Bjarmi - 15.04.1920, Síða 1
BJARMI
KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XIV. árg.
Reykjavík, 15. apríl I92U.
8—9. tbl.
Sá, sem hefir soninn licfiv lífið, sá, sem cklci hefiir Guðsson, hefir ekki lífið. I. Jóh.5, 12.
Trúmáladeilan norska.
----- (Frli.).
Ókiinnugir kunna að furða sig á,
að fjöldi trúaðra manna í Noregi
skyldi hneykslast á því, að Tandberg
biskup og nokkrir prestar eldri stefn-
unnar skyldu gera samvinnubanda-
lag við nokkra leiðtoga njTguðfræð-
innar.
En hugsun þeirra var þessi: Slæmt
er það að nýguðfræði skuli kend við
háskólann og berast þaðan með ung-
um guðfræðingum út í söfnuði og
skóla, en meðan trúaðir prestar og
prjedikarar boða hiklaust vorn gamla
og góða kristindóm og safnaðarskól-
inn heldur áfram, veit almenningur
að nýguðfræðin flytur eiginlega aðra
trú og getur varað sig á þeim boð-
skap, ef honum sýnist.
En fari leiðtogar eldri stefnunnar,
eins og Taridberg biskup, að starfa
opinberlega að trúmálum með hinum,
þá er hætt við að þeir slaki um leið
til við skynsemistrúna, og söfnuð-
urnir fari að halda að það standi á
litlu hvort maður aðhyllist skyn-
semistrú eða biblíufastan krislindóm.
Fjöldi leikmanna er sannfærður um
að ágreiningur milli stefnanna sje svo
tnikill að samvinnutilraunir sjeu al-
veg rangar.
Að hinu fann enginn af trúarlegum
ástæðum þótt samvinna væri um önn-
ur mál en trúmál. Þannig var t. d.
samvinna með heimatrúboðsmönnum
og bindindisfjelögum í Noregi um
bannmálið í haust sem leið og fann
enginn að — nema andbanningar.
En Berg-Jæger ritstjóri skrifaði t.
d. í stórblaðið Aftenposten i Kiisti-
aníu mjög eindregið um að samvinna
i trúmálum væri ófær, ef hvor-
ugir breyttu skoðunuin. Segir hann
meðal annars (sjá Aflenposten 29.
júlí f. á.):
»Annars vegar er trú á biblíuna,
sem opinberað orð Guðs, — liins vegar
er biblían skoðuð og dæmd sem hver
önnur sögubók.
Annars vegar er trú á Guð almáttk-
an, föður vorn, sem heyrir og bæn-
heyrir trúaða menn, — hins vegar
er — þegar lengst er farið — trúað
órjúfanlegu orsaka-sambandi, sem Guð
hreyfir eklci við.
Annars vegar er trú á Jesúm Krist,
Guð og mann, getinn af heilögum anda,
fæddan af Maríu mey, — hins vegar
er Kristur skoðaður ekki annað en
maður, þólt Guðs náð væri sjerstak-
lega með honum.
Annars vegar er trú á fyrirgefningu
syndanna í blóði Krists — hins vegar
er talað um *siðferðilega viðreisn í
fótspor Jesú.
Annars vegar er trú á líkamlega
upprisu Krists »oss til rjeltlætingar« —
hins vegar er ógreinileg hugsanaþoka
um »tóma gröf« þar sem lítið er gert