú ert mikill aulabárður«, sagði einn þeirra, »að sjá ekki, að jeg skil (jetta alveg rétt«. »Fyr má nú vera þröngsýnk, sagði annar. »Þú ættir að hvolfa ofan af þér asklokinu, svo að þú sæir hið sama og jeg«. »Fáfræðin ein getur komið með aðrar eins tullyrðingar«, sagði hinn þriðji. »Það getur verið vafasamt hvort lærdómshrokinn er ekki jafn hættu- legur réttri dómgreind, eins og J)að, sem þér kallið fáfræði«, svaraði hinn fjórði. »Verst er þó að rangfæra vísvit- andi«, sagði hinn íimti. — — Deilan harðnaði óðum. í sama bili bar þar að engil. »Um hvað eruð þið að þrátta?« spurði hann. »Um guðs orð«, svöruðu þeir. »Yðar guð er þá baráttu og ósam- lyndis guð«, sagði engillinn. »Nei, hann er friðarins guð«, svaraði einn þeirra. — »Og kærleik- ans guð«, bætti annar við. »Það er þó ekki að heyra á orða- lagi ykkar«, sagði engillinn og livarf um leið. (LJr dönsku að mestu leyti). H ver er » kristi n dó ms stefna« heim a- trúboðsins íslenzka? Það hefir enga aðra stefnu en kirkja vor sjálf, þar sem hún er sjálfri sér trú, að efla barnatrúna og kristilegar framkvæmdir innan safnaðanna. Pað er starf, en ekki stefna. S. Á. Gislason. (cand. theol.) Sælir eru hreinhjartáðir. Olto Funke, prestur í Brimum, sem skrifar betur kristilegar ferða- sögur og skemtilegar hugvekjur en fleslir núlifandi rithöfundar, segir svo frá: »Þegar ég var að fara frá foreldrum minum í fyrsta skifti, kallaði móðir mín mig á eintal og sagði: »Þegar óhreinar hugsanir á- sækja þig, þá skaltu, góði minn, hafa l'yrir munni þér byrjun fjall- ræðunnar, en segðu sjö sinnum: »sælir eru hreinhjartaðir«. »Eg hefi þrásinnis gengið úr skugga um«, bætir Funke við, »að þetla er ágætt ráð«. Bjarmi vill leiða athygli allra að því, að kaupa og lesa blað stórstúk- unnar »Templar«. Blaðið verðskuld- ar það sannarlega, því það flytur málefni Góðtemplarareglunnar vel og drengilega. Blaðið befir þegar náð talsverðriútbreiðslu,síðanbanka- ritari, herra Pétur Zóphóníasson, varð ritstjóri þess. En blaðið þyrfti að fá miklu meiri útbreiðslu. Misprentast hefir í lagboða-fyrii’sögu, vers- anna í síðasta blaði: Sjáið merkið Kristur kallar. á að vera: Sjáið merkið Kristur k e m u r. Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík. Ritsljóri: Bjarni Jónsson kennari, Njálsgötu 33 Reykjavík. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.