Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.09.1908, Side 8

Bjarmi - 01.09.1908, Side 8
144 B J A R M 1 sem vér eigum eun eftir yfir að fara áður eu vér komum til »Síonsfjalls«. En raust hirðisins hljómaði til vor með þessum orðum: »óttastu ekki, eg mun hjálpa þér!« Nú komum vér saman í þriðja sinni og' stóðum enn einu sinni l'rammi fyrir einu af »fjðllum guðs« — fjallinu, þar sem dýrð hans bjó og þar sem hann kaus sér lýð lil eignar. Ivína-trúboðinn sænski, Folke, á mestan og bezlan þáttinn í því, að þessir dagar veittu oss svo mikla blessun. Það voru alvarlegu áminn- ingarorðin hans: »Helgið yður«, scm voru hugleiðingarefni vort þessa daga. Og það má með sanni segja, að »ský« drottins hvíldi yfir sam- komusal vorum og guð talaði til hjartna vorra. Hann benti oss út yfir hina andlegu eymd á jörðunni, út yfir ðll hin mörgu verkefnin, sem bíða eftír fyrirbæn og kærleika trúaðra kvenna — benti oss á van- mátt vorn, sem ekki erum annað en fáeinar breyzkar, ístöðulitlar kon- ur, og erum ekkert af sjálfum oss, En svo benti hann oss líka á kraft bænarinnai-, hún getur látið »heim- inn hrærast«, og á leiðtoga vorn, sem »alt vald er gefið á himni og jörðu« — hann, sem ekki spyr að þvi, hvort við séum margar eða fá- ar, heldur segir: »Ef þér gæluð trúað, þá mynduð þér sjá guðs dýrð«. Já, í krafti lians, og í nafni hans, þorum vér að halda áfram með fullri djörfung — því hann er vor sigur«. ) y/j -’-r (Úr ársskýrslu liins danska kristniboösfélags 11)07). Hér í Rvík er ein grein af þessu lcristniboðsfélagi, stofnuð 1905, og virðist eiga góða framtið tyrir hönd- um, þó smá sé. Guð getur gert mikið úr litlu, ef unnið er í hans nafni. Síra Friðrik Friðriksson, framkvæmdar- stjóri Kristilegs félags ungra manna í llvík, er nú kominn lioim aftur úr utanför siuni, efiir nær árlangt starf meðal ungra manna i Danmörku og góðan árangur. Kyrkjujiing Yestur-íslendinga var lialdið i júnímánuði í Solkirk, og var aðkvæðamikið að vanda. Síra Jón Bjarnasonlét af forseta- störfum, og var síraBjörn B. Jónsson kosiun í lians stað, og lýsti hann því skörulega yfir, að hann vildi fylgja sömu stefnu og fyrir- rennari haus. Fyrirlestnr síra Jóns Bjarna- sonar: „Gildi trúarjátninganna“, sem hann hélt á þinginu, er ágætur, og á sannarlega erindi til vor hér hcima, eins og nú stamla sakir. Bjarmi biður alla góða menn og konur að muna eftir atkvæðagreiðslunni um „aðflutn- ingsbannið“ 10. sept. næstk. Sú ónákvæmni hefir slæðst inn i æfisögu Gunnars próf. Gunnarssonar í síð. bl., að þoss var ckki getið, að hann var siðast orðinn prestur að Lundarbrekku-prestakalli í Barð- ardal, írá því um vorið 1873 og til þess er hann andaðist. SAMEININGIN, mánaðarril liins ev.lút. kirkjuf. ísl. í Vesturheimi. Hit- stjóri: síra Jón Bjarnason í Winnepeg. 24 arkir árg. Verð hér á landi 2 kr. Um- hoðsm. á ísl. S. Á. Gíslason, Rvík. ÍJlgefandi: Hlutafélag í Rcykjavík. Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavílc. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Lækjargötu 6. Prentsmiðjau Gutenberg.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.