Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1919, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.06.1919, Blaðsíða 2
82 B JARMI viljum hjálpa þeim lil trúarinnar á eilíft líf með vísindalegri vissu um tilverun^ eftir dauðann, vjer viljum með vísindalegum rannsóknum draga upp fortjaldið milli hins kunna og ókunna heims, og gjöra hina andlegu dýrgripi trúarinnar að dýrgripum vísindalegrar vissu, svo að segja megi, að mennirnir liíi ekki lengur í trú heldur skoðun. Rannsóknir hinna dularfullu fyrirbrigða eiga að lyfta mannkyninu upp á sigurhæðir skoðunarinnar á öllum heimum og geimum tilverunnar, sem hingað til hafa verið sem lokuð bók fyrir því. Leyndardómar kristnu trúarinnar hverfa óðum fyrir þessum rannsókn- um og verða skynseminni hugðnæmt skoðunarefni. Upprisa Jesú Krists verður t. d. mannlegri skynsemi ólíkl minna ásteytingarefni, þegar það er vísindalega sannað, að hún er sama cðlis og opinberanir framliðinna manna á samkomum andatrúar- manna, og Jesús Kristur og postul- arnir verða skynseminni ólíkt hugð- næmari persónur, þegar þeir í ljósi andatrúarinnar eru seltir á bekk með öðrum andalrúarmiðlum, heldur en þeir liafa nokkurn tíma verið, skoð- aðir í ljósi kristnu trúarinnar. En fyrirbrigði þessu lil sönnunar eru sífelt að gjörasl meðal andatrúar- manna og hið nýja fagnaðarerindi þar með vísindalega sannað. En þá er spurningin, hvaðan stafa þessi fyrirbrigði? Stafa þau frá öðr- um lieimi? Setjuin að svo sje. En stafa þau þá frá anda sannleikans til þess að veita mönnunum æðri vitneskju um hinar dýpstu gátur lilverunnar, en þeir hingað lil hafa ált kost á í guðlegri opinberun í Jesú Kristi? Eða stafa þau frá anda lyginnar lil þess að villa og blekkja mennina og leiða þá út úr ljósi Krists fagnaðarerindis inn í myrkur vantrúar og hjátrúar ærsla? Eða stafa þau alls ekki frá anda- heiminum heldur frá duldum öflum og eiginleikum í sálarlífi mannanna sjálfra? Þessum spurningum er enn ekki svarað með neinni vísindalegri vissu. í þessum fyrirbrigðum hregður þeim öndum sjaldan fyrir sem nokkuð verulegt hafa að segja um hjálpræði Jesú Krists mönnunum lil frelsis. Þó þykjast sumir þar beint sendir af Guði til að fullkomna fagnaðarerindi Jesú Krists. En þar ægir saman lijá þeim hinum afskaplegasta misskiln- ingi og rangfærslum á fagnaðarerind- inu, sem benda á að þeir annað- hvort botni ekki nokkra vitund í Guðs opinberaða orði í ritningunni eða reki vísvilandi erindi lyginnar höfundar til að blekkja og afvega- leiða lærisveina sina. Regar það kem- ur fyrir, að þessir aumingja menn ekki geta samsint fjarstæðunum þá er viðkvæðið: »Brúkaðu skynsemina«. Annað fá þeir ekki. Eins og að líkindum lætur, á þelta endurbætla andatrúarfagnaðarerindi sárlitið skyll við fagnaðarerindi Jesú Krisls.1) Margir hinna hálærðuslu manna, er fást við rannsóknir þessara fyrirbrigða fara mjög varlega í fullyrðingum sín- um um visindalegt sönnunargildi þeirra. Þeir draga engar dulur á, að þessum öndum sje injög varlega trú- andi, sumir þeirra sjeu vondir lygi- andar, sem fari með ósannindi og blekkingar, sumir sjeu að vísu betri, en geti þó hrugðið þvi fyrir sig að fara i kringum tilraunamennina og 1) Iíkki munu íslensku andatrúar- mennirnir, enn sem komið er, prjedika opinlierlega pella tagfraðarerindi úl i æsar, en samverkamenn þeirra erlendis hafa ekki farið dult ineð þaö.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.