Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.08.1920, Qupperneq 2

Bjarmi - 15.08.1920, Qupperneq 2
122 B JARMI urn eða húslestrum er ekki haldið uppi og án »Jólakveðjanna« væri hjá földa fullorðnu fólki eng- in indæl bernsku- minning um þessa dýrðlegustu hátíð kristindómsins eða þýðingu hennar og áhrif á barnshjört- un, alt öðru vísi en áður var, eins og eldri menn muna, þá er jólalestrar tíðkuðust á hverju heimili og menn fjölmentu til hinnar opinberu guðsþjón- ustu. Jeg hefi haft það fyrir reglu, síðan byrjað var að senda Jólakveðjurnar, að láta hvert býli fá að minsta kosti 1 ein- tak, þótt þar væri að eins um ungbörn að ræða, eitt eða fleiri. Geyma þá mæð- urnar börnunum »Kveðjurnar« til þess, er þau eru komin til vits og ára og geta sjálf lesið þær. Hjer er það svo að börnin hlakka til Jólakveðjanna, og það ár sem þær ekki urðu sendar, varð jeg var við almennan söknuð meðal þeirra. Er mjer kunnugt um að mörg börn halda »Kveðj- unni« saman, sem þeim hafa verið send. Já, með Jólakveðjunum vinnið þjer gott og blessunarrikt starf fyrir kirkju og kristindóm þessa lands'). Jeg lít á þær fyrir mitt leyti sem einskonar hrópand- ans rödd i óbygðinni, á hinni andlegu eyðimörku kirkju vorrar, sem nú virðist yflrleitt eiga sjer stað, sjerstaklega hvað áhuga almennings á kristindómsmálum snertir, verkamennirnir að vísu ekki svo fáir og áhugasamir sumir hverjir. en upp- skeran tiltölulega lítil enn sem komið er«. En þar sem Jólakveðjan er gefin af svo góðum hug og svo kærkomin oss, er eiginlega ófært annað en senda eitthvað í staðinn, enda flestir sammála um það. Þess vegna keypti jeg og ljósmynd af Þingvöllum, sem Magnús Ólafsson Ijósmyndasmiður í Rvík hefir tekið og síðan litað mjög vel svo litlu munar og á málverki, en steinprent- un hennar erlendis kostar um 1000 1) Pakklætið eiga danskir sunnudagaskólar. Jeg er aðeins niilligðngumaður í þessu máli. Ritslj. kr. og burðargjald og útsending í Danmörku yfir 200 kr. Sjálf myndin kostar 300 kr. Úpp í þetta er innkomið alls 562 kr. 20 au. eða vantar með öðrum um 900 kr. til þess að standast kostnaðinn. En fyrir 1. oktobr. verð jeg að síma litmyndaprentsmiðjunni hvort hún á að prenta myndina, svo þeir sem vilja styðja að þessu, verða gð gera það sem fyrst. Jeg legg ekki að neinum manni hálfnauðugum um fjársöfnum í þessu skyni meðal barnanna. Þeir sem kalla það »betl« og fmst íslenskum börn- um hollast að væru ekki mint á að gefa aftur þeim sem gefa þeim, — æltu ekki að gera sjer neitt ómak. Og það er alls ekki bón mín að prestarnir gefi fyrir börnin. Ef öll börn, sem Jólakveðjuna fengu í vetur sem leið og ekkert hafa gefið enn, vildu gefa 10 til 15 aura hvert og biðja prestinn sinn eða annan áreið- anlegan mann að senda mjer þá sem fyrst, þá er hægt að koma myndinni fyrir jólin með kveðju frá íslensk- um börnum í 1200 sunnudagaskóla danska. Og geti ekki vönduð Þing- vallamynd í 1200 samkomuhúsum dönskum vakið holla eflirtekt á ís- landi, veit jeg ekki hvað getur það. En hvað sem þessu líður eru prest- ar beðnir að láta mig vita sem allra fyrst hvað margar fjölskyldur eru í prestaköllum þeirra. Eftirspurn- in er svo mikil eflir Jólakveðjunni og fjölskyldur svo margar í Rvík og öðrum kaupstöðum að fleiri en eina »Iíveðju« handa hverri fjölskyldu get jeg varla sent. Sigurbjörn Á. Gíslcison. P. S. Enginn skilji samskota beiðnina svo að börnin geti ekki fengið Jólakveðju, i þeim sveitum eða kaupstöðum þar sem enginn heflr framkvæmd til að gangast fyrir samskotunum, — siður en svo; enda

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.