Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.09.1908, Qupperneq 2

Bjarmi - 01.09.1908, Qupperneq 2
138 B J A R M T hann, »og lærið af mér, því að ég er hógvær og lítillátur í hjarta; þá munuð þér finna livild sálum yðara. Og fyrst þér finst það sælt, að fá líkamlega hvild, þegar þú ert ör- þreyttur, þá er það þó langt um sælla að finna hvíld þreyttri sálu, losna við alla órósemi, allar áhyggj- urnar, sem þú hefur lagt á þig og kvalið þig með. Enginn annar en Jesú getur veitt þér þessa hvíld. »Við kross þinn, Jesú, jafnan ég vil mér hæli iá«, — þetta syngjum vér. Og þúsundir manna liafa reynt, að þetta er satt. Þeir hafa trúað orði hans, komið lil hans með allan þunga sálar sinnar og varpað hon- um af sér við krossinn hans, og reynt það, að þeir gátu losnað við hann að fullu og öllu, fengið fyrir- gefningu drýgðra synda og' kraft til að lifa nýju lífi. Ef þú því veist, livað það er að erfiða og vera hlaðinn þunga, hvort sem hann er líkamlegur eða andleg- ur, þá láttu þessi dýrðlegu huggun- arorð þér í eyrum loða: »Komið til mín — og ég mun gefa yður hvíld«. Aldrei iðrasl þú þess, ef þú geliir þig á hönd hins máttuga frelsara þíns, og varpar al' þér öllum hyrð- um, öllum þínum áhyggjum og lætur hann einn hera umhyggju fyrir þér. Yinir í nauðum. Á ofanverðri 17. öld, einkum frá 1G88 lil aldarloka, dundu fádæma harðindi yfir landið, svo að nærri stappaði fullri örvæntingu hjá lands- lýðnum, þó að yfir tæki 1690; þá lágu hafþök af ís kringum landið öllum meginn, nema fram undan Snæfells-jökli. Tók þá fyrir allar aflavonir á því vori og höfðu menn þó einmitt þá búist við góðum alla- föngum, því þá höfðu gengið 9 fiskileysisár í röð. Hvergi sást út fyri’r isinn af liæslu fjöllum, nema fyrir Suðurlandi, og var það eigi nema lil sárrar hugraunar, því dönsku kaupskipin voru þar á sveimi úli fyrir og gátu hvorki komist að landi né landsmenn kom- ist út í þau fyrir isnum. Næstu ár hertu þó á þessum nauðum. Árið 1699 var svo mikið bjargarleysi til lands og sjóar, að undanfarin ár þóttu hagsældarár hjá því. Páll Jónssou Vídalín lögmaður (1668—1727) ritaði þá merkilegt ril um viðreisn íslands, sem enn er til, og tileinkaði það »guði, konungin- um og föðurlandinu«, og ber ritið nafn af því (Deo, Regi, Patriæ — guði, konunginum, föðurlandinu). Þar lýsir liann fyrst eymdarástandi þjóðarinnar, en á eftir koma uppá- stungur til umbóta og úrræða. Ritið hefur aldrei verið prentað í heilu lagi. En til er ágrip af því á dönsku, sem Jón Eiriksson, föður- landsvinurinn mikli (f 1787), hefir gert og er það prentað í ritum »Lærdómslistalélagsins«, sem Jón var lífið og sálin í, meðan hann lifði. Höfundurinn segist varla geta lýst þeirri eymd, sem þá sé yfir að líla. Allar hjargir séu bannaðar, hæði á sjó og landi, og nærri liggi fullri örvæntingu, þegar vonlaust sé um það, að nokkurt kaupskip komist að landi. Einn sé að kveina yfir því, að kornvörur séu á þrotum,' annar um það, að léreft vanli eða járn, eða timbur, eða veiðarfæri, skipavið og árar, lil næstu vertíðar, all eftir því hvað þörfin minnir þá á. Jón Eiríksson lýsir greinilega

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.