Bjarmi - 01.04.1919, Side 8
56
BJARMI
Frœkorn, alla árgangana t bandi
og Ljóðmœli Matth. Jochamssonar,
5 bindi, kaupir ritstjóri Bjarma.
heillarík áhrif á hugi alls þorra lesenda
þess. Meö heitri ósk um vellíðan blaðsins
og öruggt starf þess í sömu stefnu áfram
og bestu þökk til útgefandans fyrir blaðið
Bjarma.«
Hreppstjóri á Vesturlandi skrifar ritstj.
Bjarma 20. jan.:
»Leiðinlegt þætti mjer ef þjer hættuð
að gefa út Bjarma og færuð af landi
brott; er hræddur um að blaðið tæki þá
einhverri breytingu til hins lakara, eða
jafnvel hætti að koma út áður en langt
um liði. Ef við, sem unnum þeirri trú-
málastefnu sem þjer berjist fj'rir, erum
svo óhepnir að missa yður af landi burt,
kysi jeg heldur að þjer gæfuð blaðið út
í Ameríku. Skaði mikill að þjer verðið
ekki prestur lijer á landi. Mjer finst, að
á þessum ljettúðar og trúleysis límum
megi ísland ekki missa neinn, er trúir
og boðar Guðs orð cins og það er kent
í biblíunni, en verði Guðs vilji, og Guð
styrki yður í starfi yðar, í hvaða landi
sem þjer starfið.«
Bóndí í Dalasýslu skrifar:
«... Ekki finst mjer að við, sem kristn-
ir erum, megum missa ykkur hjónin til
Ameríku, því að jeg treysti engum eins
til að hafa ritstjórn Bjarma, hvað sem
öðru líður. Svo flnst mjer að þeir þyrftu
heldur að fjölga en fækka, þeir sann-
kristnu á landi hjer.
Pað er mín von til Drottins, að hann
fari að miskunna sig yfir íslands lýð, svo
að hann ráfi ekki í þessu villu myrkri
lengi úr þessu. Bví mjer finst þaö hafa
verið svo í mannkynssögunni á liönum
öldum, að þegar vantrúin hefir verið
komin á hæstu tröppuna, þá helir Guð
sent einhvern eða einhverja til að rjetta
við aftur, og þá hefir alt farið vel.«
g ..... . ■ =========»
Hvaðanæfa.
— ■ ..................—.....—^
Heima.
Ljós og sannleikur lieitir nýtt mán-
aðarblað, kristilegs efnis, verð 2 kr., sem
hóf göngu sína i f. m.
Utgefandinn er Guðmundur Páll Jóns-
son prestur, nýkominn til Reykjavikur frá
New-York.
Hann er ættaður úr Dýrafirði, en dvaldi
um hríð bæði hjer í bæ og á Siglulirði,
aðallega við bakarastörf. Fyrir nokkrum
árum fór hann til New-York og gekk þar
í evangeliskan trúarflokk, sem kennir sig
sjerstaklega við hvitasunnuna, og tók
prestsvígslú hjá þeim flokki í sumar
sem leið.
»Hvítasunnuílokkurinn« leggur. áherslu
á aiturhvarf og lífernisbetrun, eins og
allir sannkristnir menn, en talar auk þess
meira um skírn heilags anda, tungulal og
lækningar með bænaáhrifum, en títt er
um marga aðra kristna trúarflokka. Auk
þess Iiafnar flokkur þessi barnaskírn og
mun vilja að áharigendur sínir láti skírast
að nýju, ef þeir hafa verið skírðir áður
á ómálga aldri. Baptistar, aðventistar og
ýmsir fleiri, t. d. Norðurljósið á Akureyri
hafa sömu skoðun í þeim efnum, en
Bjarmi telur það blátt áfram vantraust á
Drottni, að ímynda sjer að hann geti
ekki blessað sál lítils barns í skírninni
alveg eins og fullorðna mannsins, sem
skirn tekur, sje hann óskírður áður, en
vitaskuld er það ekki visvitandi vantraust
hjá alvörugefnu, trúuðu fólki.
Stundum hafa vinir og andstæðingar
barnasldrnar fordæmt hvorir aðra út af
þessum skoöana mismun; þann ilokk vill
Bjarmi alls ekki fylla enda hefir reynslan
margoft sýnt, að Drottinn notar menn úr
báðum flokkum til mikilla starfa í ríki
sínu hjer á jörðu.
Þess vegna getum vjer óskað þessum
starfsmanni og blaði hans blessunar
Drottins við vakningar og helgunarstarf,
enda þótt vjer teljum endurskírn fremur
afturför en framför.
-A.Ö gelnu tiletui. Af því að ýmsir kaupendur Bjarma hjer á landi eru efna-
litlir, er enginn krafinn um meira en 2 kr. fyrir hvern árgang hans, en þar eð pappír
hefir sexfaldast og prentun nærri þrefaldast í verði, hækka ýmsir ársgjöld sín ótilkvaddir.
Prontsmlðjan Gutenberg.