Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.01.1918, Page 5

Bjarmi - 15.01.1918, Page 5
B JARMI 13 Verslunarmaður skrifar 27« f- á.: »Mjer fellur blaðið vel og er yður þakklátur fyrir útgáfu þess, og mundi mjer sárt þykja ef blaðið yrði að hætta göngu sinni, þótt jeg því miður geti lítið stutt tilveru þess«. Ungur bóndi sem fjekk blaðið til sýnis, skrifar 7/12 f. á.: »Jeg hefi ekkert farið síðan jeg fjekk Bjarma og því ekki liaft gott tækifæri til að tala við menn, (sendi því samt strax 2 nýja áskrifendur.) Annars eru menn fremur áhugalitlir fyrir því að lesa bækur og blöð kristilegs efnis. Jeg fyrir milt leyti hefi haft mikla ánægju af blaðinu, því að jeg hygg að sá andi, sem það stefnir í, ætti að kom- ast inn að bjarta íslensku þjóðarinn- ar. JÞá mun hún verða hraust, reglu- söm og sjálfstæð þjóð. — Jeg minnst ætíð samfunda okkar með ljúfum hugsunum, það er fagurt að hitta menn sém hafa áhuga fyrir útbreiðslu kristindómsins. Jeg vilda að allir íslendingar liefðu áhuga fyrir því máli, þá mundi ísland eiga bjarta framtið. »Þá munu bætast harmasár þess horfna, hugsjóriir rætast, þá mun aflur morgna«. Jeg er ekki í vafa um það, að blað yðar er og verður til blessunar þeim er les það«. Þar sem slíkum kveðjum fer fjölg- andi, ber hvorki að óttast kæruleysi nje dýrLíð. En til þess ætlumst vjer að liver ein- asti kaupandi sem telur blaði gagnlegt kirkju og kristindómi vor á meðal reyni að útvega því nýja áskrifendur og les- endur, ekki í gustukaskyni við blaðið, heldur til þess að gefa því fleiri tæki- færi til þess að vinna gegn kæruleysinu og trúarskortinum meðal almennings. Ef trúmenn reynast trúir, þá eru framtíðarhorfurnar jafn bjartar og fyrirheili Drottins. liilstjóri Bjarma. 'r ' .............= ^ Raddir almennings. ----------—........—4 Nýárskveðja. Jeg var að liugsa um íslensku kirkjuna núna með morgunsári nýja ársins og leita fyrir mjer um fagrar framtíðarvonir lienni til handa á þessu nýbyrjaða ári. Jeg tók þá hirðisbrjef liins nýja biskups vors og fór að leita þar að einhverju, sem jeg gæti bygt á mínar góðu vonir. Og síst er fyrir það að synja, að þar fann jeg ýmsar bendingar, nýjar og gaml- ar, sem að góðu haldi gætu komið, ef Guð væri liafður með í verkinu, því að án hans megnar enginn neitt að gjöra kristni Guðs til eflingar. Mannleg ráð eru að öðrum kosti ekki annað en nýjar bæt- ur á gamalt fat. E11 þegar biskupinn' fór að lýsa'afstöðu sinni til gaðspekinnar og andatrúarinnar, þá þótti mjer hann livorki heill nje hálf- ur, og þá skildu leiðir með okkur. Sú liugsun stríðir sem sje á liann, að svo kunni, ef til vil), að fara, að andatrúin — og því þá ekki guðspekin líka? — leiði einhvern vantrúarmanninn eða veraldar- barnið til sáluhjálplegrar trúar eða sannr- ar kristni. En auðsjeð er, að biskupinn veit eigi sjálfur nein dæmi til þess, að þessum nýju leiguliðum kirkjunnar hati tekist að gera nokkurn mann sannkrist- ins. Hann spyr að eins hvað eigi ?ð segja, ef það kæmi fyrir. Biskupinn veit, að fyrir utan kirkjuna standa margir, sem henni hefir enn eigi tekist að ná til, og er því ekki fjarlægur því að vona, að andatrúin með öllum sínum lijegómlegu tilraunum og villu- kenningum kunni að geta bjargað þeim. En jeg spyr: Ef það er ekki vonlaust, að andatrúarfarganið geti leitt menn til sálu- hjálplegs afturhvarfs án Krisls, hversu miklu fremur ætti þá ekki kirkjan að geta það mcð Kristi, með því að rækja í nafni Krists þá sjálfsögðu skyldu að leita uppi hina týndu og frelsa þá? En er kirkjan trú þeirri skyldu sinni? Jeg efast um það. Hana vantar kraftinn: kœrlcika Krisls. Ilvað mælti segja um þá móður, sem ætti fjölda barna, sum liraust en sum heilsuveit, og fengi góða lækna handa I hinum hraustu, en legði vanheilu börnin

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.