Bjarmi - 01.05.1915, Side 8
72
B JA R M I
Úr ýmsum áttum,
Heima.
f Síra Böðvar Eyjólfsson í Árnesi
andaðisl úr lungnabólgu 14. f. m. Hann
var fæddur 20. sept. 1871 á Melgras-
eyri, þar sem foreldrar hans bjuggu
pá, þau síra Eyjólfur Jónsson og lilin
Björnsdóttir prests á Stokkscyri Jónsson-
ar. Sr. Böðvar útskrifaðist úr Reykjavik-
urskóla árið 1901 og þrem árum síðar úr
prestaskólanum. Sama ár,varð hann að-
stoðarprcstur föður síns í Árnesi, og var
veitt það prestakall 1909 eftir dauða síra
Eyjólfs.
Sira Böðvar Eyjólfsson var laskiftinn,
cn vinsæll hjá þeim sem bezt þektu hann.
Asmundur Guðmundsson guðfræð-
iskandidat er ráðinn aðsloðarprestur hjá
síra Sigurði Gunnarssyni i Stykkishólmi.
Erlendis.
Fyr og nú. I Boxarauppreisninni í Kína
um aldamótin voru kristnir menn ofsóttir
og drepnir í hópatali í fylkinu Shansi; en
nú hefir varakonungurinn eða fylkisstjórinn
í Shansi boðið kristniboðuin kongregatióna-
lista að taka að sér yfirstjórn allra skóla í
fylkinu. Stjórnin byggir skólana, kaupir
kensluáhöld og greiðir auk þess ákveðna
upphæð á ári hverju til að launa kennur-
unum. Kristniboðarnir íá fult leyfi til
biblíufræðslu og kristindómskenslu. — —
Síra Donald Fraser, sem starfað hefir 16 ár
að kristniboðinu í Nýassalandi, sem kent
er við Livingstone, segir svo um þjóðflokk
þann, sem Ngóri er nefndur: »Fyrir 25 ár-
um voru ránferðir aðalgróðavegur fólksins,
nú hefir ekki árum saman heyrst um nokkr-
ar gripdeildir. Fyrir 20 árum hafði enginn
Ngórimaður séð nokkra bók, nú lesa þeir
þúsundum saman og njóta 250 skóla. Fyrir
20 árum voru þeir allir heiðingjar, nú eru
um 20 þúsund, sem játa kristna trú.
Biblian er hædd og vefengd, og stund-
um gleyma »vinir« hennarhenni uppi á hyllu
eða niðri í kistu árum saman. En vlða er
hún þó metin að verðleikum. Biblíuskólum
fer fjölgandi í ýmsum löndum, en þar miðar
öll kenslan að því cinu að kynna náms-
fólkinu biblíuna og kenningar hennar. Eng-
inn danskur skóli hefir verið jafnvel sóttur
og biblluskólinn, sem síra Skovgaard-Peter-
sen veitir forstöðu. Nú eru Norðmenn og
Svíar farnir að ræða um að stofna slíka
skóla hjá sér. Biblíuskóli Moodys í Chicago
er heimsfrægur, en nú kvað biblíuskólinn í
Los Angelos, sem ekki er þó nema 9 ára
gamall, vera orðinn enn fjölmennari. Torrey
vakningaprédikari er nýorðinn formaður
hans.
I almennum rfkisskólum í Bandaríkjun-
um eru ekki kend kristin fræði, af því að
rlki og kyrkja eru aðskilin, en biblfan er
þó óvíða meira metin en þar. Fylkið Pen-
sylvanía hefir t.. d. ákvæði um í spánnýjum
skólalögum, að daglega skuli lesinn stuttur
kafli úr ritningunni í öllum opinberum
skólum. Skorist nokkur kennari undan þeim
lestri, varðar það stöðumissi.
Englendingar hafa til skamms tfma látið
það eftir Múhameðstrúarmönnum í Egypta-
landi, að kóraninn væri lesinn í allmörgum
alþýðuskólum þar 1 landi. En fyrir skömmu
ákváðu þeir að láta lesa ritninguna í öllum
opinberum skólum Egyptalands; búast
kristniboðsvinir við góðum árangri af þeirri
ráðstöfun.
Frá Búlgaríu berast íregnir um trúar-
vakningu, og er það nýung mikil á þeim
slóðum. Evangeliskur prestur ( Sofíu, dr.
Elmer Count, segir svo frá: Vikum saman
hefir hér verið samkoma á hverju kvöldi,
og hvert einasta kvöld biðja einhverjir um
fyiirbænir. Samkomurnar eru harla alvar-
legar og augljóst er, að Guðs andi starfar.
— Það er leikmaður, sem vakið hefir hreyf-
inguna og stjórnar samkomunum. Hann
heitir Abraham Silverstein, og vinnur hann
á skrifstofu sinni þangað til kl. 6 á kvöldin,
þá fer hann til matsöluhúss, fær sér kaffi og
hugsar um ræðuna til kvöldsins. Svo fer
hann til samkomuhússins, er þar heila stund
til bænagerðar einsamall, og er þá korninn
tfmi til að byrja samkomuna. Ræðan og
söngurinn er látlaus, en orðin hans eru
samt svo áhrifamikil, að stöðugt bætast
nýir við, er játa syndir sínar og hverfa slð-
an alveg frá þeim, er sýnir að afturhvarf
þeirra er ekki augnabliksgeðshræring.
IX. úrt*. á aö standa í titillínu Llaösins þetla
ár, cn ekki VIII. árg. eins oí? staöiö lieíir þar fyrir
vangá síöan á nýári. Petta eru kaupendur bcönir
að athuga og afsaka.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Grettisgötu 12, Reykjavík.
Afgreiðslan (Laugaveg 19) opin kl. 8. árd. lil kl. 8. síðd. Sími 504.
Prentsmiðjan Gutenberg.