Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.11.1916, Qupperneq 4

Bjarmi - 15.11.1916, Qupperneq 4
164 B JARMI sína í höndum og biblíuna opna fyr- ir framan sig. Það sem dró athygli mína að þessari konu var það, að hún var ætið á ferli, hvað seinl sem jeg kom heim, er jeg hafði verið úli að vitja sjúklinga minna og það jafn- vel fram á nótt, og er hún heyrði gengið um, kom hún óðara, opnaði gluggann lítið eitt, til að sjá hver væri á ferð. Mig var farið að langa lil að þelckja líf og kringumstæður þessarar konu, og það leið ekki á löngu að jeg fengi það. Snemma dags fjekk jeg eitt sinn boð að koma til hennar, hún liafði orðið snögglega veik. þegar jeg kom inn, sá jeg að dauðinn var fyrir d)'r- um. Jeg settist hjá henni og spurði livort liún hefði miklar þjáningar. »Já, hjerna í brjóstinu« sagði hún, »hjartað getur víst ekki meira«. »Er- uð þjer glöð að eiga að fara hjeðan«? spurði jeg. »Já, sjálfrar minnar vegna er jeg glöð að fá að koma heim og vera ætíð hjá Drotni, — en aumingja maðurinn minn, hver á nú að hlynna að honum, og hver á að vaka eftir lionum á kvöldin eins og jeg hef uú gert i 30 ár? »En því hafið þjer þurfl að vera að vaka eftir honum«? »Jú, það stendur nefnilega svo á, að hann kemur vanalega drukkinn heim, og þess vegna hefi jeg orðið að vera á verði, svo hann hvorki dylti í tröppunum eða vekti fólkið í hús- inu með hávaða, jeg hefði ekki þol- að háð nje spott sambýlisfólksins«. í þessu kom gamall inaður inn úr dyrunum. Þó liann væri ódrukkinn, bar andlit lians þess þó Ijósan vott, að hann var drykkjumaður. »Kemur þú nú að vitja mín«? sagði hún i blíðum róm og rjetti út hend- ina móti honum. »Ó, hvað verður nú þungt að kveðja þig, besti vinur minn«. Þessi síðustu orð »besti vin- ur minn« sýndust alveg gagntaka gamla manninn, og opna á honum augun fyrir því, hvað mikið liann hefði brotið á móti henni, hann grjet hástöfum og sagði: »t*ú hefur þolað mikið ilt af mjer Maria mín, sem þrált fyrir allar syndir mínar og ves- almensku, þó hefi jeg elskað þig svo heitt«. »Kæri Jón minn, hugsaðu ekki um það«, hvislaði hún — »Lofaðu mjer einu, aðeins einu. Nú, á minni sið- ustu stundu skulum við mæla okkur mót á himnum. Yiltu hitta mig þar, besti vinur minn?« spurði hún með skjálfandi rödd. »Viltu vera reiðubú- inn að mæta mjer í liinum dýrðlega stað uppi hjá Guði? Viltu það?« Hann kraup niður við rúmið, og þau mæltu sjer mót með tárum, og hinn gamli syndari gerði Guði heit sín, að kappkosta að ná liinu mikla takmarki. Eftir fáein augnablik fór liún brosandi inn til liins eilífa frið- ar hjá lionum sem þerrar öll tár og þar sem engin sorg er til«. Á greftrunardeginum stóð gamli maðurinn við gröf konu sinnar með sundurkramið hjarla, fullur af löng- un eftir að mæta henni heima á himn- um. Hann hafði oft reynt með eigin kröflum að losna undan valdi síns versta óvinar, en ætíð árangurslaust. Nú lagði liann sig eins og vesalings vanmáttugur syndari í faðm hans, sem kom til að leita að hinu tapaða og frelsa það, leysa hina bundnu, gefa frelsi föngunum, upphefja synd- ara og gefa þeim kraft til að ganga í endurnýungu lífdaganna. Og þannig varð gleði á himnum yfir þessuin gamla syndara, sem fjekk náð til þess að bæta ráð sitt. (Lúk. 15, 10.). a. Th. fsl.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.