Bjarmi - 15.10.1910, Page 8
160
BJARMI
dvöl þar, og nú cr orðin framkvænidar-
stjóri »Kristilegs í'élags ungra kvenna« i
Rvík, liefir tekið saman efnið, en sra Por-
steinn Briem í Hafnarfirði annasl útsend-
ingu þess hér á landi. Gefendurnir ætl-
ast til, að öll börn á skóla-aldri hér á
landi fái kverið ókeypis, og ættu því prest-
arnir að gjöra viðvart, ef nokkur þeirra
fær of fá inntök handa börnunum i presta-
kallinu, og fari svo ólíklega, að nokkur
prestur vanræki að útbýta ritinu, ættu
foreldrarnir að kvarta.
Snnniidag’A-skólnfninlur »fyrir Norður-
lönd« var haldinn í Kaupm.höfn snemma
í ágúst. Voru þar um 700 Danir, 6 Finnar,
113 Norðmenn og 83 Sviar, — en cnginn
frá Islandi svo kunnugt sé. Frú Wilbur
Crafts, sem heimsótti Reykjavík i sumar
og talaði máli sunnudaga-skólanna hér;
kom á fundinn og kvartaði sárt yfir því,
að enginn sunnudagaskóli skyldi vera á
íslandi, og mun liafa skorað á fundar-
menn, að skifta sér eitthvað af þvi.
Eins og kunnugt er hafa verið haldnar
barnaguðsþjónustur í Rvik meiri liluta
árs að undanförnu og vcrið allvel sóttar,
en góður sunnudagaskóli með því fyrir-
komulagi, sem tíðast er erlendis, er þó
miklu áhrifameiri. — Vænlanlega verður
barnaguðsþjónustunum í Rvík brcytt í
sunnudagaskóla i vctur, og seinna koma
aðrir kaupstaðir. En hver skyldi byrja,
þar sem flestir segja: »Eg get það ekki,
það verða aðrir að gjöra«, undir eins og
talað er um eitthvcrt safnaðarstarf?
Sjálfsniorð. Svo er mælt, að árlega
ráði sér bana yfir 60 þúsund [manna í
Norðurálfunni, og rúmur hclmingur (56“/o)
eru drykkjumenn. Pjóðverjar eru lieitns-
kunnir bjórbelgir, enda eru um 14 þús.
sjálfsmorð þar á ári hverju.
Henry Grnttnn Gniness, heimsfrægur
kristindómsfrömuður enskur, er nýdáinn
75 ára gamall. Um og eftir 1860 ferðaðist
liann land úr landi og hélt áhrifamiklar
vakningarræður. Árið 1872 settist hann
að í Lundúnum og stofnsetti þar 2 stóra
kristniboðsskóla fyrir karlmenn og kven-
menn, enda þótt hann hefði ekki önnur
efni, en gjafir vina sinna. »Trúaður og
duglegur« voru einu inntökuskilyrðin á
skólunum, úr hvaða evangeliskum ílokki,
sem nemandinn var, og þótli það meir
en lítil nVhinda framan af, að kristni-
boðsskóli skjddi ckki styðja einhvern á-
kveðinn trúarílokk. En þeir döfn-
uðu samt óvenju vel, urðu seinna 6 —
einn fyrir hjúkrunarkonur og 2 fyrir
læknatrúboða. Hátt á 2. þúsund starfs-
menn eru þaðan komnir, og margir þeirra
framúrskarandi fórnfúsir og duglegir. —
Skólarnir studdu heimatrúboðið svo ræki-
lega, að kennarar og nemendur prédik-
uðu á 50 slöðum í Lundúnum. En jafn-
framt slofnsclli Guiness sjálfur krislniboð
í Kongó rikinu (»Kongo Balalo kristni-
boðið») í Suður-Ameríku, og síðast (1899)
í Austur-Indlandi. Alt starfið lieitir einu
uafni »The Regions Beyond, Missionary
Union«, og útgjöldin eru árlega nálægt
400 þús. kr., alt gjafir trúaðra manna.
—- Sonur G. og F. B. Mcyer prédikarinn
frægi hafa verið aðal-aðstoðarmenn lians
á síðari árum, en lcngst og bezl studdi
konan lians hann, Fanny Emma Fitzger-
ald (j- 1898), hún ferðaðist með honum,
prédikaði með honum, skrifaði mcð hon-
um ýmsar bækur, stjórnaði sjálf tímariti
starfsins um 20 ára skeið, og ól þó upp
8 börn á fyrirmyndar-heimili.—Pau voru
bæði samvalin mikilmenni, sem kristni-
boðsvinir, munu seint gleyma.
SUÐURLAND. Héraðsblað fyrir Suðurlandsundirlendið. Kemur úl á
Eijraibakka einu sinni i viku, (52 blöð á ári). Auk þess sem blaðið ræðir héraðsmál
þessara héraða, þá flytur það útlendar og innlendar fréttir og niun taka til umræðu
ýms stórmál þjóðarinnar, en vcrður þó laust við pólitískar flokkadeilur, og mun
það mörgum þykja góður kostur á þessum styrjaldar tímum.
Allir skilvísir kaupendur fá sérprentað fylgirit (skáldsögu norska, sem gerist á 16. öld,
5—6 arkir að stærð.
Pantið Suðurl&Mcl.
Utanáskríft:
Afgreiðsla Suðurlands, Eyrarb., Arnessýsla.
.Utgefandi: Hlutafélag í Reykjavik.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Iíárastíg 2, Reykjavík.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigúrjón Jónsson, Lækjargötu 6.
Prenlsmiðjan Gutcnberg.