Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.01.1918, Page 4

Bjarmi - 15.01.1918, Page 4
12 B J ARMI orðið þeim — hvað skal þá segja? Er oss svo sem kristnum mönnum og þjónum Guðs orðs ekki skylt að gleðjast yfir því, ef menn, er áður voru fjarlægir, taka að færast nær Guðs ríki fyrir áhrif úr þessari átt, taka að þokast inn í trúarinnar heim, þar sem vjer vilum alla von lil þess, að manns sonurinn, Jesús Iíristur, verði fyr eða síðar á vegi þeirra i óviðjafnanlegum yndisleik sínum og geti orðið þeim vegurinn til Guðs — til föðursins?« Niðurlagsorð að brjeíinu eru þessi: »Jeg kveð yður þá að þessu sinni með þeirri bæn til Guðs, að hann geíi oss öllum, yður og mjer, náð til þess að hjálpa hvor öðrum til þess að efla og útbreiða hans eilífa ríki á ættjörð vorri hans nafni til dýrðar, en þjóð vorri til blessunar, jafnframt því sem vjer látum það vera vort helgasta áhugamál sjálfir dagsdaglega »að vaxa í öllu upp til hans, sem er höíuðið — Kristur« (Ef. 4, 15) — og lýk svo máli mínu, óskandi yður öllum á þessum miklu alvörutímum »fagnaðar og friðar í trúnni, svo að þjer sjeuð auðugir að voninni í krafti heilags anda« (Róm. 15,- 13)«. Vinakveðju.r. Bjarmi óskar öllum kaupendum sinum og lesendum gæfu og blessun- ar frá Drottni á þessu nýbyrjaða ári. Þakkar blaðið fjölmörgum ásluifend- nm sínum skilvísi og lilýleg ummæli á lickiu ári, og óskar alla nýju áskrif- endurnar velkomna í hópinn. Með Guðs hjálp og góðra manna, vonar blaðið að vinsældir þess fari vaxandi og þeiin fjölgandi sem ólil- kvaddir reyna að útbreiða það. Mörg þakkar- og vinátlubrjef liafa blaðinu borist á liðnu ári, bæði frá prestum og leikmönnum; 18 prestar hafa sent því dýrtíðaruppbót og marg- ir fleiri skrifað, »að Bjarmi yrði um fram alt að lialda áfram«. Og þótt fáir þeirra hafi sent nöfn nýrra kaup- enda, er sennilegt að margir prestar liafi vakið eftirtekt á blaðinu í söfn- uðum sínum, og þaðan stafi kaup- endafjölgunin meðal annars. Frá leikmanna hálfu er stuðning- urinn engu minni. Að visu kvarta áhugamennirnir flestir yfir kæruleysi almennings um trúmál, og fullyrða að ekkert mark sje takandi á þvi, þótt menn fjölmenni til að lilusta á ferðaprjedikara, sem hefir einhverjar nýungar á boðstólum, það sje af ein- tómri forvitni og nýungagirni. Þær systur sjeu t. d. aðal orsök þess hvað fjöldi fólks hafi verið fúst að lieyra og lesa um andalrú og guðspeki síð- ustu árin. Áhrifin sjeu oftast engin, og stundum verri en engin, því að margir þykjast þar fá enn meiri á- stæður en áður til kæruleysisfullyrð- inganna: »Það er ekki til neins að vera að gruíla út í þessi trúmál, tóm- ar andstæðar kreddur og fjarstæður hjá þeim, sem mest um þau fullyrða og ábyrgðarmiust að skifta sjer ekk- ert af öllu saman«. — — En þvi meira ánægjuefni er að iðulega koma brjef frá nýjum vinum blaðsins, fólki sem livorki deyfðin nje »nýju raddirnar« hafa liertekið. Með jólapóstinum skrifar t. d. kona á Vesturlandi um leið og liún sendir 3 nýja áskrifendur, þóll liún sje ný- farin að kaupa blaðið: »Jeg óska Bjarma af öllu lijarta gleðilegs nýárs og góðrar framtíðar. — Já, Guð gefi að hann verði sem allra ílestum til trúarstyrkingar, þess gjörist fullkom- in þörf nú, því að margir falsspá- menn koma fram og afvegaleiðir marga«. /

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.